Síða 1 af 1

Sýra eða rið ? á móðurborðinu.

Sent: Mán 16. Feb 2009 13:32
af gisli ht
Sælir sérfræðingar nú vantar mig smá álit ?

ég hef ekki hugmynd hvaða hlutir þetta eru, en ég sá þetta þegar ég fór í það að skipta út "thermal paste" dæminu eftir að ég var að lenda í því að tölvuna var að slökkva á sér , út frá því að örgjörvinn fór í 90 gráður.

sjá myndirnar.

http://www.getdropbox.com/gallery/70230/1/mobo?h=8381de

Re: Sýra eða rið ? á móðurborðinu.

Sent: Mán 16. Feb 2009 13:36
af Hyper_Pinjata
Veit ekki hvað rafeindarvirkjarnir kalla þetta Díóður eða öryggi...en þau eru definetly ónýt...mæli með því að þú skellir þér á nýtt móðurborð....og passir þá upp á kælinguna.

Re: Sýra eða rið ? á móðurborðinu.

Sent: Mán 16. Feb 2009 13:45
af CendenZ
Þetta eru ónýtir þéttar.


Keyptu þér nýtt móðurborð og ekki nota þetta.

þú þarft að formatta harða diskinn og því myndi ég mæli með að þú takir backup af öllu dótinu á núverandi disk.

Re: Sýra eða rið ? á móðurborðinu.

Sent: Mán 16. Feb 2009 15:04
af omare90
Þessir þéttar hafa eitthvað með örgjörvann (er ekki 100% viss þannig ég ætla ekki að tala af mér) þannig að þetta er kannski ástæðan fyrir því að örgjörvinn hafi hitnað svona mikið.

Er þetta ekki bara fín ástæða fyrir að kaupa sér nýja tölvu :)

Re: Sýra eða rið ? á móðurborðinu.

Sent: Mán 16. Feb 2009 15:32
af KermitTheFrog
omare90 skrifaði:Þessir þéttar hafa eitthvað með örgjörvann (er ekki 100% viss þannig ég ætla ekki að tala af mér) þannig að þetta er kannski ástæðan fyrir því að örgjörvinn hafi hitnað svona mikið.

Er þetta ekki bara fín ástæða fyrir að kaupa sér nýja tölvu :)


Nýtt móðurborð bara

Re: Sýra eða rið ? á móðurborðinu.

Sent: Mán 16. Feb 2009 15:39
af Pandemic
Nýtt móðurborð

Re: Sýra eða rið ? á móðurborðinu.

Sent: Mán 16. Feb 2009 15:47
af x le fr
Það er séns að þú eigir kröfu að fá nýtt móðurborð ókeypis! Þess virði að tékka á því. Það var bylgja af illa gerðum þéttum fyrir nokkrum árum, þetta á að flokkast undir framleiðslugalla == nýtt ókeypis borð fyrir þig, a ábyrgð framleiðanda.

Re: Sýra eða rið ? á móðurborðinu.

Sent: Mán 16. Feb 2009 15:49
af Pandemic
Þetta er intel 478 borð sem er væntanlega löngu dottið úr ábyrgð

Re: Sýra eða rið ? á móðurborðinu.

Sent: Mán 16. Feb 2009 19:01
af gisli ht
Sælir

Takk fyrir ábendingarnar !

þetta er eitthvað um 4 ára gamalt borð minnir mig.

með hvaða 478 borði mælið þið annars með :) heheheh

eða á kannski einhver þannig í kassa til að "lána" mér

kv gisli h

Re: Sýra eða rið ? á móðurborðinu.

Sent: Mán 16. Feb 2009 20:45
af lukkuláki
x le fr skrifaði:Það er séns að þú eigir kröfu að fá nýtt móðurborð ókeypis! Þess virði að tékka á því. Það var bylgja af illa gerðum þéttum fyrir nokkrum árum, þetta á að flokkast undir framleiðslugalla == nýtt ókeypis borð fyrir þig, a ábyrgð framleiðanda.


Já ég er svo sammála þér að þetta hlýtur að flokkast undir framleiðslugalla því þetta er að gerast á þessum helv. Gygabyte borðum en ég er búinn að reyna þetta ferli tvisvar og það er ekki séns að fá þetta bætt.
Það endaði með því að ég skipti um þéttana í öðru borðinu því það var mikið í húfi og það var ekkert mál og virkar enn :) og henti svo hinu það voru eins borð og þetta og keypt í tolvuvirkni minnir mig en þetta gerðist eftir að 2 ára ábyrgðartíma lauk og því ekkert hægt að gera. Þéttana keypti ég í Radíóbæ.

Re: Sýra eða rið ? á móðurborðinu.

Sent: Mán 16. Feb 2009 21:27
af Gunnar
ég skal hirða móðurborið ef þú ert ekki buinn að henda því. pm

Re: Sýra eða rið ? á móðurborðinu.

Sent: Mán 16. Feb 2009 22:47
af gisli ht
Sælir

Ekki vissi ég af þessu með gallann á þessum borðum.

En svona til að ljóstra aðeins upp um líf þessarar tölvu þá verð ég að segja ykkur að hún hefur verið nánast í gangi í 3 ára straight :) með pínu hléum. ( media/torrent server )

Og þar að auki inn í kompu þar sem "þokkalegur" raki myndaðiast oft.

Líka annað mér tekst að ræsa tölvuna, en núna frís hún svona eftir 10 min virkni.

p.s hún er ekki í gangi lengur.. :) ætla að fara í leit af ódýru setup til að skipta út borðinu, væri fínt að getað notað allt annað aftur.

gísli h

Re: Sýra eða rið ? á móðurborðinu.

Sent: Mán 16. Feb 2009 22:48
af FummiGucker
þetta eru ónýtir þéttar ;o
gerðist líka hjá vini mínum í gömlu tölvunni hanns og þá var hann hættur að geta kveikt á tölvunni gætir reynt að skipta um annars er bara mjög sniðugt að kaupa nýtt : D