Síða 1 af 1
OEM-RETAIL
Sent: Mið 24. Mar 2004 21:31
af mannzib
Fyrirgefið mér fáfræðina elsku vaktarar en hvað stendur OEM og RETAIL fyrir og hver er munurinn á því?
Sent: Mið 24. Mar 2004 21:36
af gnarr
Retail þýðir að hlutyurinn er seldur í smásölu pakkningum, semsagt í fallegum kassa með bæklingi og hugsanlega frýum demoum eða álíka.
OEM þýðir hinsvegar að það sem þú kaupir kemur bara í poka, líklega samt með install disk. en ekki mikið meira. það er svona "fyrirtækja" útgáfan af hlutnum, semsagt ekki með öllu þessa auka drasli sem að búðir sem setja saman tölvur hafa engin not fyrir.
Sent: Mið 24. Mar 2004 21:38
af Pandemic
Retail þýðir líka að hluturinn hefur verið prófaður t.d eru intel örrarnir sem koma retail prófaðir en oem ekki og oft kemur það sem kemur í retail A og B flokkur en OEm C ogD
Sent: Mið 24. Mar 2004 22:30
af elv
Pandemic skrifaði:Retail þýðir líka að hluturinn hefur verið prófaður t.d eru intel örrarnir sem koma retail prófaðir en oem ekki og oft kemur það sem kemur í retail A og B flokkur en OEm C ogD
Þetta hef ég aldrei heyrt áður
Sent: Mið 24. Mar 2004 23:29
af GuðjónR
Ekki ég heldur...er þetta ekki bara vitleysa? C og D örgjörvar????
Sent: Mið 24. Mar 2004 23:32
af SkaveN
Hef aldrei heyrt þetta
Hef samt heyrt að þriðji hver OEM örri er prufaður.
Sent: Mið 24. Mar 2004 23:37
af gumol
Retail kemur líka með viftu og Heatsinki en ekki OME
Sent: Lau 27. Mar 2004 20:08
af Hlynzi
Ég vil líka benda á að Retail er betri uppá ábyrgð og svona. Með honum fylgir vifta og heatsink. (og fallegar umbúðir, ef það munar 1000 kalli (í flestum tilfellum) þá er það þessi virði að splæsa í Retail.)
En OEM er aðeins örgjörvinn.
Sent: Lau 27. Mar 2004 20:38
af GuðjónR
Ég tek OEM framyfir Retail vegna þess að ég vil velja sjálfur kæliviftuna (Zalman).
Sent: Sun 28. Mar 2004 13:23
af mannzib
Þetta var fróðlegt
Bestu þakkir
Sent: Sun 28. Mar 2004 21:50
af Rednex
Þetta er allveg satt með að OEM séu aðeins prófaðir stök og stök, þ.e.a.s ef að fyrsta stykkið virkar gera þeir 50 stykki og prófa svo aftur sem sagt mikklu meira öryggi í Retail.
Þó að ég velji eitthvað annað heatsink en það sem fylgir með Retail örgjörvum kaupi ég þá samt.
Sent: Mán 29. Mar 2004 15:01
af Nemesis
En það er alveg jafn mikil ábyrgð á OEM - hvers vegna ætti maður ekki að kaupa þá ef þeir eru ódýrari? Ef þeir eru bilaðir (1-2% líkur las ég einhversstaðar) fer maður til söluaðilans og fær annað eintak.
Sent: Þri 30. Mar 2004 15:36
af gnarr
oem og retail eru ekkert bara fyrir örgjörfa.. ég efast um að einhver myndi kaupa td. radeon 9800xt og það væri hreinlega ekki vifta á því, vegna þess að það er oem.