Síða 1 af 1

Frysting

Sent: Fim 10. Des 2009 16:39
af zdndz
Er í lagi að setja tölvu og skjá í -60 °C, eyðilegst eitthvað?

veit einhver?

Re: Frysting

Sent: Fim 10. Des 2009 16:45
af Some0ne
Held að það myndi alveg sleppa ef að þú ert að tala um að hafa þetta ekki í gangi í -60 stiga frosti, þarft bara að bíða ansi lengi eftir að þú afþýðir þetta svo að það sé enginn raki í neinu þegar að þú startar þessu aftur.

Re: Frysting

Sent: Fim 10. Des 2009 16:46
af Glazier
Afhverju langar þig að setja tölvuna þína og skjáinn í frysti ? og það -60°C :O

Re: Frysting

Sent: Fim 10. Des 2009 16:46
af KermitTheFrog
Hvað ertu að fara að gera með tölvuna þína?

Re: Frysting

Sent: Fim 10. Des 2009 17:31
af Blackened
ég EFAST um að skjárinn myndi yfirhöfuð virka í svona kulda.. meina.. hefuru reynt að nota símann þinn í -10° :)
það verður allt súperslow og myndin hreyfist öruglega ekkert í svona frosti.. ekki til að nota það amk..

Re: Frysting

Sent: Fim 10. Des 2009 17:33
af urban
ég spyr nú bara...
hvar kemst þú í -60°c ?

Re: Frysting

Sent: Fim 10. Des 2009 17:38
af zdndz
Blackened skrifaði:ég EFAST um að skjárinn myndi yfirhöfuð virka í svona kulda.. meina.. hefuru reynt að nota símann þinn í -10° :)
það verður allt súperslow og myndin hreyfist öruglega ekkert í svona frosti.. ekki til að nota það amk..

er ekki að tala um að nota skjáinn í frostinu bara að geyma hann og taka hann síðan út og hvort hann virki þá

Re: Frysting

Sent: Fim 10. Des 2009 17:45
af JohnnyX
zdndz skrifaði:
Blackened skrifaði:ég EFAST um að skjárinn myndi yfirhöfuð virka í svona kulda.. meina.. hefuru reynt að nota símann þinn í -10° :)
það verður allt súperslow og myndin hreyfist öruglega ekkert í svona frosti.. ekki til að nota það amk..

er ekki að tala um að nota skjáinn í frostinu bara að geyma hann og taka hann síðan út og hvort hann virki þá

hvers vegna viltu geyma hlutina þína í frosti ?

Re: Frysting

Sent: Fim 10. Des 2009 17:49
af Glazier
Ég giska á að einhver sem hann þekkir sé í útlöndum eða að fara til útlanda með frystigám og í gámnum sé -60°C og hann vilji láta tölvuna sína og skjáinn inn í þennan gám.

Re: Frysting

Sent: Fim 10. Des 2009 17:53
af urban
Glazier skrifaði:Ég giska á að einhver sem hann þekkir sé í útlöndum eða að fara til útlanda með frystigám og í gámnum sé -60°C og hann vilji láta tölvuna sína og skjáinn inn í þennan gám.

það eru að ég held bara engir 60°c frystigámar notaðir hér við land.

voru sérstaklega fengnir frystigámar sem að gátu fyrst niður í -40°c þegar að það voru gerðar tilraunir með túnfiskveiðar.

nýjir og góðir frystigámar ná að halda ca -24° til -28°

þess vegna spurði ég nú hvar hann kæmist almennt í -60°c

Re: Frysting

Sent: Fim 10. Des 2009 18:03
af zdndz
urban skrifaði:

en vitið hvort það fer eitthvað ílla með vélbúnaðinn

Re: Frysting

Sent: Fim 10. Des 2009 18:11
af vesley
ég verð nú að vera forvitinn með að hvar kemst þú eiginlega í -60°C grunar að það séu ansi fáir staðir hérna sem eru með kælingu svo kalda að hún sé um -60°C .

Re: Frysting

Sent: Fim 10. Des 2009 18:21
af blitz
Það fer illa með dótið þitt.

Re: Frysting

Sent: Fim 10. Des 2009 18:52
af zdndz
blitz skrifaði:Það fer illa með dótið þitt.

ertu viss?

Re: Frysting

Sent: Fim 10. Des 2009 19:18
af Glazier
Ertu samt til í að segja okkur hvar þú ætlar að setja tölvuna í -60°C ? :D

Re: Frysting

Sent: Fim 10. Des 2009 19:24
af zdndz
Glazier skrifaði:Ertu samt til í að segja okkur hvar þú ætlar að setja tölvuna í -60°C ? :D

get það ekki, er að spurja fyrir annan gaur, en veit eitthver með vissu hvort -60°C frost hefur áhrif á tölvu og skjá???

Re: Frysting

Sent: Fim 10. Des 2009 19:27
af urban
ég mundi HALDA að tölvan sjálf ætti ekki að skemmast neitt.

en skjá mundi ég aldrei nokkurn tíman í mikið frost (helst halda honum frostlausum)

og já, ef að eitthvað af þessu verður, ekki gleyma því að þegar að hlutir fara að þiðna, þá myndast raki.

EN JÁ þetta er það sem að ég held og mig grunar, hef svo sem ekkert fyrir mér í þessu.

Re: Frysting

Sent: Fim 10. Des 2009 19:30
af kazgalor
LCD er liquid crystal display, sem að eyðileggst þegar að þeir frjósa. ég hef lent í því að skilja lcd skjá eftir í frosti yfir nótt og það komu svona svartir blettir í hann. En ef um er að ræða CRT skjá þá ætti það alveg að virka.

Tölvan er annað mál, þekki ekki alveg inná það, en ég myndi halda að það færi ekki vel með hana að vera í svona kulda, vegna rakabreitinga í loftinu.

Re: Frysting

Sent: Fim 10. Des 2009 20:17
af Glazier
Þenjast hlutir ekki út þegar þeir frjósa ?
Ef það gerist með tölvuhlutina þá mundi ég ekki gera þetta :P

Re: Frysting

Sent: Fim 10. Des 2009 20:21
af palmi6400
Glazier skrifaði:Þenjast hlutir ekki út þegar þeir frjósa ?
Ef það gerist með tölvuhlutina þá mundi ég ekki gera þetta :P

mig minnir að það sé bara vatn sem þenst út

Re: Frysting

Sent: Fim 10. Des 2009 20:27
af mercury
málmar þenjast út þegar þeir hitna. ef ég man rétt þá stækkar járn um 0.015mm fyrir hverja °c :D eða hvort það var 0.15 6 ár síðan ég lærði þetta í skóla.

Re: Frysting

Sent: Fim 10. Des 2009 20:32
af MrT
mercury skrifaði:málmar þenjast út þegar þeir hitna. ef ég man rétt þá stækkar járn um 0.015mm fyrir hverja °c :D eða hvort það var 0.15 6 ár síðan ég lærði þetta í skóla.

Það er hvorugt rétt. Það vantar viðmiðun... Nema þú sért að segja að þúsund trilljón tonna járnkubbur stækki jafn mikið og tíu gramma járnkubbur þegar báðir eru hitaðir um eina °C.

Re: Frysting

Sent: Fim 10. Des 2009 20:40
af Glazier
palmi6400 skrifaði:
Glazier skrifaði:Þenjast hlutir ekki út þegar þeir frjósa ?
Ef það gerist með tölvuhlutina þá mundi ég ekki gera þetta :P

mig minnir að það sé bara vatn sem þenst út

Já ég veit að vatn þenst út en ok t.d. diskarnir í harða disknum mundu ekki beint þenjast út en þegar um er að ræða -60°C frost gætu þær þá ekki farið á einskonar hreyfingu ?

Re: Frysting

Sent: Fim 10. Des 2009 20:52
af mercury
já ég man ekkert hvort það var gramm eða hvað.. eina sem ég er að segja er það að málmar þenjast amk flestir út við að hitna. og minnka við að kólna.

Re: Frysting

Sent: Fim 10. Des 2009 22:55
af Nariur
palmi6400 skrifaði:
Glazier skrifaði:Þenjast hlutir ekki út þegar þeir frjósa ?
Ef það gerist með tölvuhlutina þá mundi ég ekki gera þetta :P

mig minnir að það sé bara vatn sem þenst út

vatn þenst út, allt annað skreppur saman