Síða 1 af 1

Var að leggja inn pöntun fyrir þessari

Sent: Fim 22. Jan 2009 14:02
af BudIcer
Örri: Intel Core 2 Duo E8500 3.16GHz 45nm 6MB

móðurborð: MSI P43 NEO-F 1600FSB DDR2 1066 16GB

Vinnsluminni: Corsair 4GB 2x2GB DDR2 800MHz CL5

Skjákort: MSI ATI Radeon HD4870 T2D512 DDR5

HD: WD Black 640GB SATA2 7200rpm 32MB

Turn: Ace Battle 4 ATX 480W

Samtals 143.500 hjá tölvulistanum

Ég veit að þetta er dýrt en ég fann mig knúinn að uppfæra mig frá amd 3400+ og geforce 5500 haha :D

Á meðan þetta hlíðir mér og keyrir crysis og aðra góða leiki vel þá er ég góður.

Re: Var að leggja inn pöntun fyrir þessari

Sent: Fim 22. Jan 2009 14:10
af Opes
Tölvulistanum :( .
Annars til hamingju með nýju tölvuna þína :).

Re: Var að leggja inn pöntun fyrir þessari

Sent: Fim 22. Jan 2009 14:16
af BudIcer
Takk takk, heh ég veit með tölvulistan en það er fátt annað til boða þegar maður býr á akureyri :?

Re: Var að leggja inn pöntun fyrir þessari

Sent: Fim 22. Jan 2009 14:18
af hsm
BudIcer skrifaði:Takk takk, heh ég veit með tölvulistan en það er fátt annað til boða þegar maður býr á akureyri :?

Flytja suður :D

Re: Var að leggja inn pöntun fyrir þessari

Sent: Fim 22. Jan 2009 14:25
af BudIcer
Hah! Held nú ekki [-X Ég ætla að forðast það í lengstu lög að flytja í borg óttans þakka pent :D

Re: Var að leggja inn pöntun fyrir þessari

Sent: Fim 22. Jan 2009 14:44
af Hjöllz
AMEN!! :P

Re: Var að leggja inn pöntun fyrir þessari

Sent: Fim 22. Jan 2009 14:49
af einarhr
BudIcer skrifaði:Örri: Intel Core 2 Duo E8500 3.16GHz 45nm 6MB

móðurborð: MSI P43 NEO-F 1600FSB DDR2 1066 16GB

Vinnsluminni: Corsair 4GB 2x2GB DDR2 800MHz CL5

Skjákort: MSI ATI Radeon HD4870 T2D512 DDR5

HD: WD Black 640GB SATA2 7200rpm 32MB

Turn: Ace Battle 4 ATX 480W

Samtals 143.500 hjá tölvulistanum

Ég veit að þetta er dýrt en ég fann mig knúinn að uppfæra mig frá amd 3400+ og geforce 5500 haha :D

Á meðan þetta hlíðir mér og keyrir crysis og aðra góða leiki vel þá er ég góður.

Ég myndi athuga með aðeins stærra Powersupply 550w-650w bara uppá framtíðina

Re: Var að leggja inn pöntun fyrir þessari

Sent: Fim 22. Jan 2009 14:51
af Sydney
Ef þú tekur road trip til Reykjavíkur geturu fengið þetta:

E8500 - 28.950
Gigabyte EP43-DS3L - 19.900
SuperTalent 4GB 2x2GB DDR2 800MHz CL5 - 9.100
Gigabyte 4870 - 44.900
640GB WD HD 7200 RPM 16MB (Buffer skiptir ekki máli nema sé verið að færi tonn af litlum skráum) - 12.150
Antec P182B - 19.860
Thermaltake PurePower 500w aflgjafi 12.900

Samtals: 147.760 og ert að fá almennilegan aflgjafa og einn besta kassa sem til er.

Re: Var að leggja inn pöntun fyrir þessari

Sent: Fim 22. Jan 2009 14:54
af Opes
Er ekki hægt að láta senda :P.

Re: Var að leggja inn pöntun fyrir þessari

Sent: Fim 22. Jan 2009 14:58
af BudIcer
Þið freistið mín strákar andskotinn hafi það! :D

Re: Var að leggja inn pöntun fyrir þessari

Sent: Fim 22. Jan 2009 15:30
af lukkuláki
ALLAR tölvubúðir senda út um allt land þannig að það að búa á Akureyri á ekki að knýja þig nauðugan til að versla við glæpalistann a.k.a. tölvulistann

Re: Var að leggja inn pöntun fyrir þessari

Sent: Fim 22. Jan 2009 15:42
af Alfa
Haha er það ekki fullhart fyrir starfsmann EJS að kalla Tölvulistann glæpalistann bwawhawhawhawhaw

Re: Var að leggja inn pöntun fyrir þessari

Sent: Fim 22. Jan 2009 16:04
af gRIMwORLD
Alfa skrifaði:Haha er það ekki fullhart fyrir starfsmann EJS að kalla Tölvulistann glæpalistann bwawhawhawhawhaw

Haha!! tek undir það

Re: Var að leggja inn pöntun fyrir þessari

Sent: Fim 22. Jan 2009 17:53
af lukkuláki
Kannski en EJS hefur allavega aldrei gert það sem tölvulistinn er hvað þekktastur fyrir og ég er ekki að tala um verð.

Re: Var að leggja inn pöntun fyrir þessari

Sent: Fim 22. Jan 2009 18:01
af Sydney
lukkuláki skrifaði:Kannski en EJS hefur allavega aldrei gert það sem tölvulistinn er hvað þekktastur fyrir og ég er ekki að tala um verð.

Að taka viðskiptavini ósmurt?

Re: Var að leggja inn pöntun fyrir þessari

Sent: Fim 22. Jan 2009 19:10
af lukkuláki
Sydney skrifaði:
lukkuláki skrifaði:Kannski en EJS hefur allavega aldrei gert það sem tölvulistinn er hvað þekktastur fyrir og ég er ekki að tala um verð.

Að taka viðskiptavini ósmurt?

Það er nú hægt að tala um að taka viðskiptavini í ósmurt á svo marga vegu ég veit ekki hvaða sögur þið hafið heyrt um tölvulistann en þær sögur sem ég hef heyrt snúa aðallega að þjónustunni hjá þeim á verkstæðinu. Nú hef ég heyrt að það séu komnir nýir eigendur og þekki ekki hvort þetta hefur eitthvað breyst en það er nokkuð langt síðan ég hef heyrt slæmar sögur af þeim. Hvað með ykkur ?

Re: Var að leggja inn pöntun fyrir þessari

Sent: Fim 22. Jan 2009 19:27
af Sydney
lukkuláki skrifaði:

Veit ekki, hef sjálfur ekki verslað við þá síðan 2006 eða eitthvað.

Re: Var að leggja inn pöntun fyrir þessari

Sent: Fim 22. Jan 2009 19:28
af Siggi86
já sæll! þetta kostar um 70þús hjá tölvuvirkni minnir mig!

Re: Var að leggja inn pöntun fyrir þessari

Sent: Fim 22. Jan 2009 20:43
af Rolker
Siggi86 skrifaði:já sæll! þetta kostar um 70þús hjá tölvuvirkni minnir mig!

Einmitt...

Örgjörvi - LGA775 - Intel Core2 Duo E8500 3.16GHz,1333MHz - Verð 36.860
Móðurborð - Intel - 775 - Gigabyte GA-EP31-DS3L móðurborð í svipuðum gæðaflokki, get ekki séð að þeir selji msi p43 - 14.900
Minni - DDR2 Minni 1066 MHz - Corsair XMS2 4096MB CL7 2x2048 - 11.860 / ég veit að þetta er 1066 minni , spurning hvort það skipti þig einhverju máli en 1066 minni kostar 12.990 hjá tölvulistanum spurning fyrir þig að taka það
Skjákort - PCI-E - ATI - Gigabyte HD4870 PCI-E2.0 skjákort 512MB GDDR5 - 44.900
Harður Diskur - 3.5" - S-ATA2 - Seagate Barracuda 7200.11 500GB 7200 32MB. get ekki séð að þeir séu með wd black, sem er btw betri diskur - 10.860

samtals - 119.380kr hjá tölvuvirkni, og það er með verri hdd og ekki turn innifalinn, ef setjum sem svo að black diskurinn kosti 16.990 þá áttu um 20k eftir fyrir turn og þá ertu kominn í sama pening.

Tölvuíhlutir á Íslandi eru á mjög svipuðu verði allstaðar, þannig helst samkeppni, og ef þú ert á Akureyri myndi ég versla í heimabyggð, ef eitthvað af þessu bilar þá fara 2 dagar í póstflutninga, og þú getur sjálfur farið í búðina og ýtt á eftir þessu. Annars hef ég verslað við tölvulistan og sótt hluti í ábyrgð hjá þeim og hef ekkert nema gott að seigja um þá.