Síða 1 af 1

Harði diskurinn í rugli!

Sent: Þri 27. Jan 2009 18:44
af hallib
Þannig er mál með vexti að ég var að setja upp nýtt partition á local diskinn í tölvuni minni en svo kom að því að restarta og þá fór tölvan eh að braska þetta og þegar þetta var komið uppí ca 20% þá sló rafmagninu af íbúðini og þar af leiðandi slökknaði á tölvuni.

Þegar ég svo ætlaði að kveikja aftur á henni þá kemur bara "Error Loading OS". Ég setti Live Boot disk í tölvuna og reyndi að format'a diskinn þar enn þar gerist ekkert, kemur bara "Could not complete format". Þessvegna leita ég til ykkar gúrúana, er einhvað sem ég get gert til þess að koma tölvuni í lag? þetta er frekar dýr og góður diskur sem væri synd að þurfa að endurnýja.

Re: Harði diskurinn í rugli!

Sent: Þri 27. Jan 2009 21:02
af lukkuláki
Tengja diskinn við aðra tölvu og keyra partition magic eða diskpart ?