Síða 1 af 1

Vantar ódýra netsnúru

Sent: Sun 20. Feb 2011 18:07
af kristjanm
Vitiði hvar ég get keypt ódýra netsnúru?

Netið er orðið leiðinlegt hérna hjá mér og mig grunar að það sé út af snúrunni.

Ég þyrfti helst að geta valið lengdina á henni, leiðinlegt að vera með of langa snúru þar sem að hún eykur á gagnatap.

Re: Vantar ódýra netsnúru

Sent: Sun 20. Feb 2011 18:22
af bulldog
tölvulistinn er með upp í 3-5 metra snúrur held ég

Re: Vantar ódýra netsnúru

Sent: Sun 20. Feb 2011 18:28
af BugsyB
hvað viltu langa snúru? ég skal búa hana til handa þér og selja þér hana á 1000kr er með kassa að cat5 hérna heima og á tengi ekkert mál

Re: Vantar ódýra netsnúru

Sent: Sun 20. Feb 2011 19:16
af Pandemic
kristjanm skrifaði:Ég þyrfti helst að geta valið lengdina á henni, leiðinlegt að vera með of langa snúru þar sem að hún eykur á gagnatap.

Nei, það gerist ekki fyrr en þú ert kominn yfir marga tugi(80+) metra og ert með lélegan endabúnað.

Re: Vantar ódýra netsnúru

Sent: Sun 20. Feb 2011 19:25
af sunna22
Rafkaup eru líka með ódýrar snúrur. Hef oft verslað þar mjög gott verð. :D

Re: Vantar ódýra netsnúru

Sent: Mán 21. Feb 2011 11:50
af Vaski
BugsyB skrifaði:hvað viltu langa snúru? ég skal búa hana til handa þér og selja þér hana á 1000kr er með kassa að cat5 hérna heima og á tengi ekkert mál

Þetta er náttúrlega frábært verð sem þú ert að bjóða uppá, tja fyrir utan ef þetta er mjög stuttur kapall að þá er hægt að fá 0,5 m hjá Örtækni á 850 (í helling af litum líka :) )
En ef manni vantar kapla að þá er helvíti gott að leita til Örtækni, ef það er ekki á heimasíðunni hjá þeim er alltaf hægt að hafa samband og því er oftast reddað.

Re: Vantar ódýra netsnúru

Sent: Þri 22. Feb 2011 12:08
af BugsyB
Vaski skrifaði:
BugsyB skrifaði:hvað viltu langa snúru? ég skal búa hana til handa þér og selja þér hana á 1000kr er með kassa að cat5 hérna heima og á tengi ekkert mál

Þetta er náttúrlega frábært verð sem þú ert að bjóða uppá, tja fyrir utan ef þetta er mjög stuttur kapall að þá er hægt að fá 0,5 m hjá Örtækni á 850 (í helling af litum líka :) )
En ef manni vantar kapla að þá er helvíti gott að leita til Örtækni, ef það er ekki á heimasíðunni hjá þeim er alltaf hægt að hafa samband og því er oftast reddað.


Já örtækni eru lang ódýrastir - ég versla mest við þá en ef þú þyrftir t.d. 5m snúru þá er 1000kr mjög gott verð

Re: Vantar ódýra netsnúru

Sent: Þri 22. Feb 2011 12:34
af audiophile
Já mæli hiklaust með Örtækni. Þeir smíða kaplana sjálfir úr hágæðaefni og búa meira segja til kapal fyrir þig meðan þú bíður, í litnum sem þig langar í hvaða lengd sem er. Verðið er líka flott.

Re: Vantar ódýra netsnúru

Sent: Þri 22. Feb 2011 13:17
af capteinninn
Hoho fór um daginn fyrir tilviljun í Office 1 outletið í krepputorgi og þar voru þeir að selja cat5 capla ódýrt, keypti einhverja 20 metra í mismunandi lengdum samtals á 1500 kall