Síða 1 af 1

Daddara

Sent: Mán 13. Jan 2003 17:48
af Atlinn
745-Ultra, SiS745, ATA100, 3xDDR333, 1xAGP4x, 5xPCI, 1xCNR, 4xUSB, hljóðk, SocketA 9.990
Þetta móðurborð...
Á einhver svona?
Hvernig er það að virka?

Sent: Þri 14. Jan 2003 18:52
af Buddy
MSI er ekki gott merki. Kubbasettið er nokkuð gott og á að styðja Thoroughbred orgjörva allt að 2700+.

Ég mæli með ASUS móðurborðinu með sama kubbasetti.

Sent: Þri 14. Jan 2003 19:01
af kiddi
Pínulítið út fyrir efnið, en mig langaði bara að nefna að MSI hefur verið í Top 5 bestu móðurborð með öllum kubbasettum fyrir alla örgjörva á greiningum TomsHardware undanfarin 2 ár. :-) (ASUS er auðvitað toppurinn samt!)

Sent: Þri 14. Jan 2003 22:34
af GuðjónR
Sammála, ég er með 2 tölvur önnur er með ASUS móbói og hin MSI báðar virka fínt og mjög stöðugar.

Sent: Þri 14. Jan 2003 23:43
af Atlinn
Buddy skrifaði:MSI er ekki gott merki. Kubbasettið er nokkuð gott og á að styðja Thoroughbred orgjörva allt að 2700+.

Ég mæli með ASUS móðurborðinu með sama kubbasetti.


humm ég hef nú bara átt MSI móðurborð benti vini mínum á að kapa svoleiðis ásamt öðrum vini mínum sem er töluvert vitmeiri en ég í svna málum, hann er að ég held líka með MSI borð. Ég hef ekkert nema góða reynslu af þessu, svo er þetta líka öflugt móðurborð miðað við verð.
Ef þú getur bent mér á móðurborð frá ASUS fyrir 9.990 kall (hérna á íslandi), sem styður frá K7 Duron 600mhz til Athlon XP 2600+ þá...

Sent: Mið 15. Jan 2003 01:25
af Hannesinn
Ég á eitt stk. MSI 6341 (K7-MASTER) og ég hef aðeins eitt út á það að setja... Það hitnar eins og motherf***er! Að öðru leiti er það stabílt og gott.