Síða 1 af 1

Smá flakkaramál.

Sent: Mið 27. Okt 2010 17:46
af efukt1
Ég á svona 1Tb Seagate flakkara, veit ekki alveg típuna en ég keypti mér svona sjónvarpsflakkara um daginn en það er enginn diskur í honum. Þannig ég hef bara verið að horfa á í gegnum usb. Þannig ég var að spá í að taka diskinn úr Seagate flakkaranum og setja í sjónvarpsflakkarann því þá gæti ég keypt mér 1,5-2Tb disk og sett í Seagate flakkarann en þá fór ég að spá í hvort ég þyrfti að formatta diskinn til þess að setja í sjónvarpsflakkarann? Er með 650+gb af efni inná sem ég vil ómögulega missa.

Vona að þið skiljið þetta :sleezyjoe

Re: Smá hjálp.

Sent: Mið 27. Okt 2010 17:57
af biturk
getum byrjað á að benda þér á

2. gr.

Það á að nota lýsandi titla á nýjum bréfum
dæmi: Titillinn á ekki að vera "Hjálp!" eða "Hvort?" heldur frekar
"Vantar hjálp með fps drop í CS" eða "P4 3.0 GHz eða AMD64 3000+?".


í

http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?f=33&t=6900


síðann ætla ég að segja þér frá því að þú varst að enda við að kaupa hræðilegt flakkara tæki með rosalega leiðinlegt viðmót og skráarkerfi ásamt því að vera ótrúlega þvingað í afspilunarmöguleikum (búnað prófa hann og skilaði því þetta er bara ekki peningana virði þegar þú getur fengið margfalt betri flakkara á svipaðann pening)

næsta skref hjá mér verðu að segja þér að fara bara og kaupa þér 3,5 harðan disk eins og þig langar í
tengja hann í sjónmvarpsflakkarann, færa öll gögn í nýja flakkarann af 1 TB seagate

setja 1TB seagate í sjónvarpsflakkarann og formata hann þar (man ekki hvort það er hægt í flakkranum sjálfum í gegnum sjónvarp, athugaðu það í settings þegar þú kveikir á honum)
færa öll gögnin yfir og formata nýja diskinn til að hafa hann alveg hreinan fyrir ný gögn

minnsta málið og ert ekkert svo lengi að þessu!

Re: Smá hjálp.

Sent: Mið 27. Okt 2010 18:02
af efukt1
Takk fyrir skjótt svar!

Já ég er alveg sammála þér með að þessi flakkari sé frekar slappur, skráarkerfið er algjör hörmung.

Ætla reyna þetta.