Síða 1 af 1

Fartölvuminni spurningar

Sent: Sun 11. Apr 2010 20:46
af Spieluhr
Er með dell vostro 1400 fartölvu með einungis 1gb(2*512mb) minni (win7). Langar helling að stækka minnið helst uppí 4gb. Hef fundið á netinu t.d. dell.com og ebay sérstakt minni fyrir akkurat þessa týpu, stendur allskonar shit (DDR2, SODIMM 800mhz og 200pinna). Hef verið að pæla hvort ég gæti keypt hvaða minni svo lengi sem það er ddr2 sodimm ....... þetta hérna minni t.d. http://www.computer.is/vorur/4270/
Er búinn að opna tölvuna og kíkja á þetta og það er mjög lítið mál að skipta um þetta.
Er málið bara með að ef þú kaupir af dell síðunni þá er það official en hitt er 3rd party???
kthxbye

Re: Fartölvuminni spurningar

Sent: Sun 11. Apr 2010 20:53
af Klemmi
Það eru ágætis líkur á að flest minni gangi í vélina. Held hún sé þó aðeins gefin upp fyrir 667MHz kubba en í flestum tilfellum keyra þeir hraðari sig niður í réttan hraða.
Hins vegar er aldrei hægt að vera 100% viss, svo ég mæli með því að þú semjir við búðina sem þú ákveður að skoða kubba hjá að fá að máta þá í tölvuna og sjá að þeir virki áður en þú kaupir þá :)

Re: Fartölvuminni spurningar

Sent: Sun 11. Apr 2010 21:02
af Spieluhr
takk fyrir fljótt og gott svar, var líka ekki búinn að taka eftir að tölvan styddi bara 667, fannst eins og hún myndi styðja 800, en eins og þú segir þá ætti það ekki að skipta máli ef minnið getur keyrt sig niður.