Síða 1 af 1

Mælið þið með þessu?

Sent: Fös 02. Apr 2004 12:45
af ErectuZ
Sapphire ATI RADEON 9600 256 MB DDR minni, með VGA, TV, DVI og Dual Head, AGP 8X

Þarf að vita hvort þetta er þess virði að kaupa. Þetta er á 15,000 kall á computer.is

Sent: Fös 02. Apr 2004 12:52
af wICE_man
Nei, fáðu þér frekar Pro eða XT með 128MB minni, það er betri fjárfesting.

...

Sent: Fös 02. Apr 2004 14:26
af DaRKSTaR
Sapphire er drasl merki..

þeir sem ég hef talað við úti segja að sapphire kortin séu byggð úr low end dóti, eina sem er gott sé ati kubburinn, restin allt það ódýrasta sem þeir finna og endingin sé eftir því.

Re: ...

Sent: Fös 02. Apr 2004 15:01
af skipio
DaRKSTaR skrifaði:Sapphire er drasl merki..

þeir sem ég hef talað við úti segja að sapphire kortin séu byggð úr low end dóti, eina sem er gott sé ati kubburinn, restin allt það ódýrasta sem þeir finna og endingin sé eftir því.


Nah, það er nú ekki alveg rétt en hinsvegar er téð 9600 kort ekki gott því að það er m.a. notað lélegt minni á því.

Hinsvegar sér Saphire um að búa til kort fyrir aðra framleiðendur, líka ATI.

Re: ...

Sent: Fös 02. Apr 2004 15:06
af xtr
Hvernig móðurborð ertu með ? :o

Sent: Sun 04. Apr 2004 11:43
af ErectuZ
Ehm, ég hætti við þetta þá og ætlaði að kaupa 9600XT 128mb...En það var ekki til neins staðar fyrr en eftir helgi og eitthvað þannig bull, og ég keypti bara GeForce 5600XT 256mb. Hefði ég átt að sleppa því, kannski?

Sent: Sun 04. Apr 2004 12:22
af wICE_man
NEEEEEEEEEEIIIIIIIIIIIII!!!!!!!!

Ekki segja mér að þú hafir fallið fyrir miskunalausri sölubrellu Nvidia, GeForce XT kortin eru nefnilega lélegustu GeForce kortin en ekki þau bestu eins og hjá Ati!!!!

Þú varst að kaupa crapy kort sem kostaði sennilega ca. 13000kr, fyrir 14000 krónur hefðirðu getað fengið miklu betra 9600Pro oh my....

Þetta er bara uber-sorglegt :cry: :cry: :cry: :cry:

Sent: Sun 04. Apr 2004 12:36
af wICE_man
Því miður hefur 5600XT lítið verið benchmarkað, einu síðurnar sem ég fann voru:

(Samanburður á mörgum kortum, leitið mjög neðarlega eftir 5600XT)
http://www.digit-life.com/articles2/gffx/gffx-31.html?68246#p3

http://www.elitebastards.com/page.php?pageid=3271&head=1&comments=1

Og niðurstaðan? GeForceFX 5600XT sökkar með stóru Ki!

Það er leitin að jafn lélegu korti.

Sent: Mán 05. Apr 2004 11:05
af ErectuZ
Oh well. Það er víst ekki aftur snúið. En jæja. Ein önnur spurning. Er þetta skjákort með innbyggðri viftu? Það lítur ekki út fyrir það, en það er samt eitthvað lítið svart...thingy sem er þarna. Gæti viftan verið inni í því?

Sent: Mán 05. Apr 2004 12:29
af wICE_man
Það gæti vel verið með "passive heatsink", þ.e. kæliplötu án viftu enda gengur það bara á 235MHz.