Síða 1 af 1
Skrifari
Sent: Lau 21. Des 2002 15:45
af ElGorilla
Ef að þú værir að fá þér skrifara hvernig skrifara myndiru fá þér?
Sent: Lau 21. Des 2002 16:31
af Dári
Plextor, ekki spurning.
Sent: Lau 21. Des 2002 19:26
af MezzUp
PLextor, annars eru Teac líka ágætir, held ég
Sent: Lau 21. Des 2002 21:20
af GuðjónR
Ég er með gamla góða Plextor 12/10/32A og búinn að brenna gríðalegt magn af diskum og hann klikkar aldrei.
Annars er næst á dagskránni að kaupa DVD skrifara, CD-ROM skrifarar að verða úreltir.
Sent: Sun 22. Des 2002 00:12
af kemiztry
jebb... dvd skrifari er málið. Það er hægt að kaupa þannig á 40k ooog ef einhver er að ferðast til USA þá væri hægt að kaupa 100 diska bulk á 10k. 10k fyrir 100 DVD diska er ekki mikið.. miðað við að diskurinn hér kostar 500kall ódýrast. Svo fara nú 4.3 GB á hvern disk sem er náttlega mjööög gott
Sent: Sun 22. Des 2002 00:16
af Fletch
Mæli með að kíkja niðrí Expert, þeir eru með Plextor 48/24/48 á 12.999 minnir mig.. keypti svoleiðis um daginn, mjög góður og merkilega hljóðlátur, hélt að hann yrði miklu háværari...
Líka fyrsti skrifarinn minn sem ég get skrifað á full speed t.d. vcd og audio diska og spilað í stofuspilaranum, eldri skrifararnir mínir þurfti ég alltaf að skrifa á max 8x til að stofuspilararnir gætu lesið þá...
Fletch
Sent: Sun 22. Des 2002 00:27
af GuðjónR
Fletch, merkilegt að þú skulir minnast á þetta með hraðann,
ég brenni mikið að VCD og SVCD og horfi á þá í stofu DVD spilaranum.
Ég nota eingöngu CD-RW diska og ég tók fljótlega eftir því að ef ég brenni á full speed (10X-RW)
þá er það bara happa og glappa hvort það virkar í DVD spilaranum eða ekki.
En 8X og minna þá er ég öruggur, ég hélt alltaf að þetta væri diskunum sjálfum að kenna,
en miðað við þína sögu þá er það brennarinn sjálfur sem ræður ekki við þetta.
Hefurðu prófað að skrifa CD-RW diska ??
Sent: Sun 22. Des 2002 21:25
af Fletch
Nei, ég hef ekki prófað CD-RW diska en ég reikna með að þú ættir að geta skrifað þá á 24x (svo lengi sem þú ert með 24x CDRW disk)
Þetta er spurning um skrifarann sjálfan, þó svo að þetta sé stafrænn miðill þá brenna brennarar "misvel", eins bjánalega og það hljómar. Þeir eru að brenna punkta og punktarnir geta orðið "ógreinilegir" og "óljósir", sérstaklega ef skrifað er hratt. Spilarar eru misgóðir að lesa svona diska og það eru ýmis villuleiðréttingar sem eiga sér stað og það er hlutur sem stofuspilarar eru oft mjög lélegir í.
En þú getur lesið um tæknina sem Plextor notar á t.d.
http://www.plextor.com/english/news/pdfs/powerec-whitepaper-5.pdf
Þeir kalla þessa tækni PoweRec, PoweRec-II og VariRec.
Enda hver er ávinningurinn af því að vera með 48x+ hraða brennara en fullt af drifum getur ekki lesið það og þurfa því að skrifa allt á 12x eða minna ?
ps. var í Expert í dag og þeir voru búnir að hækka Plextorinn í 13.900
kveðja,
Fletch
Sent: Sun 22. Des 2002 21:55
af Castrate
ég er með eikkurn cyberdrive 16/12/40 skrifara sem ég fékk á slikk í bt ég veit ekki en hann hefur staðið sig hingað til ég veit ekki en ég sá lítið sony merki neðan á honum þar sem allar upplýsingar eru á honum gæti verið frá sony ég veit ekki annars er mér sama á meðan hann virkar að þá er ég ánægður. Ég lenti í DataTrax diskunum sem BT var að selja og BOOM diskurinn sprakk inní drifinu ég opnaði það bara og hreinsaði setti saman aftur og ekkert mál las alla diska og allt ekkert mál
Sent: Mán 23. Des 2002 01:03
af Fletch
lol! hef lent í þessu sama á tveim 48x hraða drifum, í bæði skiptin líka með TraxData diskum
Greinilega mjög illa balance'aðir diskar! Þvílík læti þegar þeir sprungu, og í bæði skiptin voru ca. 1/4 af disknum "horfin"
eða í frumeindum...
ps. bæði drifin voru í lagi eftir hreinsun
Fletch
Sent: Þri 24. Des 2002 00:37
af Castrate
Ég kaupi einungis Imation diska núna ekkert annað alveg hættur að kaupa svona ódýrt drasl
Sent: Þri 24. Des 2002 15:15
af Voffinn
Ég er með Teac 40x(manekki)x48x
ef þú vilt fá að vita bestu kaupin, kíktu þá á gamecopyworld.com eða cdfreaks.com . þetta eru einu síðurnar sem ég veit um !
Sent: Mið 25. Des 2002 00:04
af Atlinn
Ég er að nota nec 12x skrifara sem ég keypti í Tölvulistanum, hann hefur ekki enn klikkað...
Nota líka bara imation diska
Sent: Mið 25. Des 2002 02:50
af ElGorilla
Hvar fær maður þessa imation diska?
Sent: Mið 25. Des 2002 13:54
af Atlinn
Það er góð spurning þeir hafa verið til í hljómsýn (akranesi) en eru ekki til þar lengur...mig fer að vanta diska og vantar að vita hvar ég geti keipt svona diska
Sent: Mið 25. Des 2002 15:45
af Voffinn
Þó ég hafi ekki gert mikla markaðrannsókn á skrifanlegum diskum, þá hef ég aðeins keypt, "Discrite, 80min, með-engum-hraðatakmörkum, 50saman í spindli" , Þessa kaupi ég til að geta skrifað á 40x, massagott
Sent: Mið 01. Jan 2003 02:34
af hag
Kaupa sér DVDskrifara, t.d Sony DRU500A hann skrifar bæði á -r og +r og náttla´líka venjulega diska