Síða 1 af 1
Ofhitnum Amd !
Sent: Mið 12. Nóv 2003 10:23
af Corey
Ég er með hérna 1300mhz örgjörva... AmD Duron (tm) processor
hann er alltaf ad frosna og þá kemur svona píphljóð
ég kikti í BIOS og hitinn á þessum cpu er 58 - 60 gradur
ég er ekki med neitt kælikrem..
allt í lagi viftu--->+
en hvað mælið þið með?
endilega hjálpiði mér með þetta prob
Sent: Mið 12. Nóv 2003 10:46
af elv
Nota krem, var ekki búið að segja þér það á öðrum þræði
Sent: Mið 12. Nóv 2003 10:49
af Voffinn
Og kaupa viftu, ég meir að segja peistaði á þig link með súper viftu fyrir þig á hinum þræðinum
Sent: Mið 12. Nóv 2003 11:59
af Hlynzi
Ég myndi mæla með viftu framan á kassann...það skiptir rosalegu máli, ég finn það á minni amd vél, hún fær nóga kælingu ef hún er úti á miðju stofugólfi með opnar svalarhurðina.
Ég held að örgjörva viftan þín meiki þetta. (mitt met var nú 67° í vinnslu) en annars er það vifta framan á kassann, hún fær ekki nýtt ferkst loft, og hitar þessvegna allt hitt loftið bara meira.
Sent: Mið 12. Nóv 2003 14:15
af Arnar
frosna? Meinaru kannski frjósa?
Sent: Mið 12. Nóv 2003 16:13
af Fox
Sent: Mið 12. Nóv 2003 17:13
af gumol
Ertu ekki að grínast?
Kælikrem til að setja á milli örrans og heatsinksins
Sent: Mið 12. Nóv 2003 17:16
af Fox
Sent: Mið 12. Nóv 2003 17:20
af gumol
nei það leiðir hita frá heita fletinum til þess kalda
Sent: Mið 12. Nóv 2003 17:23
af Fox
gumol skrifaði:nei það leiðir hita frá heita fletinum til þess kalda
Semsagt, það hitar kaldahlutann, að hita hann kostar varmaorku sem fæst frá heita hlutnum.
Þar sem kremið er leiðari, mætti kalla það "Hita leiðara" og þar að leiðandi er þetta "Hitakrem", rétt?
Sent: Mið 12. Nóv 2003 17:28
af gumol
Fox skrifaði:gumol skrifaði:nei það leiðir hita frá heita fletinum til þess kalda
Semsagt, það hitar kaldahlutann, að hita hann kostar varmaorku sem fæst frá heita hlutnum.
Þar sem kremið er leiðari, mætti kalla það "Hita leiðara" og þar að leiðandi er þetta "Hitakrem", rétt?
nei, það reynir skapar jafnvægi milli heita og kalda hlutarins, þessvegna ætti að kalla þetta "hitajafnvægisáburðarkrem"
Sent: Mið 12. Nóv 2003 20:36
af RadoN
þetta krem fyllir uppi smá dældir og ójöfnun í heatsinkinu.. það er hitaleiðandi líka, þannig að það fæst meiri kæling, hættiði þessu rugli strákar
Sent: Mið 12. Nóv 2003 21:51
af gumol
RadoN skrifaði:þetta krem fyllir uppi smá dældir og ójöfnun í heatsinkinu.. það er hitaleiðandi líka, þannig að það fæst meiri kæling, hættiði þessu rugli strákar
það er hægt að einfalda þetta þannig já
Sent: Mið 12. Nóv 2003 22:17
af ICM
hélt þetta væri perra svar hjá fox þegar hann kom með
á eftir Krem.
Sent: Mið 12. Nóv 2003 23:26
af gumol
það er þín deild
Sent: Fim 13. Nóv 2003 02:41
af halanegri
"örgjörvi" !
Sent: Fim 13. Nóv 2003 02:47
af gnarr
neinei.. það er leiðslukrem!
Sent: Fim 13. Nóv 2003 11:20
af Bendill
Strákar, ekki vera að ræna þráðum frá saklausum fórnarlömbum fyrir svona vitleysu...
Annars myndi ég mæla með einhverju góðu heatsinki frá Coolermaster eða Thermaltake, Volcano 9 eða 11 eða silent boost
"thermally conductive compound" eða hitaleiðandi krem á íslensku, er gott að nota, sérstaklega þegar kemur að AMD örgjörvum og jafnvel öllum örgjörvum í hærri enda skalans.
Ég vona að þetta hjálpaði aðeins...