Síða 1 af 1

Skjárinn er fjölublár

Sent: Fim 02. Sep 2010 15:27
af birgirdavid
Sælir það er einhvað vesen með annan skjáinn hjá mér sko ég er með tvo skjái tengda ég nota einn fyrir svona aðalskjá og svo annan sem svona auka og hann er fjólublár, ég er búinn að prufa að slökkva og kveikja á tölvunni þetta fjólubláa er enn þá og ég er líka búinn að prufa að tengja skjáinn við aðra tölvu og það virkaði vel það kom ekkert fjólublátt svo þetta er örugglega einhvað í stillingunum í tölvunni.
Svo veistu hvað er að ?

Re: Skjárinn er fjölublár

Sent: Fim 02. Sep 2010 15:32
af Gúrú
Er ég retarded eða er einn pinninn í VGA/DVI ekki að skila sér?

Prófaðu að svissa á því hvernig skjáirnir tengjast við tölvuna eða tengja skjáinn sem virkar í tengið sem að þú notar fyrir aukaskjáinn.

Re: Skjárinn er fjölublár

Sent: Fim 02. Sep 2010 15:37
af birgirdavid
já gæti verið sko .. en það getur samt eiginlega ekki verið því að þegar að ég tengdi skjáinn við aðra tölvu þá notaði ég sömu snúruna sko
heyrðu ég er búinn að prufa það .. en það gerist ekkert, alveg það sama :S

Re: Skjárinn er fjölublár

Sent: Fim 02. Sep 2010 16:36
af Gúrú
Kuldabolinn skrifaði:já gæti verið sko .. en það getur samt eiginlega ekki verið því að þegar að ég tengdi skjáinn við aðra tölvu þá notaði ég sömu snúruna sko

Með því að útiloka einungis snúruna og skjáinn hefurðu ekki lokið því að útiloka annað skjákortstengið ;)

Re: Skjárinn er fjölublár

Sent: Fim 02. Sep 2010 17:11
af birgirdavid
Gúrú skrifaði:
Kuldabolinn skrifaði:já gæti verið sko .. en það getur samt eiginlega ekki verið því að þegar að ég tengdi skjáinn við aðra tölvu þá notaði ég sömu snúruna sko

Með því að útiloka einungis snúruna og skjáinn hefurðu ekki lokið því að útiloka annað skjákortstengið ;)

já meinar sko ég var bara núna fyrir svona 2 mínútum að tjékka skjákortið og skjákortstengið og ég sé ekki neitt að það væri einhver beiglaður pinni eða einhvað svoleiðis btw tók skjákortið úr og það er enn svona :hnuss

Re: Skjárinn er fjölublár

Sent: Fim 02. Sep 2010 19:01
af birgirdavid
prufaði líka að update-a skjákortið en þetta er enn fjólublátt :(

Re: Skjárinn er fjölublár

Sent: Fim 02. Sep 2010 21:21
af dori
En varstu búinn að prufa að skipta um port? S.s. tengja skjáinn sem þú notar venjulega í portið sem lætur skjáinn verða fjólubláann og tengja fjólubláa skjáinn í hitt tengið.

Re: Skjárinn er fjölublár

Sent: Fim 02. Sep 2010 22:35
af birgirdavid
jább verður enn þá fjólublátt
þetta er svo skrítið er búinn að taka skjákortið úr og setja það aftur í, uppfæra í nýjasta driverinn,skipta um port, reseta allar stillingarnar í skjánum svo þetta hlýtur að vera einhverjar stillingar í tölvunni held að ég þarf bara að formata tölvuna því að skjárinn kemur ekki svona í annari tölvu :S

Re: Skjárinn er fjölublár

Sent: Lau 04. Sep 2010 15:32
af birgirdavid
enginn ?

Re: Skjárinn er fjölublár

Sent: Lau 04. Sep 2010 17:50
af birgirdavid
eða nei skjárinn er svona ljós bleikur :S

Re: Skjárinn er fjölublár

Sent: Lau 04. Sep 2010 17:53
af Ripper
Prófaðu að færa kapalinn úr skjánum sem virkar beint í þann sem er í rugli og hafa bara þann skjá tengdan.

en hvernig byrjaði þetta annars hjá þér? ekkert að fikta í stillingum? hefur þetta verið að virka og gerist svo í miðri notkun eða?

Kemur myndin líka fjólublá strax í ræsingu?

Re: Skjárinn er fjölublár

Sent: Lau 04. Sep 2010 17:59
af birgirdavid
okei ég prufa það ;)
sko ég veit nú eiginlega ekki hvernig þetta byrjaði en ég held að það gæti verið útaf því að ég var að stinga lyklaborðinu eða einhvað í samband og svo hef ég kannski óvart ýtt á skjásnúruna og þetta orðið bleikt og nei ég var ekki að fikta í stillingunum, en er samt búinn að reyna að fikta í stillingunum til að fá réttu litina en ekkert virkar. Já skjárinn hefur alltaf virkað er meiri segja búinn að tengja skjáinn við aðra tölvu og það virkar alveg vel þá koma réttu litirnir svo ég held að þetta séu einhverjar stillingar í tölvunni en ég veit ekki

Re: Skjárinn er fjölublár

Sent: Lau 04. Sep 2010 18:05
af birgirdavid
heyrðu þetta virkaði það sem þú sagðir mér að gera svo þetta er örugglega snúran sko
ég prufaði svo að tengja aðal skjáinn við sem var með snúruna frá auka skjánum og núna er aðal skjárinn bleikur :S

Re: Skjárinn er fjölublár

Sent: Lau 04. Sep 2010 18:19
af birgirdavid
heyrðu þetta er komið ætlaði að fara að flokka allar snúrur sem koma frá tölvunni og svo hætti ég við því sá að allar snúrur voru ekki flæktar eða einhvað svo ég ýtti tölvunni alveg upp við vegginn og þá kom þetta allt í einu haha ;)