Síða 1 af 2
Setja saman tölvu? (mín fyrsta)
Sent: Fös 31. Des 2010 03:50
af ViktorS
Er að hugsa um að kaupa mér mína fyrstu borðtölvu og væri til í að fá álit og hugmyndir í hana, er að hugsa í amd vegna þess að amd setup er einfaldlega ódýrara. Ég get fengið alla íhluti senda frá USA sem gerir þetta ódýrara en kannski versla ég smávörur eins og HDD á Íslandi þar sem vsk og sendingarkostnaður gerir svona smávörur bara dýrari.
Svona er hugmyndin:
Tölvukassi : Cooler Master HAF 922
Aflgjafi : Corsair HX650
Móðurborð : ASUS M4A89GTD ->
http://www.newegg.com/Product/Product.a ... -_-ProductÖrgjörvi : AMD Phenom X6 1090T 3,2Ghz
Örgjörvakæling : Einhver sem kælir vel og er hljóðlát, Scythe Mugen 2 er pæling.
Vinnsluminni : Corsair XMS3 4GB 1600Mhz ->
http://www.newegg.com/Product/Product.a ... 6820145260Skjákort : AMD Radeon HD6870 1GB
Harður diskur : Samsung Spinpoint F3 1TB
Geisladrif : Einhver basic dvd reader/writer
Held að þessi aflgjafi ætti að nægja, en er hann hljóðlátur?
Endilega komið með ykkar skoðun
Re: Setja saman tölvu? (mín fyrsta)
Sent: Fös 31. Des 2010 04:13
af Hvati
Þessi aflgjafi er líklega nóg fyrir þessa tölvu, en ef þú ætlar mögulega að bæta við öðru 6870 í framtíðinni þá er líklega betra að vera með aðeins öflugari aflgjafa.
Annars er þetta nokkuð solid, ég er búinn að vera að íhuga svipað setup
EDIT: Þetta móðurborð er með innbyggðu skjákorti sem þú munt líklega ekki nota, ég myndi reyna að finna eitthvað annað móðurborð.
Re: Setja saman tölvu? (mín fyrsta)
Sent: Fös 31. Des 2010 04:45
af Plushy
Frekar solid bara
Myndir fullkomna með SSD Disk undir stýrikerfið og nokkra leiki.
Re: Setja saman tölvu? (mín fyrsta)
Sent: Fös 31. Des 2010 06:10
af ViktorS
Plushy skrifaði:Frekar solid bara
Myndir fullkomna með SSD Disk undir stýrikerfið og nokkra leiki.
Já myndi gera það seinna, ætla að reyna að halda kostnaði í lágmarki til að byrja með og fá mér kannski ssd í sumar.
Hvati skrifaði:Þetta móðurborð er með innbyggðu skjákorti sem þú munt líklega ekki nota, ég myndi reyna að finna eitthvað annað móðurborð.
Skiptir það einhverju máli? Get ég ekki bara ignorað það og notað HD6870 ?
Re: Setja saman tölvu? (mín fyrsta)
Sent: Fös 31. Des 2010 06:25
af GullMoli
ViktorS skrifaði:Hvati skrifaði:Þetta móðurborð er með innbyggðu skjákorti sem þú munt líklega ekki nota, ég myndi reyna að finna eitthvað annað móðurborð.
Skiptir það einhverju máli? Get ég ekki bara ignorað það og notað HD6870 ?
Jú, þú skalt ekkert spá í þessum innbyggðu skjákortum, lang flest ef ekki öll móðurborð í dag eru með þau. Þú plöggar bara skjákortinu í og pælir ekkert í þessu sem er á móðurborðinu.
Re: Setja saman tölvu? (mín fyrsta)
Sent: Fös 31. Des 2010 10:18
af Hnykill
Það er oft gott að hafa eitthvað innbyggt skjákort á borðinu. hef lent í því oftar en einu sinni að skjákort fari hjá mér, og þá er gott að geta fært bara skjátengið í annað port og tékkað á þessu
Re: Setja saman tölvu? (mín fyrsta)
Sent: Fös 31. Des 2010 10:36
af nesso
Re: Setja saman tölvu? (mín fyrsta)
Sent: Lau 01. Jan 2011 20:11
af ViktorS
er ekki allt í lagi að byrja á stock örgjörvaviftunni og fá mér svo nýja seinna og skipta þá um kælikrem og viftu ? annars hvaða örgjörvaviftum mælið þið með?
Re: Setja saman tölvu? (mín fyrsta)
Sent: Lau 01. Jan 2011 21:12
af Raidmax
þessar viftur sem erum með örgjörvunum eru oftast alveg nóg og það fylgir alltaf kælikrem með viftunum eða gerði það, það væri kannski gott að setja smá kælikrem ef þú færð þér nýja. Ef þér finnst það ekki vera nóg þá mæli ég með þessari
http://www.buy.is/product.php?id_product=972 bæði fáranlega nett og mjög góð !
Re: Setja saman tölvu? (mín fyrsta)
Sent: Lau 01. Jan 2011 21:31
af Eiiki
Ég myndi frekar setja upp fyrir Intel örgjörva, þannig annað móðurborð og örgjörva... jafnvel i7 950, fá sér síðan betri kælingu... jafnvel vatns og fara síðan í smá overclock
. Held það væri smá performance munur þar á, svo væri solid að fá sér SSD disk fyrir stýrikerfi og leikina
Re: Setja saman tölvu? (mín fyrsta)
Sent: Lau 01. Jan 2011 23:17
af ViktorS
Eiiki skrifaði:Ég myndi frekar setja upp fyrir Intel örgjörva, þannig annað móðurborð og örgjörva... jafnvel i7 950, fá sér síðan betri kælingu... jafnvel vatns og fara síðan í smá overclock
. Held það væri smá performance munur þar á, svo væri solid að fá sér SSD disk fyrir stýrikerfi og leikina
veit alveg að i7 setup er betra en það er líka mikill peningamunur á
Raidmax skrifaði:þessar viftur sem erum með örgjörvunum eru oftast alveg nóg og það fylgir alltaf kælikrem með viftunum eða gerði það, það væri kannski gott að setja smá kælikrem ef þú færð þér nýja. Ef þér finnst það ekki vera nóg þá mæli ég með þessari
http://www.buy.is/product.php?id_product=972 bæði fáranlega nett og mjög góð ! :
já set kælikremið og stock viftuna fyrst en svo þegar ég fæ mér nýja viftu þá skipti ég um kælikrem
en er þessi V8 hljóðlát ?
Re: Setja saman tölvu? (mín fyrsta)
Sent: Lau 01. Jan 2011 23:22
af SolidFeather
Frekar kúl setup.
Ég myndi þó frekar taka 2 minni harðadiska, t.d. 500GB, og hafa stýrikerfi á einum og data á hinum. En ef þú átt flakkara eða eitthvað svipað þá er það kannski óþarfi.
Re: Setja saman tölvu? (mín fyrsta)
Sent: Sun 02. Jan 2011 01:15
af Raidmax
nei hún er ekki alveg silence en samt ekki eins og vera á tónleikum.
Re: Setja saman tölvu? (mín fyrsta)
Sent: Sun 02. Jan 2011 01:33
af Eiiki
ViktorS skrifaði:Eiiki skrifaði:Ég myndi frekar setja upp fyrir Intel örgjörva, þannig annað móðurborð og örgjörva... jafnvel i7 950, fá sér síðan betri kælingu... jafnvel vatns og fara síðan í smá overclock
. Held það væri smá performance munur þar á, svo væri solid að fá sér SSD disk fyrir stýrikerfi og leikina
veit alveg að i7 setup er betra en það er líka mikill peningamunur á
Ég vill benda þér á að þú sparar tæplega 9 þúsund kall á AMD 1090T og Intel i7 950. Sá munur myndi margborga sig
Re: Setja saman tölvu? (mín fyrsta)
Sent: Sun 02. Jan 2011 01:44
af ViktorS
Eiiki skrifaði:ViktorS skrifaði:Eiiki skrifaði:Ég myndi frekar setja upp fyrir Intel örgjörva, þannig annað móðurborð og örgjörva... jafnvel i7 950, fá sér síðan betri kælingu... jafnvel vatns og fara síðan í smá overclock
. Held það væri smá performance munur þar á, svo væri solid að fá sér SSD disk fyrir stýrikerfi og leikina
veit alveg að i7 setup er betra en það er líka mikill peningamunur á
Ég vill benda þér á að þú sparar tæplega 9 þúsund kall á AMD 1090T og Intel i7 950. Sá munur myndi margborga sig
svo þarf ég dýrara móðurborð, dýrara vinnsluminni.. þetta fer alltaf hækkandi
Re: Setja saman tölvu? (mín fyrsta)
Sent: Sun 02. Jan 2011 01:49
af Raidmax
já það borgar sig bæði fyrir leikja spilun og endingu !
erum að tala um svona 15-20k hækkun það er nú engin brjálaður munur á verðinu á AMD og Intel
Re: Setja saman tölvu? (mín fyrsta)
Sent: Sun 02. Jan 2011 02:02
af Eiiki
Raidmax skrifaði:já það borgar sig bæði fyrir leikja spilun og endingu !
erum að tala um svona 15-20k hækkun það er nú engin brjálaður munur á verðinu á AMD og Intel
x2 you heard the man
Re: Setja saman tölvu? (mín fyrsta)
Sent: Sun 02. Jan 2011 06:33
af ViktorS
hvað um:
Tölvukassi : Cooler Master HAF 922
Aflgjafi : Corsair HX750
Móðurborð : ASUS Rampage III Gene ->
http://www.newegg.com/Product/Product.a ... 6813131658Örgjörvi : Intel i7 950
Vinnsluminni : Mushkin Blackline 6GB 1600Mhz ->
http://www.newegg.com/Product/Product.a ... 6820226028Skjákort : EVGA GeForce GTX470
Harður diskur : Samsung Spinpoint F3 1TB
?
Re: Setja saman tölvu? (mín fyrsta)
Sent: Sun 02. Jan 2011 06:39
af Glazier
Engin kæling á örrann, eða geisladrif ?
Annars lúkkar þetta bara nokkuð solid vél..
Myndi reyndar taka SSD þegar maður er nú á annað borð að fá sér svona góða vél.
Re: Setja saman tölvu? (mín fyrsta)
Sent: Sun 02. Jan 2011 13:46
af BjarkiB
Glazier skrifaði:Engin kæling á örrann, eða geisladrif ?
Annars lúkkar þetta bara nokkuð solid vél..
Myndi reyndar taka SSD þegar maður er nú á annað borð að fá sér svona góða vél.
Gæti ekki verið meira sammála.
Þú finnur aldrei jafn mikinn afkastamun með að fá sér betri örgjörva, skjákort o.s.fv og fá sér SSD-disk.
Re: Setja saman tölvu? (mín fyrsta)
Sent: Sun 02. Jan 2011 20:14
af ViktorS
Tiesto skrifaði:Glazier skrifaði:Engin kæling á örrann, eða geisladrif ?
Annars lúkkar þetta bara nokkuð solid vél..
Myndi reyndar taka SSD þegar maður er nú á annað borð að fá sér svona góða vél.
Gæti ekki verið meira sammála.
Þú finnur aldrei jafn mikinn afkastamun með að fá sér betri örgjörva, skjákort o.s.fv og fá sér SSD-disk.
Ætla frekar að fá mér ssd í sumar þegar ég fæ meiri pening. Svo var þetta bara það sem ég fæ frá USA fyrir utan hdd sem ég kaupi örugglega á Íslandi, þýðir ekkert að fá sér smávörur þaðan eins og kælingu, hdd og diskadrif.
Re: Setja saman tölvu? (mín fyrsta)
Sent: Mán 03. Jan 2011 13:40
af ingisnær
þetta er allt fint ég segi nú bara gangi þér vel viktor!!!!...
Re: Setja saman tölvu? (mín fyrsta)
Sent: Fim 20. Jan 2011 23:55
af ViktorS
yo ætla að vekja þráðinn upp aftur af því að skoðun mín er gjörsamlega breytt eftir sandy bridge og vil fá ykkar skoðun á þessu. Ef mér lýst á allt þetta eða breyti til þá kaupi ég tölvuna.
Örgjörvi : Intel core i5 Sandy Bridge 2500K - Öflugur og nægir fyrir mig þar sem ég er aðallega í leikjunum og hann hefur performað stundum betur en 2600K í sumum leikjum.
Skjákort : EVGA GTX470 - Öflugt og kostar í kringum það sem ég er til í að borga fyrir skjákort en hef heyrt að það sé heitt (en þoli hitann?) og hávært?
Móðurborð : ASUS P8P67 LE LGA 1155 Intel P67 -
http://www.newegg.com/Product/Product.a ... 6813131687 - Styður allt sem ég þarf (er eiginlega sama um SLI)
Vinnsluminni : Corsair Dominator GT (2x2GB) 1866mhz - Hef lesið um að þau séu góð og hröð minni en viftan sé hávær og flestir sem overclocka minnin ekki taka hana bara af, er það í lagi fyrir minnin? Ætti ég samt kannski að taka bara Mushkin (Blackline eða Redline) eða Corsair Dominator 1600mhz og láta það nægja mér?
Með fyrirfram þökkum.
-Viktor
Re: Setja saman tölvu? (mín fyrsta)
Sent: Fös 21. Jan 2011 00:06
af HelgzeN
fáðu þér bara 980x og 5970 í sli og þú ert good to go..
Re: Setja saman tölvu? (mín fyrsta)
Sent: Fös 21. Jan 2011 00:10
af MatroX
HelgzeN skrifaði:fáðu þér bara 980x og 5970 í sli og þú ert good to go..
verst hvað 2600k er að taka hann og 2600k er 100k ódýrari hehe