Síða 1 af 1

Sjónvarpskortakaup

Sent: Mán 16. Feb 2004 16:27
af Hlynzit
Daginn.
Ég er að fara að kaupa mér sjónvarpskort en getur einhver sagt mér hvaða kort er gott/best :8) Helst að vera góð gæði og allt það sko :)
gefa mér link

takk takk

Sent: Mán 16. Feb 2004 17:33
af Morgan.is
sælir,ekki kaupa þér Pinnacle Rave með Rauðu borði,tunerinn í kortinu styður ekki forritinn sem við vitum að þú ætlar að nota,ég keypti Jetway,virkar ok...en er ekki allveg nógu sáttur við það :cry:

Sent: Mið 18. Feb 2004 09:35
af DJ
Hvar eru málfræðingarnir nú? Vill enginn gera athugasemd við "góð gæði" :)

Sent: Mið 03. Mar 2004 13:35
af Skippo
DJ skrifaði:Hvar eru málfræðingarnir nú? Vill enginn gera athugasemd við "góð gæði" :)


Nú! þykist þú vita hvað eru "góð gæði"? Þú ert þá sá eini sem ég veit um sem getur skilgreint "gæði" fyrir okkur hina. Ég persónulega myndi skilgreina gæði sem eitthvað sem uppfyllir allar mínar væntingar, sem væntanlega eru ekki þær sömu og þínar...

Þannig að góð gæði hljóta að uppfylla allar hans væntingar, býst ég við!!

Sent: Mið 03. Mar 2004 16:12
af Arnar
Góð gæði er rangt.

Þú segir mikil/lítil gæði.

Svoleiðis er bara íslenskan, spurðu íslensku kennarann þinn afhverju :)