Síða 1 af 1
Tölvan Dauð.
Sent: Sun 01. Feb 2004 03:07
af aRnor`
Jæja, ég veit nú ekki beint hvert maður á að senda svona, né hvernig Titillinn ætti að vera.
En jæja í gær kvöldi fer ég að sofa og slekk ekki neitt á tölvunni. Svo þegar ég vakna í hádeginu sé ég að slökkt
er á tölvunni, og kemst að því að enginn hérna heima slökkti á henni. Þannig ég þrýsti á power takkann en ekkert
gerist og ég reyni að komast til botns hvað
sé að og dreg þá ályktun að það sé aflgjafinn. Ég ríf öll tengi úr sambandi sæki gamla aflgjafann en hann er ekki
með p4 tengi. Og tengi hann í móðurborðið og harði diskana og allt keyrir í gang.
Svo skíst ég með aflgjafann uppí task og þeir prófa hann rétt sem snöggvast og láta mig vita 5 míntútum seinna
að hann hafi verkað full komnlega hjá þeim. Ég fer heim og
tengi hann aftur í samband og ekkert gerist. Nú ríf ég aftur allt úr
sambandi og tek öll kort úr sambandi, tek örgjörvan úr slottinu og athuga hann.
Því næst tengi ég aflgjafann step by step aftur í þaes ég tengi stóra tengið í móðurborðið og íti á power takkann og allt
snýst í gang, slekk tengi harðidiskana og svoleiðs, uns ég kem að p4 tenginu þá kemur bara eitthverskonar hljóð. en
gefur samt sem áður ekkert rafmagn
(ath. Örgjörva viftan snýst ekki þegar ég íti á takkann.)
Nú væri gott ef einhver gæti sagt mér hvað gæti verið með, áður en ég fer með hana á eitthvert verkstæði.
Sent: Sun 01. Feb 2004 09:21
af elv
Fór allt í gang bara með örran í móðurborðinu,
en ekki með hörðudiskunum, er ég ekki að skilja þetta rétt hjá þér,
þá er lausnin komin.
Komdu með betri specs á vélinni.Það hjálpar
Sent: Sun 01. Feb 2004 15:11
af aRnor`
Vandamálið er það að ef ég tengi p4 tengið og allt hitt klabbið þá kemur
enginn straumur. Svo ef ég ég sleppi því að tengja þetta umtalaða tengi
þá kemur rafmagn og allt byrjar að snúast en tölvan póstar engu á
skjáinn.
MSI 875p NEO FISR2
P4 2.8 ghz
Radeon 9600XT
3x Hdd
2x 512 ddr
Ég er búinn að prufa að taka allt saman úr og setja aftur í.
Sent: Sun 01. Feb 2004 15:22
af Voffinn
Hvað með aflgjafan. Er hann örugglega að ná að höndla öllu þessu í einu?
Sent: Sun 01. Feb 2004 15:32
af aRnor`
Já, ég er líka búinn að prufa annan.
Sent: Sun 01. Feb 2004 17:09
af elv
Hve stórann PSU ertu með og hvað prófarðir þú líka stóran
Sent: Sun 01. Feb 2004 17:21
af aRnor`
þetta er
Þessi, ég prufaði annann 400w. En ég var ekki með alla hörðu diskana né vifturnar í sambandi, þannig þetta er ábyggilega ekki aflgjafinn.
Sent: Sun 01. Feb 2004 17:37
af GuðjónR
Móbóið dautt....
Sent: Sun 01. Feb 2004 17:47
af aRnor`
Ég þarf að redda mér öðrum örgjörva til að komast til botns í þessu.
Sent: Þri 03. Feb 2004 16:23
af aRnor`
Mér finnst alltaf gaman að vita niðurstöðuna úr svona málum.
Og Guðjón hafði rétt fyrir sér
móbóið dautt.
Sent: Þri 03. Feb 2004 16:26
af xtr
Geðveikt happí yfir því
Sent: Þri 03. Feb 2004 16:49
af gnarr
hann fær nýtt.. ég held að hann sé bara happy að vera búinn að finna lausn
Sent: Þri 03. Feb 2004 18:08
af KinD^
hann fær nýtt ?
gefins ? hvar ?
Sent: Þri 03. Feb 2004 18:40
af aRnor`
góða hyrðinum
Nei það er/var í ábyrgð.
Sent: Mið 04. Feb 2004 13:25
af xtr
Arnor þúrt bara rimaskolagengisdrengur
Sent: Mið 04. Feb 2004 16:43
af aRnor`
Og það er stutt eftir
Sent: Mið 04. Feb 2004 17:15
af xtr
já, mæli með borgo .. þá geturu hangið í cs og verið með tölvudellu í friði
Sent: Mið 04. Feb 2004 17:31
af aRnor`
Cs er slappur leikur. En ég er maðurinn sem stefnir á Mr, en ætli borgó sé ekki í vara.
Sent: Mið 04. Feb 2004 18:51
af xtr
Mr er skítugt stuff -_- Hef ekki séð Vidda H frá því um áramótin fyrir það ekkert.. gaurin er alltaf að læra
Sent: Mið 04. Feb 2004 21:20
af aRnor`
ég er nú sífellt að rekast á hann, og var að því fyrir uþb 20 mínútum
Sent: Mið 04. Feb 2004 21:32
af Hrannar
Ég er nú bara hræddur við þig Binni. Þessi hugsunarháttur mun koma þér um koll. <b>MR</b> er fyrir þá sem geta, og umfram allt, vilja læra - En það þýðir ekki að Borgarholtsskóli sé slæmur skóli, hann er mjög víðtækur, þ.e.a.s. tekur inn allt frá slúbbertum upp til „proffa“ ef svo má að orði komast.
En það Binni minn að fara í gegnum framhaldsskóla með því hugarfari að geta hengið í tölvunni fram eftir öllu mun koma þér um koll, eftir rúm þrjú ár (þ.e. ef þú nærð að útskrifast þá) ferðu í háskóla og þá þýðir ekkert að hanga í Counter-Strike.
Og eitt annað, ég mæli með Battlefield - Counter-Strike er orðinn þreyttur
Sent: Mið 04. Feb 2004 21:38
af gumol
Ert þú í MR?
Sent: Mið 04. Feb 2004 21:48
af Hrannar
Nei, ég er enn í grunnskóla - en kannski, já kannski, hugsanlega fer ég í <b>MR</b> seinna á þessu ári, það er allavega planið.
Sent: Mið 04. Feb 2004 22:26
af xtr
Kemur þú með einhverja ritgerð :/ á meðan ég er með yfir 8 þá er ég sáttur svo ég get alveg hángið í cs :I háskóli í cs .. það er nattla stálið
Sent: Fim 05. Feb 2004 01:41
af Vilezhout
Gaman að sjá hvað margir úr Rimaskóla stunda þetta spjallborð enn ég tel að það sé enginn munur á skólunum nema hvaða kröfur þeir gera til nemenda og ég býst ekki við því að stafsetningar og málfræðireglurnar séu betri uppí MR enn í Borgarholtsskóla.
Munurinn á skólunumer helst í því að kröfurnar eru meiri í MR enn Borgarholtsskóli státar af betri aðbúnaði enn MR og þægilegra er fyrir háttvirtan Xtremer að fara þangað enn að þurfa að treysta á strætisvagna til að komast í og úr skólanum og Borgarholtsskóli er í fjölbrautakerfinu og býður uppá meira val í námi og ég hef stundað nám í Borgarholtsskóla og ég get ekki sagt að hann sé neitt verri enn aðrir skólar.
Ég held að menn geti bara ekki tjáð sig um að skólar séu neitt betri enn aðrir þegar þeir hafa ekki prófað þá og leiðinlegt að sjá svona snobb í kringum MR.