Síða 1 af 1
Seagate 7200.7 SATA diskur dó!
Sent: Fös 31. Okt 2003 00:54
af Fletch
Var með 2x120 GB Seagate 7200.7 SATA diska í RAID-0...
Þegar ég kom heim úr vinnunni í gær var annar þeirra dauður!
Lýsti sér alveg eins og the infamous click-of-death, sem IBM diskarnir voru frægir fyrir... Poweraði upp, click-click-click... í svona 1 min svo powerdown...
Tókst engan vegin að fá hann til að virka aftur...
Tapaði slatta af dóti en átti afrit af því sem skipti máli!
Sem betur fer...!
Munið að taka afrit!!!
ps. Fékk nýjan disk strax hjá Task, búin að vera dunda mér í kvöld að koma druslunni upp aftur!
Fletch
Sent: Fös 31. Okt 2003 01:23
af Arnar
Hmm.. er þetta þá ekki verksmiðjugalli eða e-ð sem er þá í afar fáum eintökum?
Ég er með ákkúrat eitt svona stykki sem ég vona að endist vel
Sent: Fös 31. Okt 2003 01:52
af DarkAngel
Kellingin mín fékk 40gb IBM disk með tölvunni sinni og hann dó stuttu síðar og þá kom einmitt þetta click-click-click í disknum og svo hætti hann að gefa frá sér hljóð og kom eitthvað boot failure og þar af leiðandi var diskurinn ónýtur (diskurinn var eitthvað gallaður) og hún fékk nýjann western digital og hann er að virka vel
Sent: Fös 31. Okt 2003 09:07
af axyne
eg var med 2x 120 gb Barracuda SATA diska i RAID 0
annar theirra drapst a sama hatt og skedi hja ther.
Seagate diskarnir eitthvad slappir i RAIDi
Sent: Fös 31. Okt 2003 09:35
af Fletch
Já, þessir diskar eru oft þannig að annaðhvort bila þeir fyrsta mánuðinn í notkun eða bara ekki...
annaðhvort léleg framleiðsla eða diskurin í lagi..! ?
Fletch
Sent: Þri 11. Nóv 2003 00:55
af gunnia
Hm hm, gæti verið vegna ofhitnunar?
Seagate diskarnir eru mjög hljóðlátir og eiga það víst til að ofhitna, amk ef marka má metku.net.
http://www.metku.net/index.html?sect=vi ... /index_eng
Sent: Þri 11. Nóv 2003 08:43
af Voffinn
Fletch, hefur mína fyllstu samúð, alltaf leiðinlegt að missa disk.
Sent: Þri 11. Nóv 2003 09:08
af Fletch
Definetly ekki vegna ofhitnunar hjá mér, þeir eru að mælast 25-32°C hjá mér, þetta var bara gallað eintak...
Fletch
Sent: Þri 11. Nóv 2003 10:13
af Fox
axyne skrifaði:eg var med 2x 120 gb Barracuda SATA diska i RAID 0
annar theirra drapst a sama hatt og skedi hja ther.
Seagate diskarnir eitthvad slappir i RAIDi
Það er engin ástæða fyrir því að einn framleiðandi ætti að gera diska sem eru slæmir fyrir raid. Ef diskurinn er lélegur í raid, er hann eflaust lélegur í allt annað.
Sent: Þri 11. Nóv 2003 11:22
af Pandemic
Eigum við ekki að halda jarðaför og vera með erfðadrikkju á eftir
Sent: Þri 11. Nóv 2003 11:36
af gnarr
já.. hver á að erfa öll gögnin af disknum?
Sent: Þri 11. Nóv 2003 12:51
af Nemesis
Gott að þú fékkst nýjan, ekki allar verslanir hefðu hent í þig nýjum strax.
Sent: Þri 11. Nóv 2003 22:15
af Hlynzi
Látið mig vita með gallaða IBM diska. Nú á að vera firmware sem lagar þetta. Veit ekki hvernig það kemur út.
IBM diskur sem ég var með bilaði 3 sinnum (á 3 mánuðum, en öll gögn á vísum stað, svo windowsið fauk bara), en hann hitnaði of mikið, kæling á IBM er mikilvæg. Þetta hefur verið að hluta til hita vandamál.
En nú er Seagate í þeirri vél, hann hefur ekki slegið feil púst og toppar alla diska. ótrúlegur diskur.
Sent: Þri 11. Nóv 2003 22:48
af odinnn
ég er með Seagate 80g SATA disk og mér finnst snarka í honum þegar það er verið að vinna mikið á honum. einhver annar sem heyrir það í sínum disk?