Síða 1 af 1
Betri hugmynd?
Sent: Fös 02. Apr 2004 10:34
af talkabout
Ætlaði að fá mér nýtt móðurborð og örgjörva,
Gigabyte GA-7VT600L (
http://www.tolvuvirkni.net/ip?inc=view& ... OB_7VT600F)
og
AMD Athlon Barton 2800 XP (
http://start.is/product_info.php?cPath= ... cts_id=240).
Þar sem ég er eiginlega ekkert inni í Intel dótinu langaði mig að forvitnast hjá mér gáfaðri hvort ég gæti fundið sambærilegan pakka í Pentium á SAMA verði (23 000 krónur).
Helsta vandamálið við Gigabyte móðurborðið er að það er ekki sérlega yfirklukkunarvænt og þess vegna datt mér í hug að forvitnast um Pentium... einhverjar snilldarhugmyndir?
Sent: Fös 02. Apr 2004 12:03
af MJJ
Persónulega myndi ég fjárfesta í Pentium, ég hef átt AMD og var fremur ósáttur. En þetta er mitt álit ég ætla ekkert að skíta yfir AMD!
Sent: Fös 02. Apr 2004 12:17
af talkabout
Gott og vel, veit það eru skiptar skoðanir um þetta allt saman. Sýnist samt á öllu sem ég hef skoðað að fyrir þennan pening sé ekkert nema Celeron inni í myndinni. Á maður alveg að gleyma þeim eða....?? Aldrei fyllilega áttað mig á muninum á þeim og venjulegum Pentium
Sent: Fös 02. Apr 2004 12:24
af MJJ
Hvað hefuru mikinn pening til að eyða í þetta, móðurborð + örgjörvi??
Sent: Fös 02. Apr 2004 12:25
af MJJ
Celeron er slakur
Sent: Fös 02. Apr 2004 12:33
af talkabout
Eins og ég segi, hef 20-25 000 kall, get því miður ekki farið yfir það.
Sent: Fös 02. Apr 2004 12:39
af MJJ
Þú getur fengið ÖRGJÖRVI - Intel P4 2.4 GHz, 533 MHz FSB, 478 pinna, 512 k flýtiminni í computer.is á 18.905 kr.
http://www.computer.is/vorur/3265
og MÓÐURBORÐ - MSI 648F NEO-L (MS-6585F-020) Pentium 4(478)/SIS648FX/963L/FSB800/DDR/8XAGP/Audio/Lan/ATX hjá computer.is á 7.990 kr.
http://www.computer.is/vorur/3135
Samtals er þetta 26.895 kr.
Sent: Fös 02. Apr 2004 12:41
af MJJ
Svo er móðurborð á einhvern þúsundkalli minna efst í móðurborðum fyrir intel getur líka skoðað það
Sent: Fös 02. Apr 2004 13:22
af talkabout
Verð greinilega að skoða þetta betur. Takk kærlega
Sent: Fös 02. Apr 2004 13:25
af MJJ
Ekkert mál, það munar litlum pening á milli
Sent: Fös 02. Apr 2004 14:04
af wICE_man
Þú færð þér ekki pentium örgjörva á eitthvað crappy móðurborð, kubbasettið á þessu móbói sem MJJ benti á er reyndar ágætt hvað afkastagetu varðar (oftast innan við 5% hægari en 875P kubbasett) en það eru mjög fáir aukafídusar á því, enginn SATA stuðningur, ekkert firewire osfv. En ótrúlega gott borð fyrir þennan pening og þú kemst sennilega alls ekki lægra.
Celeron kemur ekki til greina, ég vil undirstrika það, EKKI FYRIR NOKKRA LIFANDI MUNI KAUPA CELERON!!!!
Þú færð betra performance með 1600MHz Duron en með 2.8GHz Celeron, það er skömm af þessum örverpis ógjörvum sem Intel dirfist að selja óvitum og grunlausum sakleysingjum með enga tölvukunnáttu.
Ég er hræddur um að fyrir þennan fjárhag sé AMD betri kosturinn, nema þú getir sætt þig við berstrípað móðurborð og kreystir upp nokkra auka þúsundkalla. Þá myndi ég líka fá mér 2.8C örgjörva, annars borgar sig seint að taka 2.4GHz P4 í stað XP-2800+, það væri bara verið að borga meira fyrir eilítið minna.
Sent: Fös 02. Apr 2004 21:49
af gnarr
ALSEKKI FÁ ÞÉR CELERON!!
name kanski ef þetta á bara að vera skrifstofu tölva. ef þú ert með 25.000kr, þá myndi ég reyna að eyða sem mestu af þessum pening í móðurborð! það er þess virði, trúðu mér. fynndu eitthvða mjög gott móðurborð, og notaðu svo afganginn í ódýrasta 333mhz XP örrann. sem ég held að sé 2500xp.
annars vill ég líka minna á partalistann og notað dót. þú getur auðveldlega fenfið p4 2.8+ og gott abit móðurborð fyrir þennann pening notað.
Sent: Lau 03. Apr 2004 20:49
af xtr
MJJ, Akverju geriru bara ekki þetta drasl í einu svari ? Skrifar svona 6 svör með einni setningu alltaf .. hata líka hvað þú gerir mörg upphrópunarmerki
Sent: Sun 04. Apr 2004 07:03
af Vilezhout
xtr skrifaði:MJJ, Akverju geriru bara ekki þetta drasl í einu svari ? Skrifar svona 6 svör með einni setningu alltaf .. hata líka hvað þú gerir mörg upphrópunarmerki
give it to him binni !
mátt alveg breyta póstum í staðinn fyrir að vera að pósta 4-5 svörum
Sent: Sun 04. Apr 2004 10:27
af Nemesis
xtr: Ekki vera svona vondur við greyið, hann vill bara verða Ofur-nörd eins og þú
Sent: Sun 04. Apr 2004 10:46
af fallen
Til þeirra sem líkar ekki við MJJ:
Ég er að selja veiðileyfi á hann, einkaskilaboð eru nóg.
Ef hann verður ekki dauður eftir 2 vikur þá verður hann réttdræpur.
Happy fragging.
Sent: Sun 04. Apr 2004 10:54
af Voffinn
Vilezhout skrifaði:xtr skrifaði:MJJ, Akverju geriru bara ekki þetta drasl í einu svari ? Skrifar svona 6 svör með einni setningu alltaf .. hata líka hvað þú gerir mörg upphrópunarmerki
give it to him binni !
mátt alveg breyta póstum í staðinn fyrir að vera að pósta 4-5 svörum
+
Hvernig var það? "Vertu harður! Brenndu helvítis kvittunina fyrir framan kerlinguna!"