Síða 1 af 1

Þráðlaus heyrnatól

Sent: Þri 01. Feb 2011 00:28
af demigod
Er að spá hvort þið vaktarar gætuð leiðbeint mér með val á þráðlausum heyrnatólum.

prísinn er ca 15-20k

hef verið að spá í Sony og Sennheizer.

semsagt annaðhvort þessi hér
http://www.bestbuy.com/site/Sony+-+900MHz+Analog+RF+Wireless+Headphones+-+Black/8241422.p?id=1168044601934&skuId=8241422

eða þessi hér
http://www.elko.is/elko/product_detail/?ew_10_p_id=105631&serial=SERS160&ec_item_14_searchparam5=serial=SERS160&ew_13_p_id=105631&ec_item_16_searchparam4=guid=653586c0-e835-4921-b3b1-2588b2384998&product_category_id=1741&ec_item_12_searchparam1=categoryid=1741

möguleiki er að kaupa þau í bandaríkjunum en ég hef eiginlega ekki hugmynd hvað maður á að vera skoða.

Re: Þráðlaus heyrnatól

Sent: Fim 10. Feb 2011 17:59
af Mr.Kaspersen
Sæll demigod,

ég var einmitt í þinni stöðu fyrir rúmu ári síðan og splæsti á eitt stykki Sennheiser RS 140 og
sé alls ekki eftir því. Tók mig þó rúma 2 daga að átta mig á þessu snúruleysi :catgotmyballs svo er þetta bara algjört frelsi með svona tól.
Pældi mikið í sennheiser headphone'unum á þeim tíma þar sem þau voru að fá bestu dómana.
Nýju þráðlausu módelin eins og t.d. það sem þú ert að spá í þ.e.a.s. RS 160 var ekki að fá neina svaka dóma ef mig minnir rétt.
Veit ekki með þessi Sony headphone en mér finnst eins og ég rakst á frekar neikvæða gagnrýni á þeim og Sony þráðlausum HP almennt, en ég gæti verið að bulla.
En um að gera að finna einhver review um headphone'in, þá t.d. amazon eða einhverjar gagnrýnendasíður.
En þó persónulega mæli ég með sennheiser, eflaust með þeim fremstu í þráðlausa heyrnatólabranzanum.

Re: Þráðlaus heyrnatól

Sent: Fim 10. Feb 2011 18:07
af ellertj
160 ættu ekki að hafa neitt sérstakt yfir Sennheiser 140..en ef þú hefur budget í 170-180 seríunni=kaupa!

Re: Þráðlaus heyrnatól

Sent: Fim 10. Feb 2011 18:51
af Fylustrumpur
Ég á Sennheiser 130, Þau eru bestu heyrnatól sem ég hef átt.

Re: Þráðlaus heyrnatól

Sent: Lau 12. Feb 2011 02:42
af demigod
Takk fyrir svörin strákar, held ég detti á sennheizer heyrnatólin :D

Re: Þráðlaus heyrnatól

Sent: Lau 12. Feb 2011 11:33
af Hauksi
Hér á landi kosta græjur (hljóð/mynd) 30-120% meir en í nágrannalöndunum,alveg makalaust.
Sennheiser RS160 er greinilega undantekningin sem sannar regluna.
Ekki oft sem maður sér græju sem kostar það sama útúr búð hér á landi og í erlendri netverslun. =D>