Síða 1 af 1

XP2500+ og OC eða XP3000+

Sent: Fös 19. Des 2003 09:25
af bjorna
Sælir, er að fara að kaupa nýja vél eftir helgi. Mig langar að spurja hvort þið mælið með að taka:

1. AMD XP2500+ og yfirklukka ef/þegar þarf

eða

2. AMD XP3000+

Það er sama FSB, L1 og L2 cache á þessum örgjörvum. Ég ætla að versla við Tölvuvirkni og þar munar 14 þúsund á verði sem er kannski helsta ástæðan fyrir því að ég varpa þessu fram.

Sent: Fös 19. Des 2003 09:51
af elv
Ég myndi fá mér 2500 Barton.
Og nota mismuninn til að kaupa gott modo og gott minni.

Shuttle An35 borðið hjá þeim er kannski ekki flotasta mobo, en flestir eru að ná 210-220 FSB með 2500 Barton.

Sent: Fös 19. Des 2003 11:27
af bjorna
Takk fyrir það, ég ætla að taka Gigabyte MOBO hjá þeim með VIA KT600 kubbasetti sem er það eina hjá þeim sem er spekkað fyrir það sem ég er að fara að gera.

Hugsa að ég fari að þínum ráðum og taki XP2500+

Sent: Fös 19. Des 2003 11:31
af Pandemic
But all of the new amd xp processors are locked so you cant overclock them :/

Sent: Fös 19. Des 2003 11:40
af gnarr
það er alltaf hægt að toga upp fsb, þótt hann sé clock læstur

Sent: Fös 19. Des 2003 12:02
af elv
Pandemic skrifaði:But all of the new amd xp processors are locked so you cant overclock them :/


Það er bara Mutli sem er læstur.
Ef þú notar SerialATA og ætlar að klukka, þá skaltu halda þig við við 200FSB þar sem það er viðkvæmt að fara úr synci.
Ef þú nærð að keyra 2500 á 200FSB ( sem ætti ekki að vera erfitt) þá ertu með 11*200=2200 sem er sama og 3200 ;)

Sent: Fös 19. Des 2003 12:19
af Fletch
allt í lagi að fara yfir 200 FSB svo lengi sem þú læsir agp/pci á 66/33 MHz

Fletch

Re: XP2500+ og OC eða XP3000+

Sent: Fös 19. Des 2003 12:30
af legi
Hmm overclock og kt 600 :shock:

ekki hægt að læsa agp/pci á kt 600 borðum þannig að ég mundi nú kaupa eithvað annað

Sent: Fös 19. Des 2003 12:33
af Fletch
að kaupa móðurborð sem er ekki hægt að læsa agp/pci er náttla bannað :roll:

Fletch

Sent: Fös 19. Des 2003 17:15
af Guffi
2500 barton myndi eg velja

Sent: Sun 21. Des 2003 15:04
af Damien
Er ekki hægt að fara með multiplier upp í 12 eða 12.5 með örran læstan?

Odinnn er með Athlon XP2500+ og A7N8X D og hann getur fært multi allveg frá 10 og uppí 12 eða 12.5...

:?

Sent: Sun 21. Des 2003 15:05
af Damien
Munar kannski þessu á Athlon og Barton örgjörvum... :?

Sent: Sun 21. Des 2003 17:18
af elv
Ef hann hetur breytt multi eitthvað þá er hann ekki læstur.
Það virðist vera misskilningur um að örgjörvar séu læstir ef það er ekki hægt að nota alla multi 5-12 ,12-24.Og það er verið að selja einhvað dót til að setja undir örran til " að aflæsa hann". Þetta eru móðurborðin sem geta ekki lesið allan multi almennilega.

Sent: Sun 21. Des 2003 17:43
af Voffinn
Vúhú, fyrsta skiptið sem ég reyni að OC eitthvað. Ég las helling um þetta og nennti þessu varla en langaði að prufa að henda fbus uppí 200 og gerði það. Viti menn, hún búttaði og var svona semi-stable. Gat meðal annars compileað 2.6 kernelinn og keyrt cpuburn í einhvern tíma. :D Nenni ekki að hafa óstöðuga tölvu, þannig að ég setti það aftur í 166. Þetta er bara loftkælt og hitinn fór mest uppí 41° í cpuburn.

Sent: Sun 21. Des 2003 17:44
af Fletch
41°C er ekkert mar... hækka vcore smá og þá ertu góður :twisted:

Fletch

Sent: Sun 21. Des 2003 17:45
af Voffinn
Þetta hljómaði frekar overhelming að hækka fbus um 1 og keyra svo benchmark tól í einhverja klukkutíma.

Svo er ég ekki alveg 100% á hvað ég á að keyra minnið á og svona :(

Sent: Þri 23. Des 2003 04:30
af Buddy
VIA kubbasett hafa ekki reynst vel til að yfirklukka með XP örgjörfum. Ég mæli með nForce 2 móðurborðunum.

Sent: Þri 23. Des 2003 11:08
af Bendill
• All 2003 weeks 43 and later Bartons and Thoroughbreds are locked.
• Some weeks 35 to 43 are locked, some are not, and that includes Thoroughbreds, Thortons and Durons.
• There are rare cases of post 2003 week 43 unlocked Durons.

Ef þú finnur einhvern sem er eldri en vika 43 í búðum þá ertu heppinn :D