Síða 1 af 1

TV Flakkara snillingar.

Sent: Mán 15. Feb 2010 20:01
af arnio
Góðann dag, þannig er mál með vexti að það þarf að fjárfesta í TV flakkara á þessu heimili og ég er allveg í köku um hvað ég á að velja þannig ég ætla að spyrja ykkur.

Ég sæki mestallt í HD & Bluray gæðum þannig hann þarf að styðja það, gætu þið bent mér á einhverja sem þið hafið prufað persónulega eða bara heyrt gott um?

Re: TV Flakkara snillingar.

Sent: Mán 15. Feb 2010 20:04
af CendenZ
Án þess að ég tengist buy.is á neinn hátt né langar mig að styrkja þá, þá eru þeir með iomega flakkara sem mér líst persónulega sjálfur á.
Hugsanlega kaupi ég mér slíkann, hann er á um 30 k hjá þeim.

Re: TV Flakkara snillingar.

Sent: Mán 15. Feb 2010 20:34
af andribolla
ég mæli samt með Tvix.
mér fynst það bara vera bestu sjónvarpsflakkararnir.
skemmtileg forritin i þeim

Re: TV Flakkara snillingar.

Sent: Mán 15. Feb 2010 20:55
af Matti21
Efast um að þessi Iomega flakkari spili .mkv skrár, allavega miðað við það sem stendur um hann á buy.is
-
Ég var sjálfur fyrir stuttu að fjárfesta í WDTV Live sem ég er mjög sáttur með. Skipti honum út fyrir Media Portal set-upið sem ég var með. Þægilegt að geta gripið hann með sér til félagana sem eru ekki jafn mikil HD nörd og maður sjálfur.
Hann fæst hjá Buy.is á 25.þús kall
http://buy.is/product.php?id_product=867
Þetta er samt ekki beint sjóvarpsflakkari heldur bara afspilunar græja. Tengir siðan flakkara/USB lykil í þetta eða einfaldara, share-ar bara efninu á tölvunni gegnum LAN. Lennti þó í smá böggi með það í gegnum windows, það dettur helvíti oft út hjá mér. Var þó búinn að lesa um það og bjóst við því. Það er ekkert sem að frí media server forrit eins og Tversity redda ekki.
Skoðaði líka Asus HD spilarann. Hann er svipaður WDTV live en mér skilst að interfaceið sé ekki jafn flott í honum.
http://buy.is/product.php?id_product=737
Var líka aðeins búinn að skoða Xtreamer spilarann.
http://www.xtreamer.net/xtreamer/overview.aspx
Hann er helvíti flottur. Þægilegt interface og eiginlega fleiri möguleikar en WDTV Live spilarinn en í flestum review á netinu var kvartað undan hávaðanum í viftunni í honum svo ég fékk mér WDTV gaurinn í staðinn. Hann er alveg dead silent.
Xtreamerinn fæst í nokkrum búðum. Elkó minnir mig. Getur googlað hann.

Þetta eru án efa ódýrustu valmöguleikarnir til þess að koma HD myndunum þínum á sjónvarpið. Verður að athuga samt að HDMI kapall fylgir aldrei með svo bættu honum við verðið.
Það eru líka til öflugari og flottari græjur í verkið. Popcorn Hour spilararnir eru ótrúlega flottir en þú veður að pannta þá erlendis frá. TVIX M-6500 og 4100 eru líka enn í dag góðir HD spilarar þrátt fyrir aldur.

Re: TV Flakkara snillingar.

Sent: Mán 15. Feb 2010 22:26
af arnio
Þakka fyrir öll svörin, þetta ætti að auðvelda valið hjá mér. : )

Re: TV Flakkara snillingar.

Sent: Mán 15. Feb 2010 22:44
af Legolas

Re: TV Flakkara snillingar.

Sent: Þri 16. Feb 2010 00:31
af rapport
Ég mæli með Tvix...

Aldrei klikkað nema þá bara ansk gamli diskurinn sem ég setti í hann...