Síða 1 af 1
Tolvubúnaður í Noregi
Sent: Mið 23. Sep 2009 17:51
af KermitTheFrog
Jæja, ég er að fara til Noregs í október með bekknum mínum og datt í hug hvort það væri ekki sniðugt að reyna að versla einhvern tölvubúnað þar. Hvernig er með það?
Eru ekki einhverjar proper tölvuverslanir þarna í Osló?
Re: Tolvubúnaður í Noregi
Sent: Mið 23. Sep 2009 18:37
af Dindill
Veit ekki um propper búð en þeir eru með ELKO
http://www.elkjop.no/
Re: Tolvubúnaður í Noregi
Sent: Mið 23. Sep 2009 19:20
af Einarr
Hw.no og ferð í prisguide (svoan verðvakt)
Re: Tolvubúnaður í Noregi
Sent: Mið 23. Sep 2009 20:31
af Drone
Er ekki tölvubúnaður í Noregi bara dýrari en á ísl í dag? viðbjóðslega óhagstætt gengi, norska krónan er viðbjóðslega há.
Re: Tolvubúnaður í Noregi
Sent: Mið 23. Sep 2009 20:41
af KermitTheFrog
Var að skoða þetta og þetta er pínu ódýrara úti, en enginn svaka munur.
Re: Tolvubúnaður í Noregi
Sent: Mið 23. Sep 2009 21:17
af BjarniTS
Alveg góð pæling en ég held að það sé ekkert voðalega hagstætt fyrir þig á neina vegu að taka með þér tölvubúnað hingað heim.
Margar ástæður.
Re: Tolvubúnaður í Noregi
Sent: Mið 23. Sep 2009 21:22
af SteiniP
Myndi allavega vera viðbúinn að þurfa að borga vsk í tollinum og jafnvel sekt ef þú ert tekinn við að reyna að lauma þessu í gegn.
Re: Tolvubúnaður í Noregi
Sent: Mið 23. Sep 2009 21:22
af Glazier
BjarniTS skrifaði:Alveg góð pæling en ég held að það sé ekkert voðalega hagstætt fyrir þig á neina vegu að taka með þér tölvubúnað hingað heim.
Margar ástæður.
Ég keypti mér nú fartölvu þarna úti í Expert á 130.000 kr. sem hefði kostað um 200.000 kr. hér heima
Re: Tolvubúnaður í Noregi
Sent: Mið 23. Sep 2009 22:50
af BjarniTS
Glazier skrifaði:BjarniTS skrifaði:Alveg góð pæling en ég held að það sé ekkert voðalega hagstætt fyrir þig á neina vegu að taka með þér tölvubúnað hingað heim.
Margar ástæður.
Ég keypti mér nú fartölvu þarna úti í Expert á 130.000 kr. sem hefði kostað um 200.000 kr. hér heima
Já mögulega fartölvu ef að þú kemst með hana , en að flakka um með viðkvæman tölvubúnað.
Efir því sem að hann verður dýrari er það meiri áhætta , eftir því sem hann er ódýrari er ávinningurinn af kaupunum , þeim mun minni.
Fartölvur eru svolítið annar handleggur.