Síða 1 af 1

Hjálp... móðurborð, skjákort og fl

Sent: Þri 18. Feb 2003 20:53
af HKarl
Nú er maður loksins farinn af stað í að versla sér nýja vél...
ég er búinn að verlsa:
P4 3.06GHz örgjörva
2x DDR 512MB minni (333)
WD 120gb 8mb buffer
Dragon turn

Svo vantar mig að fá að vita hvaða skjákorti þið mælið með?
Það verður að ráða við 2 skjái... er þá ekki eina málið að fara í GF4 Ti4600??

En móðurborð?
hef ekkert vit á því... hvaða móðurborð gengur og hvar fæst það??

Svo er ekkert verra að fá smá ráðleggingar um hvort það c einhvað meira sem þið mælið með

Sent: Þri 18. Feb 2003 23:48
af Castrate
Jah ég myndi segja að þar sem allir eru svo rosalega skotnir í ATI þessa dagana að með svona ofurvél ætti að vera ATI Radeon 9700 pro. Ég hef ekki hugmynd um hvort það ráði við 2 skjái eða ekki en ég er með GF4 TI 4600 og það ræður alveg við 2 skjái :)

Sent: Mið 19. Feb 2003 12:26
af Atlinn
Ég ætla að mæla með þessum 3 Móðurborðum
Asus P4G8X
Gigabite GA-8INXP: The Dual Perfectionist
MSI MS-6565, Alias GNB Max
reynda allt tekið úr sömu greinini

Sent: Sun 23. Feb 2003 18:52
af emmi
ATi Radeon 9700 Pro er með output fyrir 2 skjái, annað er analog hitt DVI.
Aftur á móti er All in Wonder 9700 Pro kortið bara með einu output sökum pláss leysis.

hmm

Sent: Mið 26. Feb 2003 21:39
af coel
er Asus P4G8X móbóið ekki með FWire???

Sent: Fim 27. Feb 2003 12:31
af Atlinn
Júbb það eru 2 FireWire á því

hffshghatrblsgraaa

Sent: Þri 11. Mar 2003 17:28
af coel
Ég er að fara að kaupa mér móðurborð og ég get ekki valið á milli Gigabite GA-8INXP og Asus P4G8X. HVAAAAÐ! Hvort! ::hleypur í hringi::

Sent: Mið 12. Mar 2003 12:21
af Atlinn
Asus eru þáttúru lega bestir en gigabite er líka góðir, ef gigabite borðið er eitthvað myndi ég örugglega taka það.
Gigabite borðið er með Serial Ata og Raid en Asus morðið er ekki með Raid, en það er samt ekki með FireWire og Digital out fyrir hljóð, Gigabite borðið lítur líka mikklu betur út ef þú ert með glæra hlið á kassanum, tvær viftur á því (nortbridge og eitthvað power unit) sem verða bláar þegar er kveikt á tölvunni.

wu?

Sent: Fim 13. Mar 2003 12:04
af coel
ha? er asus borðið ekki með raid.. jú.... er það ekki. Mig minnir endilega að ég hef lesið einhverstaðar raid.. eða raid 1.. eða raid0/1.. eða, ah, anyway. og hvort borðið sagðiru að væri ekki með fwire og .. that.. other.. thing... HEYY! what's that!? ::runs::

Re: wu?

Sent: Fim 13. Mar 2003 22:59
af Atlinn
coel skrifaði:ha? er asus borðið ekki með raid.. jú.... er það ekki. Mig minnir endilega að ég hef lesið einhverstaðar raid.. eða raid 1.. eða raid0/1.. eða, ah, anyway. og hvort borðið sagðiru að væri ekki með fwire og .. that.. other.. thing... HEYY! what's that!? ::runs::

neibb Asus borðið er ekki með Raid, en þau eru bæði með Serial ATA sem er svo sem betra en Raid. En Asus borðið er með eitt sem Gigabite borðið er ekki mað, FireWire ég kann ekki að lýsa því betur en að það er svipað og USB bara miklu betra :D

Sent: Fös 14. Mar 2003 09:46
af GuðjónR
Ég tæki ASUS ekki spurning! ...
ÉG keypti mér ASUS P4PE rétt fyrir jólin, það er með öllu nema agp8x sem skiptir mig svo sem engu þar sem ég er með TI4400 kort (4x).
ASUS móðurborð eru snilld!!

Sent: Fös 14. Mar 2003 11:20
af Voffinn
Guðjón ? Asus og Intel....ekki gæti verið að þú sért með umboð fyrir þessu :8) en hvað er með þig og þessa fórdóma fyrir amd/wd og fleira ? :P

Sent: Fös 14. Mar 2003 13:41
af coel
úff já.. mig vantar firewiretengi.. ég er að gera helling af vinnslu sem ég þarf að tengja videoupptökuvélar og d.myndavélar og hdiska og dót.. ég þarf really firewire. :bounce [/quote]

Sent: Fös 14. Mar 2003 14:02
af kiddi
Þú getur fengið geggjað Firewire PCI kort á 4þús =)