Síða 1 af 1
Fávís kona.... Intel vs. AMD
Sent: Mið 10. Nóv 2010 08:35
af oskarandri
Góðan daginn
Nú langaði mig að spyrja bara forvitnisins vegna varðandi örgjörva. Ég er svosem enginn örgjörva snillingur en alltaf haft skoðun og verið Intel maður..... en maður getur ekki annað en velt því fyrir sér Core i7 Hex core 3.3GHz vs. Phenom II Black Hex core 3.2 GHz. Finnur maður þennan 120.000 kr mun þegar maður sest við tölvuna.... þ.e.a.s. einhverstaðar annarstaðar en í veskinu.... spurningin gæti alveg átt við aðra intel vs. amd örgjörva líka... fór bara að velta því fyrir mér afhverju það er svona klikkaður verðmunur
Kv.
Óskar Andri
Re: Fávís kona.... Intel vs. AMD
Sent: Mið 10. Nóv 2010 09:03
af Benzmann
AMD örgjörvar eru þekktir fyrir að hitna meira, annars sé ég litla ástæðu, ég hef alltaf verið Intel og Nvidia Manneskja
Re: Fávís kona.... Intel vs. AMD
Sent: Mið 10. Nóv 2010 09:36
af Godriel
Ef þú ert mikill tölvukall og uppfærir á minna en 2ja ára fresti held ég að þú finnir engann mun, ég er allavegana alltaf með AMD og hef getað gert allt með því sem intel getur og á sama hraða... bara spurning um að setja þetta rétt saman eftir því hvað þú ætlar að gera í tölvunni
Re: Fávís kona.... Intel vs. AMD
Sent: Mið 10. Nóv 2010 10:04
af Daz
MIðað við
tomshardware þá er i7 860 2.8GZH sambærilegri örgjörvi (s.s. afkastalega).
Í samanburði við
i7 980 þá ertu samt ekkert að fá 3-4x meira performance
(Ég rétt vona að þessi url virki
)
Re: Fávís kona.... Intel vs. AMD
Sent: Mið 10. Nóv 2010 10:23
af chaplin
Vill byrja á því að segja að AMD hitna ekki meira, í sumum fartölvum jú en í borðtölvum, nei.
AMD eru ekki búnir að vera upp á sitt besta síðan Intel gaf út i7 línuna, sjálfur er ég þó mikill AMD maður og hef mikla von á að AMD koma sterkir inn á næsta ári, Dirk Meyer (Steve Jobs of AMD) hefur bjargað fyrirtækinu einu sinni áður og segir hann að AMD séu að fara stökkbreytast á næsta ári.
Í dag er Intel með meira hrátt afl, og eiga AMD í raun enga quad core örgjörva sem eru sambærilegir i7 línunni (920/930/950 etc) og því fáranlegt að bera saman AMD955 á móti i7-950 þar sem það er helmings verðmunur, álíka vitlaust og að bera saman E7400 á móti 1090T.
Ef þú vilt fá öfluga vél á mjög góðu verði að þá hentar AMD oftast best, ef þú vilt fá þvílíkt hrátt afl að þá færi ég Intel.
Re: Fávís kona.... Intel vs. AMD
Sent: Þri 23. Nóv 2010 09:22
af Moldvarpan
AMD x4 örgjörvinn minn er ekki að hitna mikið, hann er með retail viftu, í idle er hann í ca. 39°c og undir miklu álagi í um 54°c.
Re: Fávís kona.... Intel vs. AMD
Sent: Þri 23. Nóv 2010 14:14
af TestType
benzmann skrifaði:AMD örgjörvar eru þekktir fyrir að hitna meira, annars sé ég litla ástæðu, ég hef alltaf verið Intel og Nvidia Manneskja
Það er reyndar þveröfugt, Intel örgjörvarnir er mun heitari, sérstaklega ef þú ert með stock kælinguna.
Re: Fávís kona.... Intel vs. AMD
Sent: Þri 23. Nóv 2010 14:29
af jonrh
Linus Tech Tips
útskýrir þetta ágætlega.
Re: Fávís kona.... Intel vs. AMD
Sent: Þri 23. Nóv 2010 15:21
af vesley
TestType skrifaði:benzmann skrifaði:AMD örgjörvar eru þekktir fyrir að hitna meira, annars sé ég litla ástæðu, ég hef alltaf verið Intel og Nvidia Manneskja
Það er reyndar þveröfugt, Intel örgjörvarnir er mun heitari, sérstaklega ef þú ert með stock kælinguna.
Intel örgjörvarnir þola líka yfirleitt meiri hita.
Re: Fávís kona.... Intel vs. AMD
Sent: Þri 23. Nóv 2010 15:24
af Haxdal
Held að margir gamlir tölvugúrúar hafi myndað sér sterka skoðun á Intel og AMD fyrir mörgum árum og haldið þeim við til dagsins í dag, ég er einn þeirra.
Hef alltaf forðast AMD, þrátt fyrir að ástæðurnar fyrir því séu ekki lengur "issue", svo ég hef alltaf haft Intel í mínum tölvum og ráðlegg ættingjum og vinum að fá sér Intel ef þau geta
.
Re: Fávís kona.... Intel vs. AMD
Sent: Sun 05. Des 2010 14:28
af bulldog
Ég er svona að skoða uppfærslu á komandi mánuðum líklega c.a. mars - apríl eða jafnvel fyrr eftir því hvað það mun kosta. AMD Phenom II X6 1090T Black 3.2 GHz Hex er núna á 35 þús kall á meðan Intel Core i7 980X 3.33GHz Hex Core er á 160 þús. Mér finnst þetta vera rosalegur verðmunur ef það er ekki þeim mun meiri afkastamunur. Ef maður pælir í þessu út frá hvort fer betur með veskið er þá ekki sniðugt að eyða meira í minnið með AMD örgjörvanum í staðinn fyrir að sprengja veskið ? Hvað finnst ykkur ?
Re: Fávís kona.... Intel vs. AMD
Sent: Sun 05. Des 2010 14:36
af ManiO
bulldog skrifaði:Ég er svona að skoða uppfærslu á komandi mánuðum líklega c.a. mars - apríl eða jafnvel fyrr eftir því hvað það mun kosta. AMD Phenom II X6 1090T Black 3.2 GHz Hex er núna á 35 þús kall á meðan Intel Core i7 980X 3.33GHz Hex Core er á 160 þús. Mér finnst þetta vera rosalegur verðmunur ef það er ekki þeim mun meiri afkastamunur. Ef maður pælir í þessu út frá hvort fer betur með veskið er þá ekki sniðugt að eyða meira í minnið með AMD örgjörvanum í staðinn fyrir að sprengja veskið ? Hvað finnst ykkur ?
Er ekki aðal munurinn að Intel örgjörvinn er enthusiast vara ásamt því að vera triple channel og AMD er consumer vara og double channel?
Fyrir venjulegan notanda þá er það klikkun að borga 135þús meira fyrir svipaða vöru. En þegar maður fer út í yfirklukkunarpælingar og min/maxing þá er intel örgjörvinn klárlega sterkari kostur. En aftur, 135 þús kalli meir.
Re: Fávís kona.... Intel vs. AMD
Sent: Sun 05. Des 2010 16:01
af MatroX
bulldog skrifaði:Ég er svona að skoða uppfærslu á komandi mánuðum líklega c.a. mars - apríl eða jafnvel fyrr eftir því hvað það mun kosta. AMD Phenom II X6 1090T Black 3.2 GHz Hex er núna á 35 þús kall á meðan Intel Core i7 980X 3.33GHz Hex Core er á 160 þús. Mér finnst þetta vera rosalegur verðmunur ef það er ekki þeim mun meiri afkastamunur. Ef maður pælir í þessu út frá hvort fer betur með veskið er þá ekki sniðugt að eyða meira í minnið með AMD örgjörvanum í staðinn fyrir að sprengja veskið ? Hvað finnst ykkur ?
Þetta er samt svona eins og að bera saman Ferrari(980x) vs Subaru Imprezu(1090T) afkasta munurinn er sjánlegur í öllum þeim benchmörkum sem maður skoðar t.d hérna
http://www.anandtech.com/bench/Product/146?vs=142 intelinn kemur betur út á alla vegu en ef þú vilt spara þér aðeins þá gætiru farið í i7 970 sem er svona "non-extreme" útgáfa af 980x hann er 6kjarna og aðeins ódýrari en slær samt 1090t við.
Re: Fávís kona.... Intel vs. AMD
Sent: Sun 05. Des 2010 16:17
af bulldog
Intel Core i7 950 3.06GHz Quad Core sem ég fann á vaktin.is á listanum yfir örgjörvanna er quad core en ekki hex core.... er hann til hex core líka ?