Síða 1 af 1
Intel Centrino ?
Sent: Mán 22. Mar 2004 18:30
af so
Sælir sérfræðingar, getur einhver upplýst mig um hvað Intel Centrino örgjörfin er og hvað hann stendur fyrir. BT er að auglýsa þessa örgjörfa í fartölvum og segja að 1.4 centrino sé "hraðari" en p4 2.4
Er þetta sölubrella eða eitthvað rosalega sniðugt
BTW ég er ekki að fara að versla mér neitt frá BT svo þið getið sparað ykkur bögg um það
Bara forvitinn um málið
Sent: Mán 22. Mar 2004 18:48
af wICE_man
Centrino örgjörvinn er vissulega einhver besti örgjörvi sem Intel hefur framleitt og í vissum tilfellum er 1.4GHz Centrino hraðari en P4 2.4GHz en ég held samt að yfir heildina litið sé P4 örgjörvinn aðeins afkastameiri.
Málið er að centrino tekur miklu minni straum en P4 örgjörvar og því endist rafhlaðan í vélinni uppí tvöfalt lengur sem er gríðarlega mikilvægt fyrir fartölvu. Ég myndi hiklaust mæla með centrino umfram P4 í fartölvu, ef þú vilt á annað borð geta notað hana þar sem ekki er auðveldur aðgangur að rafmagni.
Semsagt, hann er sennilega ekki hraðri en 2.4GHz P4 en er næstum jafn hraður, notar miklu minni straum og hitnar miklu minna.
Sent: Mán 22. Mar 2004 18:49
af elv
Centrino er svona næstum því super P3.Þetta er engin vitleysa þeir gera miklu meiri vinni per megahertz en P4, eru með meira cache og nota minni orku.
Sent: Mán 22. Mar 2004 18:49
af elv
Aðeins of seinn
Sent: Mán 22. Mar 2004 19:11
af wICE_man
sorry elv
Sent: Mán 22. Mar 2004 19:20
af so
Ok gott mál og takk fyrir svörinn. En þá er næsta spurning, er þetta nýtt eða mjög dýrt og af hverju er þá þessi örgjörfi ekki í almennri sölu og móðurborð fyrir hann osfr......
Eða er það kannski á dagskrá
Sent: Mán 22. Mar 2004 19:31
af elv
Þetta er bara fyrir laptop.Og lappa framleiðendur geta ekki bara set Centrino CPU og kallað vélina Centrino hún verðu að vra með WiFi og einhverju örðu hlutum sem ég mann ekki alveg núna til að geta kallað Centrino.Sýiðan eru þeir dýrir 2.4c er mikið ódýrari
Sent: Mán 22. Mar 2004 22:48
af gumol
Intel Chipset, Intel WiFI og svo auðvita Centrino örranum
Sent: Mán 22. Mar 2004 23:10
af wICE_man
....og helst Intel "extreme graphics", já þeir hjá Intel hafa þann ávana að vilja gera allt sjálfir, svipað og microsoft.
Sent: Mán 22. Mar 2004 23:20
af Voffinn
Djöfull get ég verið sammála þér!
Intel Extreme kortið er ekki bara svona frekar slappt ;l heldur sökka driverarnir!
Sent: Mán 22. Mar 2004 23:23
af gumol
Ég var nú að giska á að þessi kort hefðu fylgt með á móðurborðunum sem kaupauki af hálfu Intel, ekkert vit í að borga fyrir að fá þessi kort.
Sent: Þri 23. Mar 2004 00:16
af Vilezhout
ég sá um daginn fyrirtæki sem hýsir netþjóna fyrir klön(semsagt leikja þjóna
) og þeir vildu bara nota p3 örgjörva í dedicated netþjónana enn ekki p4 þarsem þeir eru ekki að skila nægilegum afköstum miðað við verð
Sent: Þri 23. Mar 2004 00:23
af gumol
Vilezhout skrifaði:ég sá um daginn fyrirtæki sem hýsir netþjóna fyrir klön(semsagt leikja þjóna
) og þeir vildu bara nota p3 örgjörva í dedicated netþjónana enn ekki p4 þarsem þeir eru ekki að skila nægilegum afköstum miðað við verð
No offence en meðal CS'arinn er ekki beint að stíga í vitið. (skemmtilega orðað?
)
Sent: Þri 23. Mar 2004 09:44
af wICE_man
Það sama má segja um meðal innherjann hér á vefnum
Nei ég er bara að gera grín
Sent: Mið 24. Mar 2004 21:35
af mannzib
Sá sem spyr er heimskur í stutta stund en sá sem ekki spyr er heimskur alla ævi
Þetta var djúpt hjá mér
Sent: Mið 24. Mar 2004 22:30
af Buddy
Ég held að þessir menn sem voru að nota Centrino örgjörfa fyrir servera séu líka að gera það vegna þess að þeir þurfa ekki að kaupa jafn mikið af rafmagni og ef þeir notuðu P4. Menn eru farnir að líta til Íslands með að geyma fyrir sig servera sem þurfa mikið rafmagn vegna þess að hér er það umhverfisvænt og ódýrt.
Sent: Mið 24. Mar 2004 23:38
af gumol
Buddy skrifaði:Ég held að þessir menn sem voru að nota Centrino örgjörfa fyrir servera séu líka að gera það vegna þess að þeir þurfa ekki að kaupa jafn mikið af rafmagni og ef þeir notuðu P4. Menn eru farnir að líta til Íslands með að geyma fyrir sig servera sem þurfa mikið rafmagn vegna þess að hér er það umhverfisvænt og ódýrt.
Það er nú eginlega farið að verða bannað að gera virkjanir hérna
Alltaf svaka mótmæli (er ekki að tala um kárahnjúkavirkjun)
Sent: Sun 28. Mar 2004 15:25
af FrankC
Minn Centrino 1.4 lappi er yfirleitt að vinna hraðar en 2.4 800fsb tölvan mín... Er það ekki rétt hjá mér að það sé ekki hægt að tengjast þráðlaust á netið nema með Win XP pro? Sá nefnilega Centrino vélar til sölu e-sstaðar með XP home, undarlegt...
Sent: Sun 28. Mar 2004 15:42
af gumol
FrankC skrifaði:... Er það ekki rétt hjá mér að það sé ekki hægt að tengjast þráðlaust á netið nema með Win XP pro? ...
Nei, ekki rétt hjá þér
Sent: Þri 30. Mar 2004 15:28
af gnarr
það er meiraðsegja hægt að tengjast þráðlausu neti með win 3.11
Sent: Þri 30. Mar 2004 16:05
af Snorrmund
gnarr skrifaði:það er meiraðsegja hægt að tengjast þráðlausu neti með win 3.11
Er það? Snilld! s.s. þarf ekkert nema kort og drivera..
Sent: Þri 30. Mar 2004 16:07
af gnarr
já, bara kort og drivera.. en ég efa að öll þráðlaus kort styðji 3.11