Síða 1 af 1
Vandræði með flakkara
Sent: Sun 27. Des 2009 22:05
af tmm
Sælir er í vandræðum með flakkarann minn. Ég aftengdi hann þegar ég fór heim yfir jól og þegar ég kem heim aftur og tengi hann við tölvuna þá finnur tölvan hann ekki, kemur ekki fram í my computer eða í computer manegement, hvað er til ráða því hann virkaði fínt áður en ég aftengdi hann. Minnir að ég hafi verið búinn að ráðstafa honum drif stafnum f: einhverntíman getur það skipt einhverju máli?
Hann virðist keyra sig upp og koma með grænt ljós ef ég er ekki með hann tengdan við usb enn um leið og ég tengi hann við tölvuna þá er eins og hann sé alltaf að reyna að keyra sig upp aftur og aftur?????
Re: Vandræði með flakkara
Sent: Mán 28. Des 2009 12:46
af SteiniP
Það getur verið flakkarinn eða diskurinn sem er bilaður. Prófaðu að setja diskinn inn í tölvu eða annan flakkara ef þú getur.
Re: Vandræði með flakkara
Sent: Mán 28. Des 2009 14:39
af Dazy crazy
Hvernig flakkari er þetta?
Re: Vandræði með flakkara
Sent: Mán 28. Des 2009 17:46
af tmm
Þetta er iMicro flakkari 3.5" HDD
Re: Vandræði með flakkara
Sent: Mán 28. Des 2009 17:59
af zlamm
Gerðiru Safe remove síðast þegar þú tókst hann út tölvunni?
Re: Vandræði með flakkara
Sent: Mán 28. Des 2009 18:38
af kazgalor
zlamm skrifaði:Gerðiru Safe remove síðast þegar þú tókst hann út tölvunni?
Ef þetta væri skemmt partition útaf því þá myndi diskurinn samt koma fram í computer management-disk management, þó að hann komi ekki endilega fram í my computer.
Ég held að besta ráðið sé að tengja diskinn við tölvu, þá veistu hvort það er hýsingin eða diskurinn.
Re: Vandræði með flakkara
Sent: Mán 28. Des 2009 19:37
af Oak
er búinn að henda 3. svona hýsingum hjá mér...þetta er bölvað drasl.
Re: Vandræði með flakkara
Sent: Mán 04. Jan 2010 18:29
af tmm
fór með flakkarinn til félaga míns og eftir allt það sem hann kann útskurðaði hann harða diskinn dauðann
þar fóru tæp 500 GB af gögnum þar á meðal eitt ár af ljósmyndum. En spurninginn er hvaða harða disk á ég að fá mér í staðinn, borgar sig að fá sér 1 TB SATA, það segir á hýsingunni að hún taki bæði IDE og SATA, spurninginn er hvort hann taki nýjustu SATA diskana eða þarf ég að fá mér nýja hýsingu líka er ca. 2gja ára.