Síða 1 af 2
P4 Xeon, AGP Pro og 64bit PCI
Sent: Þri 11. Nóv 2003 13:16
af Fox
Hafiði notað Xeon vélar?
Það er hægt að fá dual xeon móðurborð með agp pro, og 64bit pci raufum, samhliða 32bit raufum (66mhz) á rúmann 55þús frá útlandinu :>
Er ekki málið að skella sér á þannig græju?
Gætir raidað 10 sata harðadiska saman á sitthvorn 64bit pci raid controller, og fengið lágmark 1 GB/sec í flutningshraða :> á rúmlega 750 GB.
Svona borð tekur 8GB af ram :>
móðurborð + 2x 2.8Ghz örgjörvar er á kringum 110.000 Kr af ebay :>
Sent: Þri 11. Nóv 2003 21:56
af Hlynzi
Ef þú villt verða blankur færðu þér svona.
Fáðu fullt af sponsurum fyrir þetta, það vantar sponsora á keppnis-tölvurnar !
Sent: Þri 11. Nóv 2003 23:35
af MezzUp
og hverju runnarru svo með sona öflugri tölvu?
Sent: Mið 12. Nóv 2003 09:38
af elv
http://www.starmicro.net/detail.aspx?ID=144
310$ stykkið.
Getur fengið 2Ghz 400FSB á 120$ á sama stað
Sent: Mið 12. Nóv 2003 13:25
af Fox
Talandi um að verða blankir..
Hverjir spreða peningum í tölvukassa svo sem nefnt?
Ég er með 2 vélar heima, eina með kassa sem kostaði 27þús og aðra með 5þús kr kassa.
Munurinn er sá að ég þurfti að VINNA lengur fyrir hinum kassanum.
Sent: Mið 12. Nóv 2003 13:53
af gnarr
ef þú ætlar að fara að setja dual xeon vél í einhvern 5000kr kassa máttu alveg eins gefa mér bara þennann 150.000 kall.. tölvan á eftir að brenna upp á innan við viku!
ég þoli ekki þegar fólk heldur að kassar og aflgjafar séu bara sona aukahlutir! þetta eru mikilvægustu hlutir tölvunnar. ef þú ert með lélegann aflgjafa er léleg kæling á dótinu, lélegt voltage og mikið af minnistruflunum, það bilar MUN meira og tölvan er MJÖG líklega til að rístarta sér þá og þegar. og ef þú ert með einhvern ógeðslegann 5000kr kassa, þá er sama og ekkert loftflæði inní kassanum, sem verður til þess að allt dótið inní honum ofhitnar. þar að auki eru rafkapplar kanski liggjandi yfir minnið sem að veldur því að það koma fullt af minnisvillum og það endist allt dótið mun stittra. þar að auki keyrir of heit tölva mun hægar en "rétt-yfir-herbergishita" tölva
Sent: Mið 12. Nóv 2003 13:56
af gnarr
endilega kauptu þér kassa af ebay.. það verður gaman að sjá svipinn á þér þegar þú kemst að því hvað það kostar að senda 15kílóa hlut frá usa...
Sent: Mið 12. Nóv 2003 14:39
af gumol
gnarr skrifaði:og ef þú ert með einhvern ógeðslegann 5000kr kassa, þá er sama og ekkert loftflæði inní kassanum, sem verður til þess að allt dótið inní honum ofhitnar.
Þá er líklegt að..
það getur alveg verið ódýr kassi með gott loftflæði.
Sent: Mið 12. Nóv 2003 14:47
af gnarr
já.. það getr velverið að það sé gott loftflæði í 20x10x5cm kassanum þínum... RIIIGHT.. kanski áður en þú setur eitthvða í hann.
Sent: Mið 12. Nóv 2003 14:53
af gumol
kanski ekki svona litlum kössum.
Sent: Mið 12. Nóv 2003 15:18
af MezzUp
gnarr skrifaði: þar að auki keyrir of heit tölva mun hægar en "rétt-yfir-herbergishita" tölva
vá, heill hellingur af röngum fullyrðingum hjá þér, en þessi gerði útslagið.
munurinn á 5 þú króna kössum og 20 króna kössum er oft efnið sem að notað er í kassana og einnig aukahlutir svo sem viftur og hitamælar.
einnig er loftflæði ekkert alltaf betra í stórum kössum, fer mikið eftir hönnun kassans og hvernig raðað er í honum. í of stórum kössum geta líka verið "dead spots" þar sem að loftið hreyfist ekkert.
hitastig tölvu hefur ekki áhrif á hraða hennar, held ég, nema að þú farir yfirum og örrinn bráðni eða farir virklega mikið niður, langt langt niður fyrir herbergishita
ég hef aldrei heyrt þetta um rafmangskapla og villur í minni, einhver annar sem að hefur heyrt um þetta?
ps. ekki alhæfa sona rosalega nema að setja "ég held að...." í byrjun bréfsis
Sent: Mið 12. Nóv 2003 15:28
af gnarr
ég er ekki að alhæfa. ég er heldur ekki að giska. ódýrir kassar eru MJÖG sjaldan með einhverri hönnun at all, svo að það er ólíkelgat að það sé gott loftflæði. svo efast ég líka um að örgjörfar bráðni af því að fara undir herbergis hita. þeir spara heldur ekkert 15.000kr á því að hafa öðruvísi efni í kassanum.
og jú. ef að rafmagnskapplarnir liggja of nálægt minninnu eru miklar líkur á ða þú fári mikið af minnisvillum.
Sent: Mið 12. Nóv 2003 16:02
af elv
Samt satt með ódýra aflgjafa, allt fór í hönk hjá mér áðan, vélinin vildi varla posta. Eftir smá stund komst ég að PSU (eitthvað 300W noname frá Computer.is) væri að gefa sig.
Kíkti í Tölvuvirkni, og var ekki að nískast í þetta skipti
http://tolvuvirkni.net/pw?inc=view&flo= ... ERTEK_600w
vona að hann dugi
Sent: Mið 12. Nóv 2003 16:06
af gnarr
úff.. ekkert smá flykki
ég samt leifi mér að efa það að þessi aflgjafi ráði við einvher 600w.
Sent: Mið 12. Nóv 2003 16:08
af elv
Græt það ekki þó hann skili bara um 500w
Sent: Mið 12. Nóv 2003 16:11
af Fox
Já, minn kassi er úr japönsku stáli. Það hjálpar mér mjög mikið.. right :?:
Sent: Mið 12. Nóv 2003 16:46
af MezzUp
gnarr skrifaði:ef þú ætlar að fara að setja dual xeon vél í einhvern 5000kr kassa máttu alveg eins gefa mér bara þennann 150.000 kall.. tölvan á eftir að brenna upp á innan við viku!
ég þoli ekki þegar fólk heldur að kassar og aflgjafar séu bara sona aukahlutir! þetta eru mikilvægustu hlutir tölvunnar. ef þú ert með lélegann aflgjafa er léleg kæling á dótinu, lélegt voltage og mikið af minnistruflunum, það bilar MUN meira og tölvan er MJÖG líklega til að rístarta sér þá og þegar. og ef þú ert með einhvern ógeðslegann 5000kr kassa, þá er sama og ekkert loftflæði inní kassanum, sem verður til þess að allt dótið inní honum ofhitnar. þar að auki eru rafkapplar kanski liggjandi yfir minnið sem að veldur því að það koma fullt af minnisvillum og það endist allt dótið mun stittra. þar að auki keyrir of heit tölva mun hægar en "rétt-yfir-herbergishita" tölva
hmm, ekki að alhæfa?
gnarr skrifaði:ódýrir kassar eru MJÖG sjaldan með einhverri hönnun at all
og hvaðan hefurru þessar upplýsingar?
gnarr skrifaði:svo efast ég líka um að örgjörfar bráðni af því að fara undir herbergis hita.
ahh, misskildir mig aðeins, ég sagði að hitinn á örranum skipti ekki máli nema:
a) Hitinn fer yfir leyfilegan hita og downclockar sig/frýs/bræðir úr sér
eða,
b) Hitinn fer það langt niður að frumeindir fara að hreyfast hraðar
gnarr skrifaði:þeir spara heldur ekkert 15.000kr á því að hafa öðruvísi efni í kassanum.
nei, en þykkt stál kostar nú eitthvað. síðan borgarru náttla eitthvað fyrir hitamælinn, vifturnar og gluggahliðina. þannig að verðmunurinn liggur ekki bara í loftflæðinu og PSU'inu
ps. vill samt taka það fram að ég er alveg sammála að aflgjafinn skipti miklu máli í tölvu, sérstaklega orkuhungruðum tölvum
Sent: Mið 12. Nóv 2003 16:58
af gnarr
ef þú vissir það ekki, þá hreifast frumeindir hægar þegar hitinn lækkar.
það er líka nánast alltaf jafn þykkt efni í tölvukössum. nema í kössum sem að eru annaðhvort ahnnaðir sem ferðakassar eða sem hljóðlausir kassar.
það eru líka fæstir kassar með hitamæli. og ekki reyna að segj amér að vifturnar sem að fylgja með dýrari kössunum hafi ekki áhrif á loftflæðið.
Sent: Mið 12. Nóv 2003 16:58
af Voffinn
elv skrifaði:Samt satt með ódýra aflgjafa, allt fór í hönk hjá mér áðan, vélinin vildi varla posta. Eftir smá stund komst ég að PSU (eitthvað 300W noname frá Computer.is) væri að gefa sig.
Kíkti í Tölvuvirkni, og var ekki að nískast í þetta skipti
http://tolvuvirkni.net/pw?inc=view&flo= ... ERTEK_600wvona að hann dugi
Minn bara flottur á því
Hvernig er fyrsta reynslan á gripinn?
Sent: Mið 12. Nóv 2003 17:05
af elv
Bara vel, alveg hljóðlaus, (en gamli var það nú líka eftir smá mod
)
Spurning að rigga vatnkælingunni aftur, sjá hvort maður komist hærra með meira Vcore
Sent: Mið 12. Nóv 2003 17:18
af gumol
gnarr skrifaði:ef þú vissir það ekki, þá hreifast frumeindir hægar þegar hitinn lækkar.
það er líka nánast alltaf jafn þykkt efni í tölvukössum. nema í kössum sem að eru annaðhvort ahnnaðir sem ferðakassar eða sem hljóðlausir kassar.
það eru líka fæstir kassar með hitamæli. og ekki reyna að segj amér að vifturnar sem að fylgja með dýrari kössunum hafi ekki áhrif á loftflæðið.
en það eru rafeindirnar sem við viljum að hreifist, ekki frumeindirnar.
en það er rétt hjá þér að hitinn lækki þegar frumeindirnar hreifist hægar og öfugt.
Sent: Mið 12. Nóv 2003 18:53
af Pandemic
Afhverju eruði að rífast um eikkað sem maður lærir þegar maður er 7 ára frumeindir rafeindir sameindir og allt það.
Sent: Mið 12. Nóv 2003 19:12
af gumol
Við erum orðinir þreittir á INTEL vs. AMD
Sent: Mið 12. Nóv 2003 19:25
af Pandemic
Þá fariði bara í typpastærðar keppni
Sent: Mið 12. Nóv 2003 22:57
af MezzUp
Pandemic skrifaði:Þá fariði bara í typpastærðar keppni :twisted:
úff, þá myndi ég nú hlaupa út :)
þegar ég segi 20 þús króna kassi þá er ég að m.v. Thermaltake(þekki hann best af dýrari kössum), hurðin á því drasli er nú nokkuð þykk
ps. meinti audda rafeindir