Síða 1 af 1

Dell U2410... "frábært" verð hérna heima...

Sent: Mán 07. Des 2009 02:48
af oskarom
Ég spyr, hvernig getur skjár sem kostar 599$ í US kosta 228.850 krónur hérna heima? Ég veit alveg að gengið er farið til fjandans en fjandinn hafi það..

http://ejs.is/Pages/1006/itemno/U2410

Langaði bara að deila þessu með ykkur...

Re: Dell U2410... "frábært" verð hérna heima...

Sent: Mán 07. Des 2009 03:16
af SteiniP
Engann veginn réttlætanlegt.

Hingað kominn með öllum tollum er hann á 120k.
Ekki nema 90% álagning :roll:

Re: Dell U2410... "frábært" verð hérna heima...

Sent: Mán 07. Des 2009 03:37
af fireiron
Ég á svona skjá eða sagt erffði hann frá pabba mínum er hann svona suddalega dýr ;O hann borgaði held ég bara 70 þús fyrir hann í dannmörku f. ´4 árum eað svo

Re: Dell U2410... "frábært" verð hérna heima...

Sent: Mán 07. Des 2009 07:39
af oskarom
Nei þetta er rugl hvað við látum bjóða okkur...

fireiron ég efa það að það sé svona skjár, þessi var að koma á markað í US núna í haust og ég er búinn að bíða eftir að sjá verð á honum hérna heim :). En Dell hafa gert marga frábæra 24" skjái áður sem eru mjög svipaðir í útliti og þessi.

Re: Dell U2410... "frábært" verð hérna heima...

Sent: Mán 07. Des 2009 07:48
af hsm
SteiniP skrifaði:Engann veginn réttlætanlegt.

Hingað kominn með öllum tollum er hann á 120k.
Ekki nema 90% álagning :roll:

Ég get alveg lofað þér því að EJS er ekki að fá skjáinn á 120.000 kr til sín með vaski, þeir kaupa þá ekki út úr búð í USA.
Þetta er vel á annaðhundrað prósent álagning. [-(

Re: Dell U2410... "frábært" verð hérna heima...

Sent: Mán 07. Des 2009 09:07
af Lunesta
Þetta er alltaf svona, t.d. Dýrasti alien ware lappin óbreyttur kostar 550.þús hér heima (http://ejs.is/pages/1257) en kostar 1699 dali úti í bandaríkjunum (http://www.alienware.com/microsite/holi ... ab=laptops) sem er c.a. 204000!!

Re: Dell U2410... "frábært" verð hérna heima...

Sent: Mán 07. Des 2009 09:11
af Allinn
Er þetta bara hjá EJS?

Re: Dell U2410... "frábært" verð hérna heima...

Sent: Mán 07. Des 2009 09:15
af ponzer
fireiron skrifaði:Ég á svona skjá eða sagt erffði hann frá pabba mínum er hann svona suddalega dýr ;O hann borgaði held ég bara 70 þús fyrir hann í dannmörku f. ´4 árum eað svo

Þessi skjár var ekki til fyrir 4 árum.

Re: Dell U2410... "frábært" verð hérna heima...

Sent: Mán 07. Des 2009 09:15
af SteiniP
hsm skrifaði:
SteiniP skrifaði:Engann veginn réttlætanlegt.

Hingað kominn með öllum tollum er hann á 120k.
Ekki nema 90% álagning :roll:

Ég get alveg lofað þér því að EJS er ekki að fá skjáinn á 120.000 kr til sín með vaski, þeir kaupa þá ekki út úr búð í USA.
Þetta er vel á annaðhundrað prósent álagning. [-(

Nákvæmlega

Alveg merkilegt að þeir skuli komast upp með þetta, örugglega fullt af fólki sem að verslar þessa hluti af þeim ef það veit ekki betur.

Re: Dell U2410... "frábært" verð hérna heima...

Sent: Mán 07. Des 2009 09:30
af hsm
Lunesta skrifaði:Þetta er alltaf svona, t.d. Dýrasti alien ware lappin óbreyttur kostar 550.þús hér heima (http://ejs.is/pages/1257) en kostar 1699 dali úti í bandaríkjunum (http://www.alienware.com/microsite/holi ... ab=laptops) sem er c.a. 204000!!

Reyndar kostar þessi Alienware tölva sem er auglýst hjá ejs um 2.752 dali, því að hún er ekki óbreytt. Sem gerir tæp 340.000 kr. Bara svo að það sé á hreinu :D
Er alls ekki að verja ejs, en satt skal vera satt.

Re: Dell U2410... "frábært" verð hérna heima...

Sent: Mán 07. Des 2009 23:07
af dnz

Samt að spara alveg 210 þús! Fooook þetta er dýrt!

Re: Dell U2410... "frábært" verð hérna heima...

Sent: Mán 07. Des 2009 23:33
af chaplin
Ripooofff! Og ef ég man rétt þá borgar maður ekki toll á tölvuvörum, getur vel verið að sjár falli ekki undir það eneinnig borgar kaupandinn vsk, sem er 24,5%..

Re: Dell U2410... "frábært" verð hérna heima...

Sent: Þri 08. Des 2009 00:20
af hagur
Það væri gaman að sjá hvað Friðjón hjá Buy.is getur boðið þennan skjá á mikið ....

Skora á ykkur að spyrja hann á buy.is þræðinum í koníakstofunni :8)

Re: Dell U2410... "frábært" verð hérna heima...

Sent: Þri 08. Des 2009 10:56
af Halli25
bara benda á að þessi skjár er með HDMI tengi sem tollurinn sér sem sjónvarpstengi og þar af leiðandi 35% tollar og gjöld af þessum skjá. Munið svo að verð á netinu er oftast án vsk. sem er bara 24,5% í dag. Verður 25% eftir áramót jeij :)

En já verðið á EJS er samt útúr kú...!

Re: Dell U2410... "frábært" verð hérna heima...

Sent: Þri 08. Des 2009 11:29
af hagur
Ef þetta er rétt með HDMI-tengið .... djöfull er það þá fáránlegt. Eiginlega trúi því varla, því þetta er samt sem áður bara monitor, inniheldur engan sjónvarpsmóttakara!

Ég pantaði mér skjá um daginn á buy.is sem er með VGA/DVI/HDMI og Component og miðað við verðið úti og verðið sem buy.is býður þá sé ég ekki að sá skjár hafi verið tollaður uppá 35%. Þá væri buy.is að selja hann undir kostnaðarverði til mín.

Ég er nokkuð viss um að það sem ræður því hvort að skjár sé flokkaður sem sjónvarp eða monitor fer alfarið eftir því hvort hann innihaldi sjónvarpsmóttakara, hvort heldur er analog eða DVB-x.

Re: Dell U2410... "frábært" verð hérna heima...

Sent: Þri 08. Des 2009 11:47
af Daz
hagur skrifaði:Ef þetta er rétt með HDMI-tengið .... djöfull er það þá fáránlegt. Eiginlega trúi því varla, því þetta er samt sem áður bara monitor, inniheldur engan sjónvarpsmóttakara!

Ég pantaði mér skjá um daginn á buy.is sem er með VGA/DVI/HDMI og Component og miðað við verðið úti og verðið sem buy.is býður þá sé ég ekki að sá skjár hafi verið tollaður uppá 35%. Þá væri buy.is að selja hann undir kostnaðarverði til mín.

Ég er nokkuð viss um að það sem ræður því hvort að skjár sé flokkaður sem sjónvarp eða monitor fer alfarið eftir því hvort hann innihaldi sjónvarpsmóttakara, hvort heldur er analog eða DVB-x.

Einhverntíman hafði ég samband við shopusa varðandi flokka fyrir sjónvarp/skjá og þá var móttakarinn málið.

Re: Dell U2410... "frábært" verð hérna heima...

Sent: Þri 08. Des 2009 12:58
af einarhr
Þessi skjár kostar 7100 sek hér í Svíþjóð sem gerir um 124 þús iskr skv. myntbreyti mbl.is. Ath verð er með vsk og sendingarkostnaði til einstaklings. http://accessories.euro.dell.com/sna/products/Bildsk%C3%A4rmar/productdetail.aspx?c=se&l=sv&s=dhs&cs=sedhs1&sku=294998
Dell hefur alltaf verið miklu ódýrara hérna í Svíþjóð og einungis selt á netinu eins og í flestum löndum fyrir utan Ísland. EJS er okurbúð, Dell á að vera vandaður tövubúnaður fyrir lítin pening en EJS er búin að breyta því á Íslandi. Vandaður tölvubúnaður á okurverði.

Btw tölvubúnaður er á svipuðu verði hérna eins og á Íslandi en auðvita hægt að detta inn á fáránleg tilboð.

Re: Dell U2410... "frábært" verð hérna heima...

Sent: Þri 08. Des 2009 13:06
af oskarom
Þetta er eiginlega algjör synd...

Dell komu með 2209WA sem var fyrsti 22" e-IPS skjárinn sem var á heilbrigðu verði, kostaði um 300USD og um 60þús hjá EJS fyrst en hefur hækkað í 78þús núna.

Síðan koma Dell með U2410 sem er mun betri IPS skjár. 24" og á virkilega góðu verði í US, 599USD, miðað við sambærilega skjái eins og NEC sem kostar um 1000USD.

Ef þessi skjár væri ekki með þessa bull álagningu gætu þeir mokað þessu út! Ég myndi allavega kaupa 3, er með 3x 2209WA núna og það er algjör snilld, ég kem aldrei til með að kaupa TN skjá aftur.