Síða 1 af 1

Deleted or not deleted?

Sent: Fös 05. Des 2003 17:58
af Drizzt
Ég var nú ekki alveg viss þegar ég skrifaði þetta hvort þetta vandamál heyrði undir Windows eða Harðadiska þar sem ég veit ekki hvort þetta er win sem sýnir þetta rangt eða hvort það sé eitthvað virkilega að harðadisknum.

Allavega, núna er ég með 1x 80gb disk skipt í 2 partition annað er 6 gb (win/c: ) og hitt er 68 (drasl/d: ). Var að verða lítill á plássinu á D: svo að ég hendi einhverjum 8gb af drasli (voru 2 laus) og kíki svo aftur á hversu mikið pláss er laust á disknum, ennþá eru 2 gb! Og sama hvað ég geri þá virðast þessi 8gb bara vera horfin.

Einhverjar hugmyndir? :?

Sent: Fös 05. Des 2003 18:27
af MarlboroMan
Eina sem mér dettur í hug er að ef þú ert með norton antivirus
þá gætir þú þurft að hægrismella á ruslafötuna þína og klikka á
empty norton protected files. :roll:

Sent: Fös 05. Des 2003 18:30
af Drizzt
hah! þú ert snillingur! :D

Sent: Fös 05. Des 2003 18:43
af GuðjónR
6GB er allt of lítið fyrir system disk....
12 er eiginlega lágmark....

Sent: Fös 05. Des 2003 23:11
af Drizzt
good point

Sent: Lau 06. Des 2003 01:36
af gumol
ekki ef program files er á öðrum diskhluta

Sent: Lau 06. Des 2003 01:47
af GuðjónR
skiptir ekki máli ;)

Sent: Lau 06. Des 2003 04:13
af gnarr
ég er nú með 6Gb disk fyrir win, 80gb disk fyrir förrit og 160gb fyrir drasl. allt gengur eins og í sögu hér.

Sent: Lau 06. Des 2003 14:22
af Drizzt
program files er annars staðar..

Sent: Lau 06. Des 2003 21:01
af Damien
Hehe ég lennti í þessu sama með win98, það voru einhver 40mb laus og ég free'aði upp sonna 1gb og svo slökkti ég á tölvunni.
Daginn eftir þegar ég kveikti á tölvunni voru 4KB laus!!!
Ég restartaði aftur og *púff* aftur komið í 1GB, meira að segja 1,1GB! :D

Sent: Sun 07. Des 2003 02:49
af Hlynzit
Damien skrifaði:Hehe ég lennti í þessu sama með win98, það voru einhver 40mb laus og ég free'aði upp sonna 1gb og svo slökkti ég á tölvunni.
Daginn eftir þegar ég kveikti á tölvunni voru 4KB laus!!!
Ég restartaði aftur og *púff* aftur komið í 1GB, meira að segja 1,1GB! :D


*Steik*