Síða 1 af 1

Loading times lengri eftir uppfærslu

Sent: Sun 06. Mar 2011 13:29
af Lexinn
Já, góðan daginn!

Mig langaði bara að spyrja ykkur hvort að loading times væru lengri eftir skjákortum?

Var með 260GTX í vélinni en uppfærði í HD5850, eftir það hafa loading times í leikjum orðið mun lengri.

FPS hefur náttúrulega hækkað en í sumum leikjum eins og BFBC2 og Black Ops er loading time

orðinn það langur að ég missi af 1st round.

Er með Tagan BZ800 Series aflgjafa.

Kannski hann sé vandamálið?

Er annars með fjóra harðadiska í vélinni.

Aðrir specs:

Móðurborð: P5Q Pro
Örgjörvi: E8500@3.16 Ghz
Minni: 2x2GB@800Mhz

Nú, nema það sé ekkert vandamál og þetta er bara eðlilegt. :sleezyjoe

Re: Loading times lengri eftir uppfærslu

Sent: Sun 06. Mar 2011 13:51
af vidirz
Fáðu þér bara einn SSD harðan disk :D

Re: Loading times lengri eftir uppfærslu

Sent: Sun 06. Mar 2011 14:00
af GuðjónR
Settirðu windowsið upp aftur?
Ég hef lent í svona en það lagaðist þegar égsetti windowsið upp á nýtt.
Í mínu tilfelli skrifaði ég það á "drivera" conflict.

Re: Loading times lengri eftir uppfærslu

Sent: Sun 06. Mar 2011 14:09
af vesley
GuðjónR skrifaði:Settirðu windowsið upp aftur?
Ég hef lent í svona en það lagaðist þegar égsetti windowsið upp á nýtt.
Í mínu tilfelli skrifaði ég það á "drivera" conflict.



Kæmi mér ekki á óvart ef það væri driver conflict.

Auðveldast væri að nota Driver sweeper, þá sleppuru allavega við að formata.

Og þá á að nota Driver sweeper í Safe-mode og nota hann 2 sinnum.

Re: Loading times lengri eftir uppfærslu

Sent: Sun 06. Mar 2011 14:20
af DabbiGj
Gæti líka verið að þú sért að spila í hærri upplausn eða með betri textures ?

Það gæti útskýrt lengri load tíma

Re: Loading times lengri eftir uppfærslu

Sent: Sun 06. Mar 2011 14:40
af Lexinn
vidirz skrifaði:Fáðu þér bara einn SSD harðan disk :D


Væri allveg rosalega til í það! En buddan leyfir það ekki ;)

GuðjónR skrifaði:Settirðu windowsið upp aftur?
Ég hef lent í svona en það lagaðist þegar égsetti windowsið upp á nýtt.
Í mínu tilfelli skrifaði ég það á "drivera" conflict.


Já, nýbúinn að formata.

DabbiGj skrifaði:Gæti líka verið að þú sért að spila í hærri upplausn eða með betri textures ?

Það gæti útskýrt lengri load tíma


Neibb, spilaði allt maxed, nákvæmlega sama núna.

vesley skrifaði:
Kæmi mér ekki á óvart ef það væri driver conflict.

Auðveldast væri að nota Driver sweeper, þá sleppuru allavega við að formata.

Og þá á að nota Driver sweeper í Safe-mode og nota hann 2 sinnum.


Ætla að prufa það!

Re: Loading times lengri eftir uppfærslu

Sent: Sun 06. Mar 2011 15:48
af toybonzi
Loading time skrifast ekki á skjákort. Mögulega gæti vantað inn einhvern driver fyrir Sata controllerana sem að hægir á vélinni. Þetta er mjög líklegt, sérstaklega ef þú ert með Nforce kubbasett....sem sagt chip set driver fyrir móðurborðið þitt.

Þetta er það sem ég mundi byrja á að skoða.

Re: Loading times lengri eftir uppfærslu

Sent: Sun 06. Mar 2011 16:12
af Hörde
Radeon kort eru lengur að hlaða suma leiki af einhverri stórfurðulegri ástæðu. Bad Company 2 er akkúrat einn þeirra, en þetta gerist líka með leiki frá Capcom. Sömuleiðis skiptir máli hvort þú keyrir DX9/10/11.

Ég hélt samt að það væri löngu búið að laga þetta issjú.

Re: Loading times lengri eftir uppfærslu

Sent: Sun 06. Mar 2011 18:22
af Lexinn
toybonzi skrifaði:Loading time skrifast ekki á skjákort. Mögulega gæti vantað inn einhvern driver fyrir Sata controllerana sem að hægir á vélinni. Þetta er mjög líklegt, sérstaklega ef þú ert með Nforce kubbasett....sem sagt chip set driver fyrir móðurborðið þitt.

Þetta er það sem ég mundi byrja á að skoða.


Var með GTX260, setti síðan HD5850 í vélina. Varð hægara, formataði og sama vandamál.

Prufaði að nota driver sweep, setti svo nýja rekla.

Svo prufaði ég að setja SATA controller og það breytir ekki neinu.

Kannski er þetta normaleee? :roll:

Re: Loading times lengri eftir uppfærslu

Sent: Sun 06. Mar 2011 19:17
af Orri
Hörde skrifaði:Radeon kort eru lengur að hlaða suma leiki af einhverri stórfurðulegri ástæðu. Bad Company 2 er akkúrat einn þeirra, en þetta gerist líka með leiki frá Capcom. Sömuleiðis skiptir máli hvort þú keyrir DX9/10/11.

Ég hélt samt að það væri löngu búið að laga þetta issjú.

Ég er með HD4870 kort og er eldsnöggur að load-a borðum.
Á server-um sem eru með engann biðtíma er ég oft fyrstur að spawn-a :)

Re: Loading times lengri eftir uppfærslu

Sent: Þri 08. Mar 2011 17:04
af Hörde
Orri skrifaði:
Hörde skrifaði:Radeon kort eru lengur að hlaða suma leiki af einhverri stórfurðulegri ástæðu. Bad Company 2 er akkúrat einn þeirra, en þetta gerist líka með leiki frá Capcom. Sömuleiðis skiptir máli hvort þú keyrir DX9/10/11.

Ég hélt samt að það væri löngu búið að laga þetta issjú.

Ég er með HD4870 kort og er eldsnöggur að load-a borðum.
Á server-um sem eru með engann biðtíma er ég oft fyrstur að spawn-a :)


Jámm, eins og ég segi þá hélt ég að það væri búið að laga þetta. Kannski poppaði issjúið upp aftur í nýjasta drivernum á ákveðnum kortum eða eitthvað í þá áttina.

Ef þú ert að keyra WinXP gæti það líka verið ástæðan. Mig minnir að þessir löngu load tímar hafi bara verið í DX10 (veit ekki með 11) sem keyrir ekki á XP en það gæti hafa verið öfugt. Annars fann ég einn þráð sem vísar í þetta:

Issue In 11.2 "Battlefield 2: Bad Company" maps takes unusually long to load for ati 6970 please fix that

Re: Loading times lengri eftir uppfærslu

Sent: Þri 08. Mar 2011 17:12
af snaeji
Þetta var í öllum OS , kom driver fix fyrir þetta vissi ég sem stytti loading tímann í bf2 úr 1 mín í 6-9 sek :lol:

http://forums.amd.com/game/messageview. ... did=129047

Re: Loading times lengri eftir uppfærslu

Sent: Þri 08. Mar 2011 18:01
af jagermeister
ATI kort eru þekkt fyrir að vera lengi að hlaða möppum í bfbc2 en það á að vera komið driver fix fyrir þetta...þá verðurðu tilbúinn þegar bf3 kemur. :)