Síða 1 af 1

Hvor skjánum mælið þið með?

Sent: Þri 24. Mar 2009 12:54
af Guðjón
Sælir félagar.

Það er verið að bjóða mér tvo skjái og langar að fá smá input með hvorrum þið mælið með.

Þetta er skjáirnir :

24" BenQ G2400W
http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=vi ... nQ_G2400WD

og

22" Samsung 2253bw
http://tolvulistinn.is/vara/17862

Málið er að mig langar að fá mér 24" en hef heyrt svo rosalega góða hluti með samsung skjáina og er búinn að sjá Samsung skjáinn og er mjög flottur.

Væri til í að fá athugasemdir frá fólki sem hefur reynslu af báðum eða öðru hvorum þeirra, annað en að Benq sé stærri.

Re: Hvor skjánum mælið þið með?

Sent: Þri 24. Mar 2009 13:03
af Gunnar
benq
stærri upplausn og betri svartími. :wink:

Re: Hvor skjánum mælið þið með?

Sent: Þri 24. Mar 2009 13:08
af Guðjón
Sýnist samt að Samsung sé með 2ms í response en Benq 5ms

Gunnar skrifaði:benq
stærri upplausn og betri svartími. :wink:

Re: Hvor skjánum mælið þið með?

Sent: Þri 24. Mar 2009 13:22
af coldcut
og ég skal lofa þér því að þú tekur ekki eftir mun á 2ms og 5ms þó þú reyndir það ;)

Re: Hvor skjánum mælið þið með?

Sent: Þri 24. Mar 2009 13:27
af Guðjón
Akkúrat, var samt að benda honum Gunnari á speccana. Takk samt fyrir svörin.

Endilega fleiri að commenta varðandi upplifun þeirra á öðru hvorum skjánum.

coldcut skrifaði:og ég skal lofa þér því að þú tekur ekki eftir mun á 2ms og 5ms þó þú reyndir það ;)

Re: Hvor skjánum mælið þið með?

Sent: Þri 24. Mar 2009 13:34
af Hnykill
BenQ frekar. Stærri skjár og möguleiki á hærri upplausn. Sé pínu eftir að hafa keypt mér 22" staðinn fyrir 24", en svona er þetta. Peningarnir eru ekki beint að flæða uppúr vasanum hjá manni :)

Re: Hvor skjánum mælið þið með?

Sent: Þri 24. Mar 2009 15:01
af Gunnar
Guðjón skrifaði:Sýnist samt að Samsung sé með 2ms í response en Benq 5ms

Gunnar skrifaði:benq
stærri upplausn og betri svartími. :wink:

vá sry ég ruglaðist á skjáum var að flakka á milli þeirra og skoða speccin á þeim :D

Re: Hvor skjánum mælið þið með?

Sent: Þri 24. Mar 2009 15:18
af Doktorinn
Hvað segja menn um þennan:
http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=vi ... nQ_E2200HD

samanborið við 22" samsung sem þið nefnið hér að ofan og tölvulistinn er að selja. Það munar 15.000 kr. í verði

hefur einhver reynslu af þessum Benq?

Re: Hvor skjánum mælið þið með?

Sent: Þri 24. Mar 2009 15:41
af Filipus
Doktorinn skrifaði:Hvað segja menn um þennan:
http://www.tolvuvirkni.is/ip.php?inc=vi ... nQ_E2200HD

samanborið við 22" samsung sem þið nefnið hér að ofan og tölvulistinn er að selja. Það munar 15.000 kr. í verði

hefur einhver reynslu af þessum Benq?


Nokkuð flottur skjár, munar líka voðalega litlu í uplausn á honum og þessum 24", sýnist þér bara mjög svipaðir í flestu, helsti munurinn 2" og jú 25.000 krónur :shock: held ég myndi fá mér þennan sem er quote-að í hér fyrir ofan, annars enginn sérfræðingur (finnst hann líka flottari).

En ef þú vilt endilega þennan 24" þá er einn hér að selja svoleiðis á að mér sýnist sanngjörnu verði:
http://maclantic.is/spjall/viewtopic.ph ... 646#107646