Síða 1 af 1
Ati 9600pro / FX5900XT
Sent: Fim 26. Feb 2004 12:51
af gummso
Halló halló..
Hvað segja snillingarnir ..
Hvort kortið er betra..
Sent: Fim 26. Feb 2004 13:11
af wICE_man
9600Pro er miklu betra, kíktu bara á benchmarks og athugaðu að lélegasta 5600 kortið sem er sýnt þarna gengur á 325/550MHZ core/mem meðan að 5600XT gengur á skitnum 235/400MHz core/mem ef ég man rétt. Þú getur rétt ímyndað þér hvílík sóun á peningum það kort er!
http://www6.tomshardware.com/graphic/20031229/vga-charts-03.html
Good luck.
Sent: Fim 26. Feb 2004 13:28
af gummso
Sælir wICE_man..
Já.. ég er nokkuð viss um að FX5600 er mun lélegra en 9600pro
Þess vegna var ég að spá í mun á FX5900xt og 9600pro
Reyndar er FX 5900xt aðeins dýrara en 9600pro en það munar ekki öllu.
kv
gummso
Sent: Fim 26. Feb 2004 14:37
af Predator
Hjá ATI þýðir XT það besta en hjá Nvidia er það lélegast svo er ATI með miklu betri DX9 vinnslu en Nvidia svo ég mundi taka ATI kortið.
Sent: Fim 26. Feb 2004 14:55
af gumol
Sent: Fim 26. Feb 2004 15:01
af wICE_man
úps sorry, ég las þetta 9 öfugt
5900XT kortið er skásta XT kortið og gefur betri afköst en 9600XT en það er líka dýrara, ég myndi segja að þetta séu hvort tveggja bestu kortin á sínu sviði, radeon kortið í kringum 15.000 kallinn en Geforce kortið í kringum 25.000 kall. Þú getur séð benchmarks fyrir bæði kortin á þræðinum sem ég setti í fyrri póstinum.
Sent: Fim 26. Feb 2004 15:03
af gummso
Takk fyrir góð svör, og rök..
Það sem ég var nefnilega að spá..
FX5900 er stærsti chipinn frá Nvidia og þó svo ég sé hrifinn af
ATI þá eru FX5900XT í raun FX5900, bara niðurckockað.
Þannig að það er örugglega hægt að keyra þau nokkuð vel upp..
Spara þannig pening en vera samt með geggjað kort..
Aðeins til að hugsa um..
kv
gummso
Sent: Fim 26. Feb 2004 16:01
af elv
Ekki endilega, þó þau séu lægra klukkuð er ekkert sem segjir að það sé sama minni í þeim, oftast eru þessi XT kort með lélegri minni(lægra ns og ódýrari) en stóru kortin svo það er ekki víst að þú klukkir minnið mikið.
Síðan er annað ef þú ert að klukka alla vélina og ert ekki með mobo sem er með PCI/AGP lock þá hafa Nvida korti verið betri að keyra langt úr synci
Sent: Fös 27. Feb 2004 10:27
af gummso
Sælir strákar..
Keypti í gær FX5900XT frá Sparkle á 18þús. ( með smá afslætti )
Clockaði það upp í:
Core = 452 ( var 380 )
Memory = 902 ( var 680 )
Semsagt kominn upp í sama og FX5900Ultra.
Er með 2.6G P4 ( er í 2.9Gig ) og 2X256 ddr400 ( reyndar ódýrt minni )
Samsung SATA 160Gig 2stk
Keyrði 3dMarks 2001SE og náði 12799
Er það ekki bara nokkuð gott..
Það væri gaman að setja flott minni í .. (t.d. 2 x Kingston 512 433Mhz)
Prófa það næst.
kv
gummso
Sent: Fös 27. Feb 2004 10:33
af elv
Nokkuð góð klukkun hjá þér, til hamingju.
Hvar keyptir þú kortið
Sent: Fös 27. Feb 2004 10:47
af kiddi
Gummso ég vil ekki vera leiðinlegur, en þú ættir að ná aðeins hærra skori en þetta í 3DMark2001SE, ég fékk 11.000 stig með P4 2.4/533, DDR333 & Geforce Ti4200, félagi minn náði 12.500 með P4 2.53/533 & Ti4400. Eftir að ég fékk mér Radeon9800XT kort í þessa P4 2.4/533 vél, þá slefaði ég upp í 15.000 stig...
Sent: Fös 27. Feb 2004 12:23
af gummso
Nei nei.. ekki vera leiðinlegur .. .hehe
Ég var búinn að prófa TI4400 og náði þá 9400 í 3D marks2001SE.
Er reyndar að nota Default stillingar á 3Dmarks.
Er ekki hægt að boosta þetta upp með að breyta stillingum ??
Alla vega þá er ég ánægður með overclock ið á þessu korti.
Er að nota orginal viftu og kæliplötu og hún er svona rétt að volna.
Á eftir að clocka betur..
kv
gummso
Sent: Fös 27. Feb 2004 12:51
af gumol
Afhverju ertu að nota 3Dmark 2001 SE?
3DMark03 ætti að segja betur til um getu tölvunnar í nýum leikjum.
En til að hafa sangjarnan samanburð verður nátturlega að nota default stillingarnar.
Sent: Fös 27. Feb 2004 12:53
af gummso
Takk fyrir það...
Prófa það...
kv
gummso