Síða 1 af 1
Ýskur í skjám
Sent: Fim 17. Jún 2010 13:28
af Danni V8
Ég er með 2 Acer skjái hérna heima, annar er AL2017 20" 4:3 skjár hinn er AL1916W 19" 16:10. Ég nota annan, bróðir minn hinn.
Í þeim báðum þá kemur alveg svakalega hávært og óþolandi ýskur þegar það er slökkt á þeim. Ef það er kveikt á þeim þá heyrist ekki bofs í þeim. Ég er farinn að taka minn skjá úr sambandi á nóttunni til að geta sofið.
Er þetta merki um að þeir eru að gefa sig eða eru þeir bara svona mikið drasl?
Re: Ýskur í skjám
Sent: Fim 17. Jún 2010 13:44
af BjarniTS
Er þetta
High Pitch SoundSjálfur átti ég sjónvarp sem var svona , það sögðu allir að það væru spennarnir eitthvað að losna eða álíka , en ég myndi bara fara með þetta í viðgerð.
Re: Ýskur í skjám
Sent: Fim 17. Jún 2010 18:06
af Sphinx
gerist þegar eg slekk á tölvuni minni i aflgjafanum alveg svaðalega óðolandi að sofna við þetta þarft alltaf að slökkva a aflgjafanum
Re: Ýskur í skjám
Sent: Fim 17. Jún 2010 18:12
af vesley
ég átti 16:10 20" Acer Al20 seríu, fékk alveg eins svona high-pitched ýskur þegar ég var nýbúinn að kveikja á skjánum, þetta féll undir ábyrgð hjá mér.
Re: Ýskur í skjám
Sent: Fim 17. Jún 2010 19:04
af kazgalor
Danni mannstu á laninu,hátíðnihljóðið í stóra 30" skjánum hans össa? Þetta er hljóð í þéttunum og mér hefur verið sagt að þetta sé ekki merki um að skjárinn sé að gefa sig. Mér er ekki ljóst nákvæmlega hvað þetta þýðir varðandi líftíma og annað, né heldur nákvæmlega afhverju þetta er, en ég er sannfærður um að þetta sé ekkert til að hafa áhyggjur af, þó svo að þetta geti verið þreytandi.
Varðandi að taka skjáina úr sambandi, ath hvort það sé svona on/off takki aftaná skjánum ykkar, það sparar allavega vesenið að rífa snúruna úr. Einning er hægt að fá sér fjöltengi með on/off takka.
Re: Ýskur í skjám
Sent: Fim 17. Jún 2010 19:11
af Gúrú
kazgalor skrifaði:Danni mannstu á laninu,hátíðnihljóðið í stóra 30" skjánum hans össa? Þetta er hljóð í þéttunum og mér hefur verið sagt að þetta sé ekki merki um að skjárinn sé að gefa sig
Túban hennar ömmu sem hefur haft þetta hljóð í ca 7 ár núna staðfestir eiginlega að þetta er ekki merki um að skjárinn sé að gefa sig
Re: Ýskur í skjám
Sent: Fim 17. Jún 2010 19:11
af Glazier
Þegar ég sá þennan þráð fyrst í dag um 2 leytið.. byrjaði að lesa innihaldið og las þetta "Ég er með 2 Acer skjái" og án þess að hugsa út í það þá ýtti ég strax á back.