Síða 1 af 1

Re: Er þessi ónýtur?

Sent: Mán 29. Mar 2004 10:46
af vjoz
:D

Mynd

hvað haldið þið?

Sent: Mán 29. Mar 2004 11:13
af axyne
nei ekkert endilega ónýtur.

ég veðja að hann sé í lagi

Sent: Mán 29. Mar 2004 12:04
af wICE_man
Ég las frásögn gaurs sem hjólaði óvart yfir gamla XPinn sinn á skrifborðsstólnum sínum svo hann bognaði, hann rétti aftur úr örgjörvanum, lagaði pinnana og skellti honum aftur í og viti menn?! Hann virkaði!!

Sent: Mán 29. Mar 2004 12:37
af vjoz
er þetta ekki bara kælidrasl sem er brotið?

Sent: Mán 29. Mar 2004 13:24
af Spirou
Core-ið sjálft er brotið sem er í raun örgjörvinn sjálfur steyptur í keramik. Spurning hvenær keramikið endar og örgjörvinn byrjar ....

Sent: Mán 29. Mar 2004 13:59
af Buddy
Er þetta ekki bara spurning um að prófa og keyra memtest.

Sent: Mán 29. Mar 2004 14:03
af ICM
Einhver með svona góðar græjur og þessi ætti vel að hafa efni á að skipta eldgömlum Duron út fyrir eitthvað nýtt. Hefur bara verið að monta sig af myndavélinni sinni...

Sent: Mán 29. Mar 2004 16:59
af vjoz
haa?

ég ætlaði nú bara að spurja hvort hann væri farinn fyrir fullt og allt.
ég á nefninlega móðurborð undir hann og helling af sdrami, tilhvers að skipta út einhverju sem þarf ekki að vera betra...

ég á ekkert frábærar græjur, er að gera allt sem ég geri á 1200mhz athlon vél...

enga stæla kappi.

v.

Sent: Mán 29. Mar 2004 17:22
af ICM
vjoz sorry ég hélt þetta væri tekið af einhverri erlendri síðu og tók þetta ekki alvarlega.

Sent: Mán 29. Mar 2004 17:24
af vjoz
Ekkert mál maður

ég stútaði þessu bara í gærkvöldi :oops:

Sent: Mán 29. Mar 2004 17:27
af Cras Override
bara að henda honum í.


P.S. þetta er bréf númer 400 hjá mér:D

Sent: Mán 29. Mar 2004 18:40
af Zaphod
Varstu full ákafur við að setja heatsinkið á ? ...


Er nefninlega með einn svona örgjörva , sá sem var að reyna koma heatsinkinu á setti það eitthvað skakkt á og það heyrðist svona smá brestur.
Það brotnaði örlítið horn þarna af.


Enn örrinn virkar samt fínt.....

Sent: Mán 29. Mar 2004 18:57
af vjoz
ég held að það sem gerðist hafi verið það að kæliplatan losnaði af þegar ég hélt hún væri orðin föst, þetta er eitthvað Kúlermaster dót og klemmurnar standa mjööög tæpt...

Þegar hann liftist af, þá hitnaði hann náttúrulega rosalega og ég held að hornið hafi brotnað við það...

Hann var reyndar svo heitur að ég gat ekki komið við hann...
- ég held samt að hann hafi ekkert ofhitnað, eða brunnið. Móbóið slapp allavega mjög vel, setti bara 1000mhz athalon í ... :shock:

Er það ekki svipað afl? - 1200mhz duron og 1000mhz athalon?

Sent: Þri 30. Mar 2004 15:04
af Hlynzi
Ég myndi halda að þessi AMD myndi virka ennþá.

Kannski hefur hann ekkert brotnað alla leið inní kjarnann. Hentu honum bara í og þá sérðu það.

Sent: Þri 30. Mar 2004 15:08
af vjoz
ef það kemur ekkert á skjáinn þegar ég set hann í móðurborð með innbygðu skjákorti, er það þá hann eða móbóið?
ég er ekki viss um að það sé í lagi ennþá... - er líka með frekar lítinn spennugjafa, bara svona til að prófa, á ég að nenna að skrúfa einhvern annan úr?