Síða 1 af 1
Breyting á pci express x8 rauf
Sent: Sun 13. Des 2009 23:28
af ncc
Nú leita ég til ykkar með upplýsingar. Ég er með Acer server sem mér langar til að nota sem venjulega borðvél en einnig til að geyma efni fyrir media center. Málið er að ég ætlaði að setja skjákort í hana en hef einungis pcie x8 rauf en öll þau skjákort sem ég hef séð eru x16. Ég hef heyrt að hugsanlega sé hægt að breyta x8 raufinni þ.a. hún virki einnig fyrir x16 kort ??? Endilega aðstoðið mig með þetta "skemmtilega" vandamál.
Re: Breyting á pci express x8 rauf
Sent: Mán 14. Des 2009 00:50
af Viktor
Þau eiga að virka, keyra bara hægar.
Re: Breyting á pci express x8 rauf
Sent: Mán 14. Des 2009 08:23
af ncc
Pci e x8 raufin hjá mér er lokuð þ.a. ég kem x16 kortinu ekki í..... Veit einhver um lausn á þessu. Eru til einhver x8 skjákort eða þarf ég að taka upp verkfærakistuna og fara í það að opna raufina?????
Re: Breyting á pci express x8 rauf
Sent: Mán 14. Des 2009 08:25
af SteiniP
Hvernig lokuð?
PCIe 16x og 8x raufar eru alveg eins, skjákortið á að passa.
Re: Breyting á pci express x8 rauf
Sent: Mán 14. Des 2009 08:54
af ncc
þær eru ekki eins. x8 raufin er styttri
http://www.fastvideo.ru/products/frameg ... ie-all.gif , þ.a. ég kem x16 kortinu ekki í.
Re: Breyting á pci express x8 rauf
Sent: Mán 14. Des 2009 09:16
af SteiniP
Já ok. Gamla móðurborðið mitt var með 16x og 4x raufum sem voru alveg eins, þannig ég hélt að þær væru jafn stórar.
Þetta er kannski eitthvað sem gæti hjálpað þér
http://forums.whirlpool.net.au/forum-re ... 38533.htmlhttp://www.tkdan.com/SC420/
Re: Breyting á pci express x8 rauf
Sent: Mán 14. Des 2009 09:36
af ncc
takk fyrir, ég fer sem sagt í physical breytingar á raufinni og læt ykkur vita hvernig gengur. En hvað segja menn annars um að nota server á þennan hátt. Vélin er svona:
Acer Altos G330
Móðurborð: Intel S3000 AHV
Örgjörvi: Intel Xeon 1.86Ghz E5320
2x320GB SATA diskar
2G ram
Allar pælingar vel þegnar
Re: Breyting á pci express x8 rauf
Sent: Fim 17. Des 2009 10:09
af ncc
jæja núna er ég búinn að breyta pci express x8 raufinni hjá mér þ.e. opnaði hana í endann þannig að ég kom x16 nvidia skjákortinu í. Og viti menn it works like a charm.
Þá er ég kominn með þokkalega skjástýringu í staðinn fyrir crap on board stýringuna sem var á server móðurborðinu
Re: Breyting á pci express x8 rauf
Sent: Fim 17. Des 2009 10:31
af Viktor
ncc skrifaði:jæja núna er ég búinn að breyta pci express x8 raufinni hjá mér þ.e. opnaði hana í endann þannig að ég kom x16 nvidia skjákortinu í. Og viti menn it works like a charm.
Þá er ég kominn með þokkalega skjástýringu í staðinn fyrir crap on board stýringuna sem var á server móðurborðinu
Til hamingju með það
Re: Breyting á pci express x8 rauf
Sent: Fim 17. Des 2009 12:34
af ncc
Þakka fyrir... Ótrúlegt hvað er hægt að gera með útskurðarhníf og gasbrennara