Síða 1 af 2

AMD Athlon XP-M 2400+

Sent: Þri 13. Apr 2004 19:16
af Bendill
Jæja strákar og stelpur, ég lét mig hafa það og fjárfesti í einum AMD Athlon XP mobile 2400+ örgjörva. Síðastliðnar vikur hef ég verið að lesa um þessa félaga og þeir hafa svo sannarlega staðið undir væntingum, allt að 2.7Ghz á loftkælingunni einni saman!!!

Þar sem ég er stoltur eigandi Asetek Waterchill vatnskælingar, þá ætla ég sko ekki að láta þennan örgjörva sitja og skrölta áfram á 1.8Ghz... Ónei, hann skal sko fá að öskra... :twisted:

Nóg um það, ég bjó þennan þráð til svo að ég geti póstað því hvernig mér gengur. Svo getið þið endilega komið með góðar vísbendingar eða spurningar.

Í augnablikinu er ég að keyra hann á "stock" (133x13.5) hraða, og er að stress prófa hann, leyfa artic silver 5 að setjast almennilega og svoleiðis...

Sent: Þri 13. Apr 2004 19:20
af Hlynzit
flott keep it up

Sent: Þri 13. Apr 2004 19:20
af Fat
uuuu.. XP mobile 2400....er það ekki í ferðatölvu drall?

Sent: Þri 13. Apr 2004 19:28
af gumol
Fat skrifaði:uuuu.. XP mobile 2400....er það ekki í ferðatölvu drall?

Jú þetta er ferðatölvuörgjörfi en hann er að yfirklukkast mjög vel og þessvegna verið mjög vinsæll í desktop vélar hjá overclockurum.

Sent: Þri 13. Apr 2004 20:05
af Bendill
Þetta er semsagt örgjörvi fyrir ferðatölvur sem er búið að setja í almenna sölu, hann er þeim kostum gæddur að keyra á 1.45V í stað 1.65V og gerður úr bestu fáanlegu "wafers" sem gefur manni mikið rúm til að yfirklukka :D

Sent: Þri 13. Apr 2004 20:24
af amma
Hvað kostaði örgjörvinn annars?

Sent: Þri 13. Apr 2004 20:27
af Bendill
amma skrifaði:Hvað kostaði örgjörvinn annars?

Leindó! Ég fékk hann hjá Task. Það var ekki búið að verðsetja hann að fullu og ég fékk eina eintakið sem þeir áttu en þeir eru reiðubúnir til að panta fleiri ef eftirsókn verður :D
Annars myndi hann svífa í kringum 10.000 kr. ....

Sent: Þri 13. Apr 2004 21:27
af fallen
glhf

Sent: Þri 13. Apr 2004 23:24
af wICE_man
Flott að heyra, ódýru XP örrarnir eru ótrúlega góðir yfirklukkarar, ég keyri minn XP 1700+ (1467MHz) á 2.0GHz (XP 2400+) og kem honum nokkuð stöðugum upp í 2.2GHz á loftkælingu. Mobile örrarnir eru sér kapítuli út af fyrir sig, það væri samt enn betra að geta fengið XP-M 2500+ þ.e. barton kjarna.

Ég óska þér góðs gegnis, ætli móbóið verði ekki flöskuhálsinn, fæst komast yfir 250FSB svo ég myndi í þínum sporum nýta mér að þessi gimsteinn er ólæstur svo það er ekkert annað í stöðunni en að sprengja upp multiplierinn :P

Hlakka til að sjá niðurstöðurnar

Sent: Mið 14. Apr 2004 09:03
af Spirou
Er núna möguleiki að keyra AMD XP örgjörva með passive kælingu ? Gæti maður niðurklukkað þennan örgjörva niður í svona kannski XP 2000+ og sleppt viftunni eða látið hana snúast mjög hægt ?

Sent: Mið 14. Apr 2004 09:11
af wICE_man
Ætli þú þurfir ekki svolítið öflugt heatsink þá.

Sent: Mið 14. Apr 2004 13:24
af Bendill
Nei, ég hugsa að þú þurfir ekki einusinni að niðurklukka. Þessi örgjörvi væri fínn með Zalman Flower eða einhverju. Myndi samt ekki borga sig til lengdar.

BTW

Hann er rock-stable á 2Ghz á 1.475V fór aldrei yfir 29°C alla fjóra tímana sem ég var að keyra Prime95. Það leiðinlegasta fyrir mig er það að minnið er að takmarka mig þegar brautarhraðinn er annars vegar, ég get ekki keyrt það hraðar en 200Mhz. Ég á samt eftir að skoða það betur og prófa allar þessar minnisstillingar á LanParty Ultra B móðurborðinu...

En svona til að fólk átti sig á því hvað er í gangi, þá er tölvan byggð upp af eftirfarandi:

Móðurborð: DFI LanParty NFII Ultra B
Örgjörvi: AMD Athlon XP Mobile 2400+
Kæling: Asetek Waterchill KT15-L20
Minni: 2 x Kingston HyperX PC3500 256Mb
Skjákort: Powercolor ATI Radeon 9800XT
Aflgjafi: Antec Truepower 550W
Kassi Aopen H600B

Ég gerði gat fyrir vatnskassann á þakplötuna á kassanum, festi hann þar og læt viftuna draga loft í gegn, þetta var eina leiðin til að koma þessu fyrir í kassanum. :P
Ég er að skoða verðið á vinnsluminni en er ekkert að stressa mig á því, þetta kostar svo mikið! :(

Sent: Mið 14. Apr 2004 14:05
af wICE_man
Hvaða timings ertu með á minninu? Þetta minni á að höndla 220MHz með léttum leik, en þó ekki á CL2, ég myndi prófa hvað þú getur klukkað það hátt á CL3 stillingum, t.d. 3-5-5-8 og finna síðan út bestu samsettningu á tíma og tíðni-stillingum. Er ekki annars fínt hitastig inn í kassanum, það gæti takmarkað minnið ef það nær ekki að kæla sig nógu vel.

Sent: Mið 14. Apr 2004 15:15
af Bendill
ég hef prófað að keyra það á 210Mhz á 3-5-5-11 en það gekk ekki. Ég keyri það á 2-2-2-7 á 200Mhz sem er svolítið skrýtið. En annars er ég með 4 80mm viftur sem hreyfa loftið. Samt hangir hitinn í kassanum í 30°C. Hinsvegar blæs viftan af vatnskassanum öllu loftinu beint niður á minnið, en minnið hefur samt alltaf verið flöskuhálsinn í þessari uppsetningu. Ég hef farið í gegnum tvo örgjörva, tvö móðurborð og tvö skjákort þannig að þetta getur ekki verið neitt annað en minnið. Þetta eru ekki svokallaðir "matched pair" sem gæti skýrt afköstin. Annars eru feiknamiklar stillingar á öllu sem tengist minni í BIOS'num á DFI borðinu, mikið meira en á Abit NF7-S borðinu sem ég var með fyrir....

Sent: Mið 14. Apr 2004 17:48
af Bendill
wICE_man skrifaði:það væri samt enn betra að geta fengið XP-M 2500+ þ.e. barton kjarna.


Mobile örgjörvar frá 2400+ eru með Barton kjarna, 2200+ og 2000+ eru með thouroughbred :D

Sent: Mið 14. Apr 2004 18:09
af wICE_man
Hmmm.... Það er nú eitthvað skrýtið við PC3500 minni sem virkar bara sem PC3200 :(

Hverjir eru annars speccarnir á þessum örgjörva? Klukkutíðni og brautartíðni?

Sent: Mið 14. Apr 2004 18:24
af Bendill
wICE_man skrifaði:Hmmm.... Það er nú eitthvað skrýtið við PC3500 minni sem virkar bara sem PC3200 :(

Hverjir eru annars speccarnir á þessum örgjörva? Klukkutíðni og brautartíðni?


Ég hef ekkert prófað minnið á einni braut, hef alltaf notað það í dual channel, en kubbarnir eru ekki par, ég keypti þá í sitt hvoru lagi...

Annars er klukkutíðni örgjörvans 1800Mhz og brautartíðni er 133Mhz (266Mhz DDR) Ég á eftir að prófa þetta betur, en fyrst þetta hefur ekki farið hærra á þremur örgjörvum, þá efast ég um að þetta séu örrarnir...

Sent: Mið 14. Apr 2004 19:08
af Bendill
Jæja, 2.4Ghz á 200 x 12 og 1.575V. :D

Ætla að keyra hann svoleiðis í smástund, leyfa honum að venjast því :twisted:

Sent: Mið 14. Apr 2004 20:57
af wICE_man
mmmmm.....

mig langar í einn svona :P

Sent: Mið 14. Apr 2004 22:53
af Bendill
2.6Ghz á 1.65V. !!!

Ee að prófa stability í augnablikinu

Sent: Fim 15. Apr 2004 08:34
af pyro
vó! :shock:

Sent: Fim 15. Apr 2004 09:36
af Bendill
Komst hæðst í 2.6Ghz á 1.675V í gær, hitinn fer aldrei yfir 35°C. Ég er að vona að ég eigi eitthvað eftir í honum, en það þarf alltaf að gefa þessum örgjörvum smá tíma til að "brenna inn". Hann var ekki alveg stöðugur á 2.6Ghz og 1.65V, var varla búinn að pósta seinasta skilaboði þegar hún rebootaði sér :P
En á 1.675V virðist hún vera fín, ég tók gott session í Far-Cry demo 2, náði að klára það meirasegja...

Sent: Fim 15. Apr 2004 11:59
af wICE_man
Nettur, það er ekki hægt að kvarta yfir þessu yfirklukki. Ertu nokkuð með benchmörk? T.d 3dmark2001, það er nokkuð krefjandi á örran, eða ut2003 or something.

Sent: Fim 15. Apr 2004 12:11
af Bendill
wICE_man skrifaði:Nettur, það er ekki hægt að kvarta yfir þessu yfirklukki. Ertu nokkuð með benchmörk? T.d 3dmark2001, það er nokkuð krefjandi á örran, eða ut2003 or something.


Fer í það þegar ég er búinn í vinnuni :D

Sent: Fim 15. Apr 2004 18:48
af Hlynzi
Nettur !