Síða 1 af 1

ATT.is

Sent: Mán 26. Jan 2009 21:40
af Einsi10
Heyriði þannig er mál með vexti að ég var að kaupa mér tölvu og ég keypti Intel Core 2 Duo E8400 3.0GHz, 1333FSB með tölvunni og eins og flestir vita þá á eiginlega alltaf að fylgja með vifta eða kæliplötur með örgjörvanum en það fylgdi enginn og hvað finnst ykkur að ég ætti að gera? ég vona að þetta lagist á mrg því að frændi minn býr í rvk og ætlar að reyna að redda þessu en hvað finnst ykkur að ég ætti að gera ef að þetta reddast ekki á mrg?

Re: ATT.is

Sent: Mán 26. Jan 2009 21:44
af Gunnar
það fer allt eftir því hvort örgjafakæling fylgi með. það gerir það nefnilega ekki alltaf.
keiptiru tölvu og svo örgjafann sér? (þá fylgir kannski ekki með)
eða tölvu með þessu örgjörva í? (þá á mjög líklega að vera í kassanum)

Re: ATT.is

Sent: Mán 26. Jan 2009 21:45
af KermitTheFrog
Ef þú keyptir OEM örgjörva þá fylgir ekki vifta. Hún fylgir bara með Retail pakkningum

OEM
Retail

Sýnist @tt bara selja OEM örgjörva

Re: ATT.is

Sent: Mán 26. Jan 2009 21:46
af Einsi10
já okei en hvað kostar svona dæmi?
EDit: keypti alla íhlutina sér og setti hana síðan saman

Re: ATT.is

Sent: Mán 26. Jan 2009 21:47
af Matti21
Þessi ætti að duga álíka vel og intel stock kælingin.

Re: ATT.is

Sent: Mán 26. Jan 2009 21:51
af Einsi10
Matti21 skrifaði:Þessi ætti að duga álíka vel og intel stock kælingin.

Takk kærlega fyrir þetta þetta bjargar mér algjörlega en ef að þetta kemur ekki þá verður maður bara að kaupa þetta.

Re: ATT.is

Sent: Mán 26. Jan 2009 22:14
af lukkuláki
Einsi10 skrifaði:þá á eiginlega alltaf að fylgja með vifta eða kæliplötur með örgjörvanum


Þessi fullyrðing er ekki rétt eins og þú veist sennilega by now, þetta á ekki að fylgja og er val hvers og eins.
Það sem má aftur á móti betur fara er að þeir sem eru ekki mikið í tölvum þekkja ekki muninn á RETAIL og OEM enda segja þessar skammstafanir þeim ekki neitt. Það mætti auðvitað koma greinilegar fram á síðunni hvort viftan er með eða ekki allavega alveg sjálfsagt að benda fólki á það sérstaklega þeim sem búa úti á landi. En það er einn plús við þetta, viftan sem maður fær með í kassanum þegar maður kaupir RETAIL eru oftast bölvað drasl og hávaðasamar viftur þannig að það væri miklu betra fyrir þig að kaupa viftuna sér og fáðu þér einhverna sem er ekki hávær.
Oft má sjá hvað virtan hefur hátt á síðunni merkt með db. eða desibil. Ég myndi ekki taka neitt sem er með meiri hávaða en þessi:
http://www.att.is/product_info.php?cPath=41_29_31&products_id=3650
Hún er eins og þú sérð 19db. En maður verður samt að velja kælingu sem er góð miðað við það sem er verið að fara að gera í tölvunni.
Ef eigandinn er í leikjum og kannski þungum leikjum þá myndi ég taka eitthvað öflugra sem er jafnvel með viftustilli til að auka hraðann og þar með kælinguna þegar það er mikil áreynsla á örann.

Örrinn sem þú keyptir er socket 775 passaðu bara að kælingin sé það líka.

Re: ATT.is

Sent: Mán 26. Jan 2009 22:26
af jonsig
ég er með góða duo core viftu , þú getur látið félaga þinn picka hana upp