Síða 1 af 1

Álit á uppfærslu

Sent: Mán 15. Des 2008 14:09
af Gerbill
Jæja var að velja saman hluti frá att.is (þar sem þeir eru ódýrast í augnablikinu.)

Örgjörvi: Intel Core 2 Duo E8400 3.0GHz, 1333FSB = 28.750kr
Móðurborð: MSI P43 Neo-F = 16.950kr
Vinnsluminni: Corsair XMS2 pöruð 2 stk. 1GB (=2GB) DDR2, 800MHz = 7.950kr
Skjákort: MSI ATI Radeon R4850 T2D512 = 29.950kr

Samtals: 83.600kr

Þrjár spurningar, hvernig líst ykkur á og hversu stóran aflgjafa ætli ég þurfi?:)
Og pæling með minnið, er það þess virði að fara uppi 1066mhz ?

Re: Álit á uppfærslu

Sent: Mán 15. Des 2008 15:32
af Gerbill
Já gleymdi víst að minnast á í hvað hún verður notuð.

Aðallega bíómyndagláp, vefráp, tónlistarhlustun og auk þess mundi ég vilja að hún mundi ná að spila nýja leiki, þá sérstaklega höndla Diablo 3 og Starcraft 2 þegar þeir koma frekar vel :D

Re: Álit á uppfærslu

Sent: Þri 16. Des 2008 11:54
af Yank
Fín samsetning mun ráða við þær kröfur sem þú setur upp

Myndi ekki taka minna en 500w aflgjafa
http://www.tech.is/?s=1&sm=4&read=3624&readpage=6

Þú verður lítið var við mun á því að fara úr 800-1066 MHz minni.

Re: Álit á uppfærslu

Sent: Fim 18. Des 2008 22:25
af KermitTheFrog
Miðað við það sem þú ætlar að nota tölvuna í þá er 800MHz minni nóg