Síða 1 af 1

Vantar prentplötu fyrir WD2500 KS disk (250GB)

Sent: Þri 05. Jan 2010 02:11
af Ark
Ég lennti í því óskemmtilega óhappi að senda 12v inná 5v línuna á þrem Western Digital 250GB diskum sem ég á og brendi þar með prentplöturnar á þeim öllum.

Ég hef verið að leita að svona plötu til að geta bjargað gögnunum mínum en gengið illa.

Týpan er WD2500KS-00MJB0. Þetta yrði að vera prentplata af disk sem er alveg svartur að lit. Hef prófað prentplötu af diskum sem voru silfraðir og með sama P/N og gekk hún ekki.

Þetta eru S-ATA2 diskar og framleiddir í Malasíu.

Serialinn á prentplötunni er á hvítum miða er "2061-701335-900 AD XW 2U07 B5QY 5 0004120 6124".

Ef þú situr á einum svona disk eða prentplötu væri gott að geta keypt hann af ykkur á sanngjörnu verði. Diskurinn mætti þessvegna vera bilaður þ.e.a.s. bilaður á þann hátt að hann sé með mótorbilun eða bad sectors. En ef hann finnst ekki í bios er prentplatan líklega ónýt hjá ykkur.

Þessir diskar voru mikið seldir í kringum 2005-2006 hjá Tölvulistanum og ATT.

Með von um björgun
Garðar - 847-8792

Re: Vantar prentplötu fyrir WD2500 KS disk (250GB)

Sent: Fim 14. Jan 2010 23:59
af Ark
Úff no luck ennþá að finna. Sendi mail á WD og þeir segjast ekki selja prentplötur of mikið maus.

Re: Vantar prentplötu fyrir WD2500 KS disk (250GB)

Sent: Fös 15. Jan 2010 00:10
af AntiTrust
Googlaðu þetta almennilega, ég hef pantað oftar en 2-3x prentplötur að utan frá fyrirtækjum sem sérhæfa sig hreinlega í því að eiga slíkt á lager. Ég borgaði reyndar langt í frá klink fyrir, en þeir sem borguðu brúsann var nokk sama.

Get bara ómögulega munað hvaðan ég hef verið að panta þetta, enda komin ein 2 ár síðan hugsa ég gerði það síðast.

Re: Vantar prentplötu fyrir WD2500 KS disk (250GB)

Sent: Fim 04. Feb 2010 14:47
af methylman
Ertu til í að upplýsa okkur um hvaðan þú pantaðir og var þetta öruggt á þann hátt að þú fékkst alltaf það sem þú baðst um :)

Re: Vantar prentplötu fyrir WD2500 KS disk (250GB)

Sent: Fim 04. Feb 2010 15:13
af Opes
Gæti átt svona, en diskurinn er í góðu lagi, hvað ertu til í að borga?