Síða 1 af 1

Þráðlausir earbuds

Sent: Fim 02. Júl 2009 09:12
af KermitTheFrog
Hefur einhver reynslu af svona græjum? Svona eitthvað líkt þessu.

Var að pæla í að nota þetta samsíða iPod til að geta hlustað á tónlist í vinnunni án þess að það þurfi að liggja snúra niður í bolinn minn.

Re: Þráðlausir earbuds

Sent: Fim 02. Júl 2009 09:24
af Glazier
Er ipodinn þinn með bluetooth ?

Re: Þráðlausir earbuds

Sent: Fim 02. Júl 2009 13:00
af Tiger
Ipod Touch er með bluetooth held ég örugglega.... já eða iPhone bara :) Svolítið nett vara

Re: Þráðlausir earbuds

Sent: Fim 02. Júl 2009 13:18
af urban
djöfulli er þetta gott verð á þessu.

Re: Þráðlausir earbuds

Sent: Fim 02. Júl 2009 17:44
af lukkuláki
Bara benda á þetta í gamni ég nota svona http://www.ejs.is/Pages/1025/itemno/520-10699 í minni vinnu ...daglega
Efast um að það sé þægilegt að hafa svona inni í eyranu mest allan daginn.

Mynd
Bluetooth
Þessi eru létt og nett.

Re: Þráðlausir earbuds

Sent: Fim 02. Júl 2009 18:12
af Glazier
lukkuláki skrifaði:Bara benda á þetta í gamni ég nota svona http://www.ejs.is/Pages/1025/itemno/520-10699 í minni vinnu ...daglega
Efast um að það sé þægilegt að hafa svona inni í eyranu mest allan daginn.

Mynd
Bluetooth
Þessi eru létt og nett.

ooo gaman að því að ég sá mann með svona áðan þegar ég var í neðanjarðarlest hér í moskvu :D
var lengi að pæla hvað þetta væri því það var engin snúra (hvort hann væri að hlusta á tónlist eða að þetta væri bara þráðlaus búnaður fyrir síma)

Re: Þráðlausir earbuds

Sent: Fim 02. Júl 2009 22:45
af ManiO
Snuddi skrifaði:Ipod Touch er með bluetooth held ég örugglega.... já eða iPhone bara :) Svolítið nett vara



2nd gen ipod touch er með bluetooth, en ef menn hafa keypt hann fyrir júní í þessum mánuði þarf að borga fyrir firmware til að aflæsa það (eða jailbreaka hann að sjálfsögðu).

Re: Þráðlausir earbuds

Sent: Fös 03. Júl 2009 21:09
af KermitTheFrog
Hélt nú bara að það væri hægt að kaupa earbuds sem koma með svona bluetooth sendi sem þú stingur í headphone jack.

Re: Þráðlausir earbuds

Sent: Þri 07. Júl 2009 17:21
af 0li
Sá að þú getur fengið svona í max eða att með svona bluetooth jack.

T.d. http://www.att.is/product_info.php?cPat ... c68b3422e3 en þá ertu líka komin út í eitthvað meira en bara tónlist sýnist mér