Síða 1 af 1

hver af þessum sjónvapsflökkurum er bestur - neðsti póstur

Sent: Mán 28. Des 2009 02:47
af Dazy crazy
Sælir vaktarar
Er að hugsa um að kaupa sjónvarpsflakkara í kísildal og langaði bara að vita hvort þið hefðuð einhverja reynslu af honum.
Er semsagt að hugsa um þennan http://www.kisildalur.is/?p=2&id=1264.
Er hann ekki með hd möguleika?
Er þessi kannski betri? http://www.kisildalur.is/?p=2&id=1258

Re: Hafiði prufað þennan flakkara í dalnum?

Sent: Mán 28. Des 2009 02:53
af SteiniP
Hvorugur spilar h.264 (.mkv) sem er algengasta formið á hd myndum sem þú sækir á netinu, þannig þú þyrftir að standa í því að converta myndum sem þú dlar, og bara 1080i, sem er svipað og 720p, semsagt ekki full HD.
Annars eru fáir flakkarar á þessu verði sem spila mkv.

Re: Hafiði prufað þennan flakkara í dalnum?

Sent: Mán 28. Des 2009 03:11
af Gúrú
SteiniP skrifaði:þannig að þú þyrftir að eyða ævinni í það að converta myndum sem þú dlar


Lagaði póstinn þinn.

Re: Hafiði prufað þennan flakkara í dalnum?

Sent: Mán 28. Des 2009 11:13
af Dazy crazy

Re: Hafiði prufað þennan flakkara í dalnum?

Sent: Mán 28. Des 2009 12:28
af Ingibergur
Dazy crazy skrifaði:hver er besti flakkarinn fyrir peninginn?
Vil helst sleppa við icybox ruslið.

t.d. er þessi virði 58000 http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=4948 ?

Er einhver munur á þessum fyrir utan verðið?
http://www.tolvulistinn.is/vara/17827
http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=1298

Eða þessir
http://start.is/product_info.php?cPath= ... ts_id=2358
http://start.is/product_info.php?cPath= ... ts_id=2694



Sæll:

Þú þarft að eiga flakkara (usb tengdann) eða Usb lykil ef þú verslar Western Digital HD Media spilara. Flakkarinn sjálfur hýsir ekki HDD heldur tengist hann einungis við í gegnum usb.

Þessi græja er mjög flott og er að spila þá fæla sem eru í umferð á netinu, viðmótið er líka flott og ekki flókið.
Ég hef séð hana vinna og ætli þessi yrði ekki fyrir valinu ef ég fengi mér flakkara.. Annars yrði það DViCO TViX 3300 en þá þyrfti ég að converta fælum yfir í þau format sem flakkarinn skilur..

Gangi þér vel með þetta.

Re: flakkari í dalnum-hver er besti flakkarinn fyrir peninginn?

Sent: Mán 28. Des 2009 12:44
af hagur
Ef þú ert með budget uppá c.a 50þús kall, þá myndi ég skoða http://www.eico.is/?item=211&v=item

Re: flakkari í dalnum-hver er besti flakkarinn fyrir peninginn?

Sent: Mán 28. Des 2009 13:49
af methylman
Gef þessum flakkara hérna fimm stjörnur http://buy.is/product.php?id_product=208
spilar mkv fila og viðmótið einstaklega vandað

Re: flakkari í dalnum-hver er besti flakkarinn fyrir peninginn?

Sent: Mán 28. Des 2009 14:25
af Dazy crazy
ok, takk fyrir svörin er núna mikið að spá í þessa og vera future safe, eða væri ég það ekki?

Eru þessir sambærilegir
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=4948 -57.950 att.is
http://www.eico.is/?item=211&v=item -54.900 eico
http://buy.is/product.php?id_product=208 -34.990 Buy.is
http://www.tolvulistinn.is/vara/17827 -39.900 Tolvulistinn
http://tolvutaekni.is/product_info.php?products_id=1298 -48.900 tölvutaekni

Þessir 2 neðstu virðist mér að sé sami flakkarinn en finnst samt eitthvað svo á móti náttúrulögmálinu að tölvulistinn sé svona mikið ódýrari nema náttúrulega að þetta sé eitthvað tilboð.

Valið stendur eiginlega á milli tölvulistans og buy.is

Re: flakkari í dalnum-hver er besti flakkarinn fyrir peninginn?

Sent: Mán 28. Des 2009 14:33
af Tiger
Ég tæki hiklaust http://www.att.is/product_info.php?cPath=224_225_205&products_id=4948 flakkarann fram yfir allt annað. Ert tryggður með gæða græju sem spilar allt. Ég er búinn að eiga HD4100 spilarann frá Dvico í 3 ár held ég og ekki eitt feilpúst og ég mun endurnýja og fá mér nýjasta frá þeim þegar ég fer út í apríl.

Re: flakkari í dalnum-hver er besti flakkarinn fyrir peninginn?

Sent: Mán 28. Des 2009 14:35
af Dazy crazy
Snuddi skrifaði:Ég tæki hiklaust http://www.att.is/product_info.php?cPath=224_225_205&products_id=4948 flakkarann fram yfir allt annað. Ert tryggður með gæða græju sem spilar allt. Ég er búinn að eiga HD4100 spilarann frá Dvico í 3 ár held ég og ekki eitt feilpúst og ég mun endurnýja og fá mér nýjasta frá þeim þegar ég fer út í apríl.

Jájá, á sjálfur dvico twix og þetta er með eindæmum góður flakkari, en hann er náttúrulega tæpum 20.000 krónum dýrari en tölvulistaflakkarinn og tæpum 25.000 krónum dýrari en buy.is flakkarinn

Re: hver af þessum sjónvapsflökkurum er bestur - neðsti póstur

Sent: Mán 28. Des 2009 23:59
af Dazy crazy
hefur einhver reynslu af þessum sem er hjá buy.is og tolvulistanum?

Re: Hafiði prufað þennan flakkara í dalnum?

Sent: Þri 29. Des 2009 01:02
af Gúrú
Ingibergur skrifaði:Sæll:
Þú þarft að eiga flakkara (usb tengdann) eða Usb lykil ef þú verslar Western Digital HD Media spilara. Flakkarinn sjálfur hýsir ekki HDD heldur tengist hann einungis við í gegnum usb.
Þessi græja er mjög flott og er að spila þá fæla sem eru í umferð á netinu, viðmótið er líka flott og ekki flókið.
Ég hef séð hana vinna og ætli þessi yrði ekki fyrir valinu ef ég fengi mér flakkara.. Annars yrði það DViCO TViX 3300 en þá þyrfti ég að converta fælum yfir í þau format sem flakkarinn skilur..
Gangi þér vel með þetta.

Þarft eiginlega að setja Starfsmaður í Start í undirskrift, það er ekki beint augljóst og hvergi tekið fram að þú sért að promota eigin vöru.

Re: hver af þessum sjónvapsflökkurum er bestur - neðsti póstur

Sent: Þri 29. Des 2009 01:06
af Some0ne
TViX eru alveg klassískir, en bara að mínu mati búnir að missa af lestinni.

Popcornhour A-110 er soldi græja, spilar allt og býður uppá böns af möguleikum. Getur meðal annars moddað allt útlit á menus, fengið jukeboxa og fleira ( http://www.networkmediatank.com) - Allt svoleiðis sans krefst smá hæfni í fikti, annars er kominn installer fyrir margt þarna (CSI installer) sem gerir þetta auðveldara fyrir þig.

ICY BOX MP309 græjan lítur líka vel út, sama chipset og er í Popcornhour.

Sarotech er crap.

Svo fyrst þú ert farinn að skoða flakkara sem eru svona dýrir, þá gætiru alveg eins skellt þér á:

http://www.kisildalur.is/?p=2&id=1156

og sett upp xmbc/boxee :)

Re: hver af þessum sjónvapsflökkurum er bestur - neðsti póstur

Sent: Þri 29. Des 2009 01:33
af Blues-
Er með popcorn hour C200 => http://www.popcornhour.com/onlinestore/ ... item_id=12
Búinn að bæta í hann disk og Blu-ray lesara ..
hann spilar gjörsamlega all .. með GB net og er í rauninni linux box ..
er með nfs og samba share .. torrent, newsgroup fetcher og öllum andskotanum ...

mæli hiklaust með honum ... ef þú átt pening :)

Re: hver af þessum sjónvapsflökkurum er bestur - neðsti póstur

Sent: Þri 29. Des 2009 03:11
af Dazy crazy
Vááá, þetta er alltaf að verða erfiðara og erfiðara og flóknara og flóknara og dýrara og dýrara.
Takk fyrir svörin
Langar ofboðslega í tvixinn en ætla að bíða aðeins með þetta, þarf að hugsa mig um. :D
Og reyndar langar mig meira í popcornhour flakkarana

Re: hver af þessum sjónvapsflökkurum er bestur - neðsti póstur

Sent: Mið 30. Des 2009 22:08
af Kristján Gerhard
Er mikið búinn að vera að skoða þetta mál sjálfur. Var eiginlega orðinn harðákveðinn að kaupa WDTV live að utan. Rakst síðan á þessa græju hér og er að pæla að fá mér frekar svoleiðis. Hún fæst hjá EJS.