Síða 1 af 1

Draumauppfærslan

Sent: Mið 26. Nóv 2003 15:23
af Snikkari
Ef ég væri að fara að uppfæra núna myndi ég taka þetta unit:



Örgjörvi: Intel P4 2.6GHz (800 FSB)R 21.900.- Móðurborð: MSI 648F Neo-L P4 9.975.- Minni: DDR 512MB (400 FSB) Kingston 12.255.-
Skjákort: ATI RADEON 9600PRO 128 MB 19.900.-
Harður diskur: Samsung Spinpoint P80 9.975.-
Kassi: Chieftec Dragon svartur m/ 360w 10.900.-
Vifta: Zalman CNPS6500B 6.000.-

Alls 90.905.-

Endilega komið með komment á þetta.

Sent: Mið 26. Nóv 2003 15:52
af Gothiatek
Ég myndi allavegana taka 120GB disk, kostar einhverjum hundraðköllum meira!!

Sent: Mið 26. Nóv 2003 15:58
af gnarr
ég myndi taka 2x stærri disk fyrir 3.500kr meira og ABIT IC7

Sent: Mið 26. Nóv 2003 16:30
af inFiNity
fáðu þér Zalman 7000 "týpuna" .. nýrri þar að segja :P

http://www.task.is/Scripts/prodView.asp?idproduct=359

Sent: Mið 26. Nóv 2003 16:57
af Snikkari
gnarr skrifaði:ég myndi taka 2x stærri disk fyrir 3.500kr meira og ABIT IC7


Sæll Gnarr,
Má ég spyrja af hverju að taka frekar Abit IC7 ?

Sent: Mið 26. Nóv 2003 17:04
af gnarr
Það er með nýrra chipsetti og það er best performandi móðurborð á markaðnum á eftir IC7-MAX3, það er með fá galla, það er ódýrt, það er með marga aukahluti, það er frá framleiðanda með góða fortíð :D

Sent: Mið 26. Nóv 2003 17:05
af gnarr
og það er með góða og margupdate-aða driver/bios update síðu

Sent: Mið 26. Nóv 2003 17:23
af inFiNity
http://www.digital-daily.com/motherboar ... ndex20.htm

Þarna er P4P800 að sýna smá snilld :D :D

Sent: Mið 26. Nóv 2003 17:26
af Snikkari
gnarr skrifaði:og það er með góða og margupdate-aða driver/bios update síðu


Já, takk fyrir upplýsingarnar.
En myndurðu þá taka ATA eða SATA disk ?
Skiptir það einhverju máli ?
Eru SATA diskarnir háværari ?

Aðal ástæðan fyrir að velja Samsung Spinpoint P80 er að hann er með suðvörn, sem þýðir væntanlega að hann er hljóðlátari en meðal diskur.

Hvað eru annars hljóðlátustu 120Gb diskarnir (SATA eða ATA) ?

Sent: Mið 26. Nóv 2003 18:08
af Arnar
Seagate held ég, ég heyri ekki í mínum 120gb SATA Seagate disk

Sent: Fim 27. Nóv 2003 11:36
af gnarr
já, ég myndi einmit taka samsung líka :) það eru alveg ótrúlega hljóðlátir diskar. ég er ekki alveg nógu vel inní seagate, en eru þeir með eitthvað performance? ég hef annars heyrt að samsung séu hljóðlátari en seagate, svo eru þeir líka ódýrari.