Síða 1 af 1

Álit á tveim turnkössum?

Sent: Lau 02. Jan 2010 12:49
af BjarkiB
Sælir/ar Vaktarar,

Nú er maður að fara spá í leikja-turnkassa. Leyst mjög vel á AMD-leikjatilboðið hjá þeim http://kisildalur.is/?p=2&id=501 en þar er tölvan ásamt skjá, lyklaborði, hátölurum og mús á 210.000 kr og svo plús stýrikerfi (windows 7 home premium 64-bita, 20 þús) 230.000kr.
Hérna púslaði ég svo saman örðum kassa út frá AMD kassanum, og hérna er hann:
Kisildalur.is - Karfan mín skrifaði:


En þarna vantar allar jaðarbúnað, Skjár (22"-24"), lyklaborð, mús og hátalara, undir 230 þús þá?

hvort er AMD eða púslaði kassin hægstæðari?

kv.Tiesto

Re: Álit á tveim turnkössum?

Sent: Lau 02. Jan 2010 15:16
af BjarkiB
*bump*

Re: Álit á tveim turnkössum?

Sent: Lau 02. Jan 2010 15:30
af stefan251
amd færð svo mikið með því

Re: Álit á tveim turnkössum?

Sent: Lau 02. Jan 2010 15:36
af BjarkiB
Bjó til annan á sama verði nema breytti um aflgjafa (frá 800w í 730w) og móðurborð (AM3 í LGA1156) og örgjörva (frá Phenom II X4 955BE retail- AM3 í i5 LGA1156)


Kisildalur.is - Karfan mín skrifaði:

Re: Álit á tveim turnkössum?

Sent: Lau 02. Jan 2010 16:12
af SteiniP
AMDinn er alveg málið. Ódýrari en i5 og aflæstur margfaldari þannig það ætti að vera hægt að yfirklukka hann duglega, og hann er bara að skila svipuðum afköstum og i5 750 held ég.
Svo er alltaf hægt að breyta tilboðunum hjá kísildal, getur skipt út skjákortinu fyrir HD5770

Edit: taktu HD 5850 frekar. Skoðaðu bara muninn. http://www.techspot.com/review/209-ati- ... age10.html

Re: Álit á tveim turnkössum?

Sent: Lau 02. Jan 2010 17:51
af BjarkiB
Þakka svarið, samt 5850 er ekki til hjá kísildal, svo á review-inu þá er GeForce GTX kortið í örðu sæti (reyndar 260 en í turninum er 275) svo AMD tilboðið er bara best eða?

Re: Álit á tveim turnkössum?

Sent: Lau 02. Jan 2010 18:33
af SteiniP
5850 toppar GTX 275 og jafnvel 285 í sumu. Það er líka DX11 sem er skemmtilegra upp á framtíðina.
En ef þú vilt endilega kaupa allt á sama stað þá er 275 eða HD 5770 besti kosturinn

Re: Álit á tveim turnkössum?

Sent: Lau 02. Jan 2010 18:41
af BjarkiB
En hvað með HD 4890?

Re: Álit á tveim turnkössum?

Sent: Lau 02. Jan 2010 18:44
af SteiniP
Það er aðeins lakara en HD 5850 http://www.overclockers.com/forums/show ... p?t=624298
og auðvitað ekki DX11

Re: Álit á tveim turnkössum?

Sent: Lau 02. Jan 2010 18:47
af BjarkiB
Hvort væri hægstæðara HD 4890 eða 275? HD 5850 er hinsvegar til í tölvutek á 51 þús, það er 9 þús kr. dýrara en fx 275

Re: Álit á tveim turnkössum?

Sent: Lau 02. Jan 2010 19:16
af vesley
ég myndi taka 5850 kortið .

Re: Álit á tveim turnkössum?

Sent: Mið 27. Jan 2010 16:44
af bibbi
getur fengið windows 7 a 15000 i tölvuvirkni :)

Re: Álit á tveim turnkössum?

Sent: Mið 27. Jan 2010 17:05
af Oak
bibbi það er bara uppfærsla og það kostar 15.900