Síða 1 af 1

Uppfærsla úr 8800GT...vantar hugmyndir :)

Sent: Sun 27. Des 2009 03:40
af Oak
Sælir

Er svona að skoða það að uppfæra skjákortið hjá mér og er ekki viss hvað ég á að fara í, eða hvort að það borgi sig nokkuð að uppfæra fyrr en að ég uppfæri allt í tölvunni. Hafði hugsað mér að halda mig í nVidia en svo sem get alveg skoðað ATI. Budgetið væri svona 20-30 þús. Þarf ég kannski að fara ofar ef að ég ætla að sjá mikinn mun frá 8800GT ?
Er þokkalega öflugur að finna það sem ég þarf á google en er ekki að ná að finna eitthvað almennilegt í sambandi við þetta.

PSU: OCZ 700W StealthXStream Power Supply
Móðurborð: MSI K9N SLI Platinum
Örgjörvi: Athlon 64 X2 Dual 6000+
Örgjafavifta: Zalmann CZ X 9500AM
Vinnsluminni: Corsair 4x1 GB DDR2 800mhz
Skjákort: MSI 8800GT
HDD: Nenni ekki að telja það upp :)

Öll ráð vel þegin...Takk

Re: Uppfærsla úr 8800GT...vantar hugmyndir :)

Sent: Sun 27. Des 2009 04:45
af oskarom
Ég var að skipta út 8800GT kortinu mínu fyrir HD5850 og munurinn er gífurlegur, reyndar stærsti munurinn fyrir mig er Eyefinity er með 3x 22" skjái og Dirt2 er að keyra fáránlega smooth í 5040*1050 upplausn. Síðan er þetta kort ótrúlega hljóðlátt, ég var með Thermalright HR-03 GT með 120mm viftu á 8800GT kortinu og það er ekki mikill munur á því og stock kælingu á HD5850 en það hefur hæst farið í ca 70 gráður og þá var viftan komin í ca 28%...

En þetta er reyndar soldið fyrir ofan budgetið þitt, ég var búinn að pæla mikið í þessu þegar ég sá að HD5800 serían var að koma, þegar verðin komu svo á kortin var það ekki spurning að rúmlega 40þús fyrir HD5850 er eiginlega gefins, amk miðað við hvað þú færð fyrir peninginn... ef ég ætti ekki fyrir því myndi ég bara bíða og safna aðeins lengur.

kv.
Oskar

Re: Uppfærsla úr 8800GT...vantar hugmyndir :)

Sent: Sun 27. Des 2009 12:19
af SteiniP
HD 5770
Munurinn á því og HD 5850 er samt algjörlega 10k virði, það er talað um 40% afkastamun.

Re: Uppfærsla úr 8800GT...vantar hugmyndir :)

Sent: Sun 27. Des 2009 12:51
af Oak
get ég sett ATI kort á þetta móðurborð sem ég er með ?

Re: Uppfærsla úr 8800GT...vantar hugmyndir :)

Sent: Sun 27. Des 2009 13:07
af SteiniP
Já þú getur það.

Re: Uppfærsla úr 8800GT...vantar hugmyndir :)

Sent: Sun 27. Des 2009 15:35
af Taxi
Fyrst að þú ert með SLI móðurborð og 8800GT er ekki málið að fá sér annað 8800GT skjákort og nota 2 saman,ættir að geta fengið notað 8800GT á lítinn pening.

Re: Uppfærsla úr 8800GT...vantar hugmyndir :)

Sent: Sun 27. Des 2009 15:57
af Legolas
Vinnsluminni: Corsair 4x1 GB DDR2 800mhz
það er ekki gott, ég mundi byrja á því að fá mér móðurborð og minni1066-1333-1600 þú veist.
jú jú 2X 8800 er mikið gott mál =D> =D>

Re: Uppfærsla úr 8800GT...vantar hugmyndir :)

Sent: Sun 27. Des 2009 16:35
af Frost
Taxi skrifaði:Fyrst að þú ert með SLI móðurborð og 8800GT er ekki málið að fá sér annað 8800GT skjákort og nota 2 saman,ættir að geta fengið notað 8800GT á lítinn pening.


Styð þetta. Er kominn með SLI núna og avleg svakalegur munur :twisted:

Re: Uppfærsla úr 8800GT...vantar hugmyndir :)

Sent: Sun 27. Des 2009 16:41
af corflame
*woops*

gerði búbú, réttur póstur hér fyrir neðan :)

Re: Uppfærsla úr 8800GT...vantar hugmyndir :)

Sent: Sun 27. Des 2009 16:42
af corflame
Legolas skrifaði:Vinnsluminni: Corsair 4x1 GB DDR2 800mhz
það er ekki gott, ég mundi byrja á því að fá mér móðurborð og minni1066-1333-1600 þú veist.
jú jú 2X 8800 er mikið gott mál =D> =D>


Hvað ertu að bulla Legolas, það er ekkert að þessu minni.

En já, eins og menn hafa verið að benda á, 5850 kortið er þrusuöflugt, en kostar 40þús.
Ef þú átt ekki fyrir því, þá er bara að safna lengur :)

Re: Uppfærsla úr 8800GT...vantar hugmyndir :)

Sent: Sun 27. Des 2009 17:13
af vesley
Legolas skrifaði:Vinnsluminni: Corsair 4x1 GB DDR2 800mhz
það er ekki gott, ég mundi byrja á því að fá mér móðurborð og minni1066-1333-1600 þú veist.
jú jú 2X 8800 er mikið gott mál =D> =D>




ddr3 minni nýtt móðurborð og nýr örgjörvi fyrir 20-30 þús.

ég held að það sé ómögulegt að fá það á svona lágu verði.

Re: Uppfærsla úr 8800GT...vantar hugmyndir :)

Sent: Mán 28. Des 2009 00:00
af Oak
ég var bara að spá í að uppfæra skjákortið...hitt kemur seinna, langar mikið í annað 8800GT mjög sáttur við þetta kort. Einhver hér sem á MSI 8800GT sem hann er ekki að nota ?

þetta er ekki spurning um peningaleysi heldur meira svona hvað maður á að leyfa sér :)

Takk fyrir svörin.

Re: Uppfærsla úr 8800GT...vantar hugmyndir :)

Sent: Fim 07. Jan 2010 17:25
af playmaker
Vertu viss um að móðurborðið taki annað skjákort áður en þu kauptir annað 8800GT. ;)

Re: Uppfærsla úr 8800GT...vantar hugmyndir :)

Sent: Fim 07. Jan 2010 18:15
af Oak
Takk fyrir ábendinguna

MSI K9N SLI Platinum þannig að ég ætti að vera save :)

Re: Uppfærsla úr 8800GT...vantar hugmyndir :)

Sent: Fim 07. Jan 2010 18:20
af SteiniP
Annað 8800GT væri helvítið góð og ódýr afkastaukning. Mæli með því ef þú finnur svona kort.

Re: Uppfærsla úr 8800GT...vantar hugmyndir :)

Sent: Fim 07. Jan 2010 18:22
af Oak
ætlaði mér alltaf að kaupa annað kort en það er hætt að selja þau núna en væri rosalega gott ef einhver á og er kannski að farað uppfæra og er til í að selja mér fyrir rétt verð.

Re: Uppfærsla úr 8800GT...vantar hugmyndir :)

Sent: Fim 07. Jan 2010 18:25
af SteiniP
Gerðu auglýsingu í sölu korkinum. Örugglega einhver sem vill losna við svona. Þetta voru vinsæl kort á sínum tíma.

Re: Uppfærsla úr 8800GT...vantar hugmyndir :)

Sent: Fös 08. Jan 2010 00:22
af Dazy crazy
hvað ertu til í að borga fyrir svoleiðis?