Síða 1 af 2
Hvað endast mýs lengi?
Sent: Fös 06. Nóv 2009 00:11
af KermitTheFrog
Endast þær bara í ákveðinn tíma eða hvað? Er búinn að eiga svona 13 mýs sem enda allar á því að tvíklikka á single-clicki, eða hreinlega klikka bara þegar þeim sýnist.
Eða er þetta bara slæm meðferð af minni hálfu?
Er einhver kröftug mús sem menn myndu mæla með?
Re: Mýs...
Sent: Fös 06. Nóv 2009 00:32
af sakaxxx
ég er búinn að nota targus mús í 3 ár kostaði á sínum tíma 1500 og hún er einsvog ný, ég hef aldrei átt mús sem hefur bilað kannski bara heppni
Re: Mýs...
Sent: Fös 06. Nóv 2009 00:40
af demigod
Re: Mýs...
Sent: Fös 06. Nóv 2009 19:58
af Gunnar
mx518
buinn að eiga hana í yfir 3 ár held ég og eina sem er að hrá hana er að ég er buinn að nota hana svo mikið að húðin er byrjuð að flagna af
Re: Mýs...
Sent: Fös 06. Nóv 2009 20:01
af SteiniP
ég tek undir mx518
Ég átti þannig þegar hún kom fyrst á markað, svo hellti ég kóki yfir hana og braut hana við að rífa hana í sundur
Sé mikið eftir þeirri mús, er að spá í að fá mér nýja þannig.
Re: Mýs...
Sent: Fös 06. Nóv 2009 20:15
af Glazier
Er með MX518 sem er að verða 3 ára og hún virkar fínt
lítur líka út eins og ný. (því ég lem í lyklaborðið þegar í er pirraður en ekki í músina)
Re: Mýs...
Sent: Fös 06. Nóv 2009 20:18
af daremo
Ég fór í gegnum margar MS explorer 3.0 á skömmum tíma sem enduðu allar með tvíklikki. Fékk mér svo mx518 sem ég hef átt í amk 4 ár núna.
Re: Mýs...
Sent: Fös 06. Nóv 2009 20:26
af JohnnyX
Ég er búinn að eiga Razer mús í 2 ár núna og hún virkar fínt. Hef aldrei lent í því að mýsnar sem að ég hef hafi verið að bila
Re: Mýs...
Sent: Fös 06. Nóv 2009 20:29
af Orri
Er með MX Revolution sem ég keypti hérna á Vaktinni.
Hún tvíklikkar ef ég ýti laust á takkann.
Hinsvegar ef ég ýti nógu "fast" á takkann þá virkar hann eðlilega, ég vandist því fljótt, hinsvegar finnst öðrum það mjög pirrandi
Re: Mýs...
Sent: Fös 06. Nóv 2009 20:36
af Cikster
Ég er með MX Revolution mús.... glæný þar sem sú upprunalega var farin að tvíklikka. Kom mér á óvart hvað það gekk fljótt fyrir sig í Elko að fá nýja og kom mér enn meira á óvart hvað hún er búin að hækka rosalega í verði.
Re: Mýs...
Sent: Fös 06. Nóv 2009 20:52
af rottuhydingur
G9 fynst mer nu bara lang best , hef prufað þetta allt ,svo kom fékk ég mer þessa og hun stóð uppúr
Re: Mýs...
Sent: Fös 06. Nóv 2009 22:48
af binnip
Ég er með g9, ágætis mús EN er að verða frekar þreyttur á gripinu, er ekki alveg að fýla shape-ið. Er að spá í að fá mer ms 3.0 í staðinn, svona til að prófa.
Re: Mýs...
Sent: Fös 06. Nóv 2009 22:55
af Daz
MX510
Búin að endast mér í ... mörg ár. Held ég hafi farið í gegnum svona 3 mýs á 10 árum (Fyrir utan þegar ég spilaði CM á sínum tíma).
Re: Mýs...
Sent: Lau 07. Nóv 2009 00:04
af himminn
Razer deathadder
Re: Mýs...
Sent: Lau 07. Nóv 2009 02:07
af GullMoli
Er ennþá að nota fermingarmúsina mína, 5+ ár síðan.
MX510 4tw!
Re: Mýs...
Sent: Lau 07. Nóv 2009 10:34
af zlamm
Mín. búinn að eiga hana í hartnæt 4-5 ár. er eins og ný. reyndar er skrolltakkinn eins og að það sé búið að kroppa í hann, en það er bara ég.(Verð oft pirraður í tölvunni)
Re: Mýs...
Sent: Lau 07. Nóv 2009 12:05
af Glazier
zlamm skrifaði:*Mynd*
Mín. búinn að eiga hana í hjartnæt 4-5 ár. er eins og ný. reyndar er skrolltakkinn eins og að það sé búið að kroppa í hann, en það er bara ég.(Verð oft pirraður í tölvunni)
Þetta er náttla
aldrei fyrir 5 kall.
Re: Mýs...
Sent: Lau 07. Nóv 2009 12:31
af Gunnar
Glazier skrifaði:zlamm skrifaði:*Mynd*
Mín. búinn að eiga hana í hjartnæt 4-5 ár. er eins og ný. reyndar er skrolltakkinn eins og að það sé búið að kroppa í hann, en það er bara ég.(Verð oft pirraður í tölvunni)
Þetta er náttla
aldrei fyrir 5 kall.
hann sagði það alldrei.
Re: Mýs...
Sent: Sun 08. Nóv 2009 15:19
af Hvati
Búinn að eiga MX518 í 4-5 ár og notað hana mikið en það er ekkert að henni, Logitech logoið er orðið svoldið ljótt en það er það eina.
Re: Mýs...
Sent: Sun 08. Nóv 2009 15:53
af Blackened
búinn að eiga MX510 í mörg mörg ár og það er bara ekkert að henni.. besta mús sem ég hef notað!
Re: Mýs...
Sent: Mið 11. Nóv 2009 17:29
af dnz
Búinn að eiga Razer Deathadder í rúmt hálft ár og elska hana, besta mús af mínu mati. Svo eru Mx500 series alltaf í öðru hjá mér, geggjaðar og endast þvílíkt!
Re: Mýs...
Sent: Þri 17. Nóv 2009 19:49
af Frost
Búinn að eiga MX518, G5 og G9. Var lang sáttastur með MX518, langar að reyna að fá þannig aftur :S.
Re: Mýs...
Sent: Þri 17. Nóv 2009 19:56
af Predator
búinn að eiga mx510 músina mína í 5-6 ár, hefur ekki klikkað hingað til
Re: Mýs...
Sent: Þri 17. Nóv 2009 22:38
af Nariur
Predator skrifaði:búinn að eiga mx510 músina mína í 5-6 ár, hefur ekki klikkað hingað til
er þá ekki kominn tími á að losa sig við hana, þú hefðir átt að skila henni strax!
Re: Mýs...
Sent: Þri 17. Nóv 2009 22:47
af KermitTheFrog
Nariur skrifaði:Predator skrifaði:búinn að eiga mx510 músina mína í 5-6 ár, hefur ekki klikkað hingað til
er þá ekki kominn tími á að losa sig við hana, þú hefðir átt að skila henni strax!
Barúmm búmm tiss!