Síða 1 af 1

Nvidia Geforce 8800 GTS

Sent: Mán 04. Jan 2010 21:15
af Don't Shoot It's Jesus!
Sælir kappar...
Ég er í bölvuðu veseni, ég er með Nvidia Geforce 8800 GTS skjákort... (2 ára)
Í dag þegar ég ætlaði í leik þá búmm... Fraus hann og grænar línur fóru að birtast svo... Blár skjár..
Ég endurræsti og Bios skjárinn var í rugli.. Kassar hér og þar og vantaði stafi..
Núna er ég í Safe Mode með grænar rendur yfir allan skjáinn..
Er skjákortið alveg dautt... eða er einhvað hægt að gera ???

Með von um að einhver komi með lausn á þessu :)

Gunnar

Re: Nvidia Geforce 8800 GTS

Sent: Mán 04. Jan 2010 21:17
af Gúrú
Er 81% viss um að skjákortið þitt sé virkilega ónýtt.

Re: Nvidia Geforce 8800 GTS

Sent: Mán 04. Jan 2010 21:21
af Don't Shoot It's Jesus!
](*,) Veit einhver hvað Att er með langa ábyrgð á skjákortum ?

Re: Nvidia Geforce 8800 GTS

Sent: Mán 04. Jan 2010 21:24
af SteiniP
Það er tveggja ára ábyrgð.
Ef þú getur prófað kortið í annarri tölvu þá væri það ekki vitlaust.

Re: Nvidia Geforce 8800 GTS

Sent: Þri 05. Jan 2010 20:24
af Don't Shoot It's Jesus!
Bjallaði í þá í dag... til að tékka á nákvæmri dagsetningu hvenær ég keypti kortið.. .
Auðvitað... 2 ár og 3 mánuðir.. helvítis helvíti.
Annars ætla ég að prufa kortið í annari tölvu áður en ég hendi því.

Re: Nvidia Geforce 8800 GTS

Sent: Þri 05. Jan 2010 20:53
af mercury
nánast pottþétt að kortið sé grillað.