Síða 1 af 2

iMac eða.... ???

Sent: Þri 15. Des 2009 02:03
af korbui
Sælir,

Nú er komið að því að uppfæra tölvuna mína. Nýji iMaccinn er mjög heillandi, þá 27" vélin. -->330.000kr

Ég er samt mikið að spá í hvernig vél ég get fengið mér fyrir sambærilega vél ef hún keyrir á Windows 7.

Mínar þarfir:
Ég er mikið að vinna í ljósmyndum og vídeoum á tölvunni. Ég spila einstaka leiki en ekki það sem myndi teljast "hardcore" gamer. Hvort það sé vegna þess að hingað til hef ég ekki verið með vél í það veit ég ekki alveg :)

Ég er líka mikið í að keyra STÓR excel skjöl fyrir vinnuna.

Skjástærð skiptir mig máli og er það eitt það helsta sem heillar mig við iMac. Verður líka að vera sæmilega góður skjár.

Í dag er ég með iMac sem ég er búinn að selja og þekki því mac stýrikerfið ágætlega en vinn þó á windows og "hræðist" það ekkert sérstaklega. Er aðalega að spá í hvaða vélbúnaði maður getur fengið fyrir sambærilegan prís...

Öll álit vel þegin nema þú sért Utd maður :p grín #-o

Re: iMac eða.... ???

Sent: Þri 15. Des 2009 02:10
af coldcut
Ég er ekki Utd. maður...

En já getur að sjálfsögðu fengið miklu betri tölvu ef þú verslar hana sem íhluti og allt það en munurinn er sá að ef þú ert að vinna mikið í ljósmyndum að þá er skjárinn á Maccanum hreint út sagt magnaður og þú þyrftir að eyða verulega til þess að fá svipaðan skjá fyrir "PC-tölvu"

Re: iMac eða.... ???

Sent: Þri 15. Des 2009 08:00
af joigudni
Já vissi svo sem að skjárinn hjá maccanum væri með því besta sem fyndist, en það þarf samt að vega og meta :) Ef við miðum við skjástærð 25" + t.d. :)

Re: iMac eða.... ???

Sent: Þri 15. Des 2009 08:10
af Glazier
Tölva sem ég púslaði sman í flýti..
Þarna er lyklaborð, mjög þægileg mús, 26" skjár (það næsta sem ég komst 27" án þess að hækka verðið allveg fáránlega mikið)
Bætti við auka viftu í kassann til að kæla vel, mjög gott skjákort sem er í þessum pakka, örgjörvinn er allveg magnaður og vinnsluminnin rosaleg.
Svo geturðu lækkað verðið með því að fá ódýrari harðan disk, ódýrari kassa og svona.
ATH !! Það getur vel verið að það sé eitthvða að faila þarna en þessu var skellt saman á 3 mín inná kisildalur.is, ef það er eitthvað sem ekki passar saman þá kemur einhver snillingur og bendir á það ;)

Kisildalur.is - Karfan mín skrifaði:

Re: iMac eða.... ???

Sent: Þri 15. Des 2009 08:12
af dogalicius
Hvað með að skoða þessar http://www.hp.com/united-states/campaig ... art/#/Home

Mágur minn fékk sér eina svona og þær eru nokkuð huggulegar finnst mér.

Re: iMac eða.... ???

Sent: Þri 15. Des 2009 08:17
af vesley
skall skella einni svakalegri fyrir þig þegar ég er búinn í prófum í dag ;) algjöra mulningsvél ;)

Re: iMac eða.... ???

Sent: Þri 15. Des 2009 10:05
af dnz
dogalicius skrifaði:Hvað með að skoða þessar http://www.hp.com/united-states/campaig ... art/#/Home

Mágur minn fékk sér eina svona og þær eru nokkuð huggulegar finnst mér.

Drasl, overpriced og virkar ekki neitt, frekar að taka makka eða venjulega pc heldur en þetta

Re: iMac eða.... ???

Sent: Þri 15. Des 2009 10:28
af Gothiatek
Ég var að spá í iMac fyrir svona 2 árum en hætti við vegna þess ég fékk öflugri PC vél fyrir minni pening og það var einungis hægt að fá þessa glossy skjá sem ég fíla bara alls ekki, sérstklega þar sem ég vinn með ljósmyndir líka.

Hef ekki fylgst með iMac síðan, en veit að mörgum finnst voða fínt að vera með svona háglans skjái sem virkar eins og spegill á sama tíma og hann ýkir alla liti - en ekki ég - veit ekki hvort þeir bjóði upp á betri skjái í dag.

Re: iMac eða.... ???

Sent: Þri 15. Des 2009 12:30
af vesley
Aflgjafi http://kisildalur.is/?p=2&id=1241
móðurborð http://buy.is/product.php?id_product=733
drif http://kisildalur.is/?p=2&id=611
turnkassi http://buy.is/product.php?id_product=551
skjár http://kisildalur.is/?p=2&id=1226
örgjörvakæling http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=1542
örgjörvi http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=1515
mús og lyklaborð http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=1272
skjákort http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=1602
vinnsluminni http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=19485
harður diskur http://buy.is/product.php?id_product=52
[stýrikerfi ekki innifalið]
samtals 315060 krónur

algjör dúndur pakki . og býst við að þú viljir hafa hlutina flotta þannig ég lét fínasta antec turn og mjög flott þráðlaust lyklaborð og mús og það er virkilega þæginlegt að skrifa á svona lyklaborði

topphlutir og ætti að nægja í allt saman tölvuleiki myndvinnslu videovinnsla you name it . mæli með að þú skoðar hlutina eins og turninn og lyklaborð og skjá , og lætur vita hvort þú vilt eitthvað annað ;)

Re: iMac eða.... ???

Sent: Þri 15. Des 2009 13:04
af isr
Það er spurning hvort hann setur tölvuna saman sjálfur,því íhlutirnir eru úr mörgum búðum.
Hvernig er ef tölvan bilar á ábyrgðartíma hver sér þá um að taka vélina(ef íhlutir eru héðan og þaðan). Ég keypti tölvu úr Kísildal og hún fór að endurræsa sig hvað eftir annað og sá ekki annan diskinn þannig að þeir vildu fá hana,enda var tölvan ekki nema vikugömul,það var síðan aflgjafinn sem var ónýtur, þannig að það er spurning ef ég hefði keypt tölvuna í pörtum hér og þar hvert hefði ég snúið mér þá? Væri ágætt að vita þetta því menn finna kannski ekki allt sem þeir vilja í sömu búðinni .

Re: iMac eða.... ???

Sent: Þri 15. Des 2009 13:14
af Sæþór
Ég meina, ef iMac´inn er að heilla þig... Þá bara skella sér á hann. Þú sérð ekki eftir krónu eftir að þú ert kominn með hann í hendurnar ;)

Re: iMac eða.... ???

Sent: Þri 15. Des 2009 13:21
af biturk
isr skrifaði:Það er spurning hvort hann setur tölvuna saman sjálfur,því íhlutirnir eru úr mörgum búðum.
Hvernig er ef tölvan bilar á ábyrgðartíma hver sér þá um að taka vélina(ef íhlutir eru héðan og þaðan). Ég keypti tölvu úr Kísildal og hún fór að endurræsa sig hvað eftir annað og sá ekki annan diskinn þannig að þeir vildu fá hana,enda var tölvan ekki nema vikugömul,það var síðan aflgjafinn sem var ónýtur, þannig að það er spurning ef ég hefði keypt tölvuna í pörtum hér og þar hvert hefði ég snúið mér þá? Væri ágætt að vita þetta því menn finna kannski ekki allt sem þeir vilja í sömu búðinni .

þú ert að djóka er það ekki?

þar sem þú keiptir viðkomandi hlut sem bilaði........ það segir sér sjálft

Re: iMac eða.... ???

Sent: Þri 15. Des 2009 13:21
af Lallistori
isr skrifaði:Það er spurning hvort hann setur tölvuna saman sjálfur,því íhlutirnir eru úr mörgum búðum.
Hvernig er ef tölvan bilar á ábyrgðartíma hver sér þá um að taka vélina(ef íhlutir eru héðan og þaðan). Ég keypti tölvu úr Kísildal og hún fór að endurræsa sig hvað eftir annað og sá ekki annan diskinn þannig að þeir vildu fá hana,enda var tölvan ekki nema vikugömul,það var síðan aflgjafinn sem var ónýtur, þannig að það er spurning ef ég hefði keypt tölvuna í pörtum hér og þar hvert hefði ég snúið mér þá? Væri ágætt að vita þetta því menn finna kannski ekki allt sem þeir vilja í sömu búðinni .

Ferð þá með bilaða hlutinn í þá verlsun sem þú keyptir hann.

Re: iMac eða.... ???

Sent: Þri 15. Des 2009 13:34
af Glazier
Lallistori skrifaði:

En ef hann heldur að vinnsluminnið sé bilað og fer með tölvuna á staðinn þar sem vinnsluminnið er keypt en þeir segja að það sé ekkert að vinnsluminnunum heldur er það örgjörvinn sem er bilaður og borgar þá eitthvað ákveðið skoðunargjald þar.
Fer síðan með tölvuna þar sem örgjörvinn er keyptur og fær nýjann.. þvílíkt vesen.

Re: iMac eða.... ???

Sent: Þri 15. Des 2009 13:42
af vesley
memtest í 2 klst og voila . prime95 í 2 klst og voila . furmark í 2 klst og voila.

ekkert mál að finna bilun sjálfur. ef það endar í því að það kemur ekki fram . stekkuru með á næsta verkstæði borgar eitthvern 2000 kall sem er ekki neitt miðað við 300 þús króna tölvu greinir hana og skellir bilaða partnum til þeirrar verslunar. og ættir að geta bara farið með bilaða partinn og greininguna frá verkstæðinu og fá nýjann hlut. ;)

Re: iMac eða.... ???

Sent: Þri 15. Des 2009 13:58
af biturk
já eða færð einhver einstakling til að bilanagreina fyrir klink og ferð síðann með viðkomandi hlut í verslunina og færð bætt!

Re: iMac eða.... ???

Sent: Þri 15. Des 2009 14:30
af Viktor
Ekki kaupa tölvu fyrir 300þúsund á mismunandi stöðum. Ætla ekki að útskýra hvers vegna.

Re: iMac eða.... ???

Sent: Þri 15. Des 2009 14:45
af Tiger
vesley skrifaði:algjör dúndur pakki . og býst við að þú viljir hafa hlutina flotta þannig ég lét fínasta antec turn og mjög flott þráðlaust lyklaborð og mús

Ef þú vilt hafa hlutina flotta þá myndiru fá þér iMacinn og málið dautt [-(

Svo er nátturulega rjóminn í iMac skjárinn sjálfur, og 27" iMac skjárinn er eitthvað sem ég tæki fram yfir þennan ASUS skjá on any given sunday.

Re: iMac eða.... ???

Sent: Þri 15. Des 2009 14:56
af isr
þar sem þú keiptir viðkomandi hlut sem bilaði........ það segir sér sjálft

Fimm ára barna myndi ekki láta svona út úr sér.
Það er bara ekki allir færir um að bilanagreyna sjálfir,ef þú færð bluescreen sem getur bæði stafað af software og hardware villu getur oft verið snúið að finna út úr því,ég sé um tölvur fyrir marga félaga mína og skildmenni,og sumir af þeim hafa ekkert vit á tölvum rétt kunna að kveikja á þeim,og svo hafa bara margir engann áhuga á því að grúska í tölvum og kunna því ekkert í hardware.

Re: iMac eða.... ???

Sent: Þri 15. Des 2009 15:04
af Gúrú
Kisildalur.is - Karfan mín skrifaði:

Og svo þessi kassi, eða hvaða ATX kassi sem að þú vilt, þessi sjúki SSD, og svo hvaða mús og lyklaborð sem að þú fýlar.
Samtals 330. þúsund krónur+músar og lyklaborðskostnaður.

Re: iMac eða.... ???

Sent: Þri 15. Des 2009 15:49
af coldcut
Þá getur hann nú alveg eins farið í aðrahvora efstu vélina HÉR

Re: iMac eða.... ???

Sent: Þri 15. Des 2009 15:53
af Tiger
coldcut skrifaði:Þá getur hann nú alveg eins farið í aðrahvora efstu vélina HÉR

Ég myndi hiklaust gera það, og er á leiðinni reyndar að gera það.

Re: iMac eða.... ???

Sent: Þri 15. Des 2009 16:06
af bolti
Ég fór úr turn með 23" skjá í 27" iMac fyrir tæpum mánuði síðan. Hef alltaf verið Windows maður en ákvað að gefa Mac og OSX séns.

Sé ekki eftir því í dag.

Skjárinn sem kemur í iMacinum er skjár sem kostar úti í búð yfir 300þ kall. IPS panell með 178° viewing angle og allar stillingar í hugbúnaði gerir þetta algera snilld til að vinna á.

Ég er með 8 gb innra minni og hluti forrita sem ég nota eru að nota 8 gbinn og hluti sem eru bara 32 bita nota bara 3. eithvað.

Ég er að fíla allt við iMacin og það er vangefið hvað þetta gerðið við skrifborðið hjá mér.... aðalega útlitslega séð :)

Re: iMac eða.... ???

Sent: Þri 15. Des 2009 16:08
af vesley
imac skjáirnir eru ekki 300 þúsund króna virði.... annars myndi vélinn ekki kosta 300þúsund með öllu hinu dótinu.... gætir fengið svona skjá á 100-150 giska ég.

Re: iMac eða.... ???

Sent: Þri 15. Des 2009 16:14
af bolti
27" IPS skjá?

http://www.ejs.is/Pages/1006/itemno/2707WFP
Ágætt að bæta við að upplausnin í iMacinum er 2560x1280 sem ég finn bara ekki annarstaðar.

BEN Q og ACER skjáirnir eru ekki með IPS panel sem skiptir mjög miklu máli í myndvinnslu og viewangle.

Þú ert að fá fáránlega góðan panel í þessari græjju.