Síða 1 af 1

200gb WD ARGH!

Sent: Mið 17. Mar 2004 03:21
af Blublu
Ég er með 200 gb Westerd Digital disk, og hann hefur ekki látið vel. Strax fyrsta daginn ætlaði ég að afrita fullt af gögnum á hann, þannig að ég setti það bara í gang og fór svo að gera eitthvað annað.

Þegar ég kom aftur þá vöru öll gögnin á nýja disknum búin að FOKKAST UPP. Ég minntist þess að ég var nýbúinn að setja Windows 2000 upp og ekki búinn að taka af stillinguna um að slökkva á hörðu diskunum til að spara rafmagn. Þannig að ég hélt bara jájá, heimska windowsið hefur örugglega slökkt í disknum á meðan það var verið að afrita á hann eða eitthvað svoleiðis. Ég formattaði diskinn aftur og hann virkaði fínt í bili.

Um tveim mánuðum seinna þá gerðist þetta aftur, og þá hélt ég að líklega væri ég ekki með nógu öflugan aflgjafa í tölvunni. Fékk ég mér nýjan 400w, formattaði diskinn aftur og allt virtist vera í lagi.

Seinna gerðist þetta aftur og þá var mér nóg boðið, ég fór með diskinn í Tæknibæ og fyrir einhvers konar kraftaverk þá fékk ég nýjan disk. Var ég þá viss um að vandamál mín væru á enda.

En annað kom á daginn, í gær gerðist þetta enn einu sinni á nýja disknum. Ég held núna að þetta sé samblanda af hræðilega vondu filesystemi (FAT32), vondum diski (WD) og heimsku stýrikerfi (Win2000), eða samblanda af vondum diski og of miklum hita (þarf að fá mér betri kælingu). Ég nota FAT32 vegna þess að það er eina filesystemið sem virkar eitthvað að viti bæði í Windows og Linux.

Ég er núna með diskinn í tveimur partitionum, þannig að ef bæði partitionin fokkast upp á sama tíma þá veit ég að það er diskurinn sjálfur, en ég er ekkert voðalega hrifinn af því að þurfa kannski að missa öll gögnin eina ferðina enn. Þannig að ég var að spá hvort einhver hafi lent í svipuðu og viti hvað veldur. Er ég kannski bara FOKKD?

Ég hef átt nokkra aðra harða diska og ég get ekki sagt að ég fari eitthvað rosalega vel með þá en þetta er eini WD diskurinn sem ég á og sá eini sem hefur gefið mér einhver vandræði.

Sent: Mið 17. Mar 2004 23:58
af Deus
hiti hefur skrítin áhrif á harða diska...ryk líka. verslaðu þér bara eitt stk góða og stóra viftu, láttu hana blása á hdd og rykhreinsaðu þetta í leiðinni :) (mæli líka með ntfs *hóst*)

Sent: Fim 18. Mar 2004 12:11
af Tesli
FAT32 is so last tuesday :shock:

Sent: Fim 18. Mar 2004 13:32
af nomaad
Lykilhugtakið hér er 'kæling' (þú viðurkennir það meiraðsegja sjálfur að þú sért ekki með næga kælingu). Það eru svooo margir sem bölva og ragna hverjum einasta hd sem þeir fá í hendurnar og kenna svo framleiðendum um þegar þeir klikka, þegar einföld 80mm vifta blásandi á diskinn hefði hugsanlega getað komið í veg fyrir leiðindi.

Lærdómurinn hér er:
KÆLIÐ HÖRÐU DISKANA YKKAR

Sent: Fös 19. Mar 2004 03:58
af gnarr
hljómar frekar eins og að þú sért með bilað móðurborð eða ide snúru. testaðu að tengja diskinn í annað ide plug á móbóinu með annarri snúru

Sent: Fös 19. Mar 2004 14:08
af Hlynzi
Ég er alltaf að segja að kæling á hörðum diskum sé númer 1. Svo koma örgjörvar, einhverjum fannst þetta svo fyndið að ég ætlaði að over clocka harða diskinn minn :?

en já, kæla betur. IBM deathstar voru mjööög viðkvæmir fyrir hita. Ég átti þannig og hefði ég haft viftu hefði hann verið gangandi enn í dag.

Sent: Lau 20. Mar 2004 15:55
af KinD^
mæli líka með ext3 því þú varst að tala um að fat32 væri eina sem virkaði fyrir bæði... þarft bara lítinn driver fyrir windows til að read/write-a á ext3 :P

Sent: Lau 20. Mar 2004 17:57
af Hlynzi
KinD^ skrifaði:mæli líka með ext3 því þú varst að tala um að fat32 væri eina sem virkaði fyrir bæði... þarft bara lítinn driver fyrir windows til að read/write-a á ext3 :P


Segðu mér nú hvar ég finn þenn driver herra kind, ég er greinilega ekki að nota réttu leitarorðin á google.

Sent: Sun 21. Mar 2004 15:25
af FrankC
ef þú ætlar að fá þér viftu til að blása á diskana mæli ég eindregið með 80mm S1 viftunum úr task, kosta tæpan 2000 kall, heyrist ekkert í þeim (bókstaflega) og fínt loftflæði miðað við það... er með einn 300gb disk sem fór úr 45° í 32° með S1

Sent: Mán 22. Mar 2004 17:12
af pyro
svona í framhaldi af þessu, hvaða forrit gæti ég notað til að mæla hitann á hörðudiskunum mínum?

Sent: Mán 22. Mar 2004 21:50
af Hlynzi
pyro skrifaði:svona í framhaldi af þessu, hvaða forrit gæti ég notað til að mæla hitann á hörðudiskunum mínum?

Hérna færðu SpeedFan