Síða 1 af 1

Bestu 22" Skjáakaup nú til dags

Sent: Mán 06. Apr 2009 12:51
af Hvati
Hvaða 22" skjá mælið þið vaktarar með fyrir undir 40.000 kr.? Er búinn að reyna að finna rétta skjáinn en ég get bara ekki valið.

Re: Bestu 22" Skjáakaup nú til dags

Sent: Mán 06. Apr 2009 12:56
af LillGuy

Re: Bestu 22" Skjáakaup nú til dags

Sent: Mán 06. Apr 2009 13:34
af Hilmars

Re: Bestu 22" Skjáakaup nú til dags

Sent: Mán 06. Apr 2009 16:43
af Hvati
Hilmars skrifaði:Þessi er eitthvað til að skoða
http://www.elko.is/elko/product_detail/ ... goryid=809


Þetta háa DCR er bara sölutrick, breytir engu.

Re: Bestu 22" Skjáakaup nú til dags

Sent: Mán 06. Apr 2009 17:20
af Hilmars
Æ já þetta gengur allt út á það víst

Re: Bestu 22" Skjáakaup nú til dags

Sent: Mán 06. Apr 2009 20:24
af chaplin
Hvati skrifaði:
Hilmars skrifaði:Þessi er eitthvað til að skoða
http://www.elko.is/elko/product_detail/ ... goryid=809


Þetta háa DCR er bara sölutrick, breytir engu.


Ekki fullyrða svona rugl, rétt er að þetta breytir "litlu".. :8)

Annars er ég með SyncMaster týpuna af þessum skjá og get ég hiklaust mælt með honum, og jú það er munur á DCR, tók fyrst eftir muninum á því þegar ég sá bannerinn hérna á síðunni, án DCR var appelsínugula aðeins dekkra uppi og lýsist eins það fór neðar, en með DCR kom út aðeins skemmtilegri litur og varð eins alla leiðina.. gæti verið eitthvað sem átti ekki að gerast, hvað veit ég.. :wink:

Re: Bestu 22" Skjáakaup nú til dags

Sent: Mán 06. Apr 2009 20:33
af mind
[quote="daanielin"][quote="Hvati"][quote="Hilmars"]Þessi er eitthvað til að skoða
http://www.elko.is/elko/product_detail/ ... goryid=809[/quote]

Þetta háa DCR er bara sölutrick, breytir engu.[/quote]

Ekki fullyrða svona rugl, rétt er að þetta breytir "litlu".. :8)

Annars er ég með SyncMaster týpuna af þessum skjá og get ég hiklaust mælt með honum, og jú það er munur á DCR, tók fyrst eftir muninum á því þegar ég sá bannerinn hérna á síðunni, án DCR var appelsínugula aðeins dekkra uppi og lýsist eins það fór neðar, en með DCR kom út aðeins skemmtilegri litur og varð eins alla leiðina.. gæti verið eitthvað sem átti ekki að gerast, hvað veit ég.. :wink:[/quote]

Uhhh... bannerinn á að vera mislitur, ef hann er það ekki þá er viðkomandi skjár líklega alvarlega lita/contrast/brightness-vanstilltur. DCR ætti aldrei að geta haft þetta mikil áhrif og sérstaklega á aðra liti en svart og hvítt.

Re: Bestu 22" Skjáakaup nú til dags

Sent: Þri 14. Apr 2009 07:31
af BrynjarDreaMeR
Ertu að fara nota skjáinn í leiki eða bíomyndir [full HD support] eða [án Full HD] upplausnar, Eða Vinnslu með myndir ?

Re: Bestu 22" Skjáakaup nú til dags

Sent: Fös 17. Apr 2009 11:17
af Hörde
Þegar kemur að skjám er það ódýrasta ekki það sama og besta. Ég ætla að ganga svo langt að segja að eini góði 22" skjárinn á landinu (sem ég veit um) sé Dell 2209WA hjá EJS. Þetta er eini 22" IPS skjárinn sem ég veit um á landinu, og ég tæki hann hiklaust fram yfir þessa 22-26" TN skjái sem maður sér yfirleitt í búðum hér.

Fólk þarf að hætta að hugsa um upplausn og contrast sem mælikvarða á myndgæði. Munurinn á IPS og TN er gríðarlegur.

Edit:
Fyrir þá sem ekki vita þá er IPS dýrasta LCD tæknin en TN ódýrasta LCD tæknin. Gæðamunurinn er út af mismunandi tækni sem er notuð til að setja saman myndina.