Síða 1 af 1

115 gb eftir af 149 gb disk, en einungis 17 gb inná.

Sent: Mið 29. Okt 2003 21:38
af aRnor`
Kvöldið, Ég var ekki alveg viss hvort ég ætti að pósta hingað eða á Windows

Allavega:

Þannig standa málin að ég tók eftir því að skyndilega voru komin auka
"gb" á harðadiskinn/diskana sem eru ósjáanlega. Jæja þannig ég fer og reikna út
hvort þetta geti staðist, ég merki alla folderana bláa og properties´a þá
þar kemur upp að það séu 17 gb in use og 115 eftir af 160 gb disknum
sem er væntanlega 149 gb í windows.
http://easy.go.is/xcatterz/Weird2.JPG

Einnig er c: diskurinn minn í nákvæmlega sama standi.

Ég var bara farinn að halda að það væru einhver hidden files þarna en ég
er bara nokkuð viss um að það sé ekkert þarna hidden.

Sent: Mið 29. Okt 2003 21:53
af gnarr
Dótið sem að reiknar út stærðina á diskunum í windows er kolvitlaust. þetta er ekkert til að hafa áhyggjur af.

Sent: Mið 29. Okt 2003 21:58
af aRnor`
já ætli það ekki. :?

Sent: Mið 29. Okt 2003 23:48
af arnarj
það er dálítið til sem heitir "system restore" í XP, það tekur slatta af plássi til sín sem þú sérð ekki. Ef þú slekkur á því ættirðu að fá plássið þitt til baka, þ.e. ef þú saknar þess.

Sent: Mið 29. Okt 2003 23:50
af kiddi
og til að klára það sem arnarj sagði:

Farðu í:

Start > Control Panel > System > System Restore og þar áttu möguleika á að slökkva á System Restore á öllum drifum og/eða fínstilla hvert drif fyrir sig, þarna geturðu líka séð hversu mikið pláss þetta er að taka

Sent: Fim 30. Okt 2003 03:22
af halanegri
gnarr skrifaði:Dótið sem að reiknar út stærðina á diskunum í windows er kolvitlaust. þetta er ekkert til að hafa áhyggjur af.


Rofl, það væri ANSI stór galli!

1 byte = 8 bits

1 KB = 1024 byte
1 MB = 1024 KB (1.048.576 bytes)
1 GB = 1024 MB (1.073.741.824 bytes)

Harðadisksframleiðendur svindla á manni og selja þér "120GB" disk til dæmis. Í einu GB eru 1.073.741.824 bytes, og það er ekkert sem breytir því. Þar af leiðandi eru 128.849.018.880 bytes í 120GB.

En, Western Digital 120GB diskurinn minn er aðeins 120.027.774.976 bytes, sem gerir 111,7GB. Sumir segja að þetta sé í lagi því að þeir séu að fara eftir tíundakerfinu sem mannfólkið notar en ekki eftir tvítölukerfinu(binary) sem tölvur nota, en það finnst mér ekki duga, því að 120.027.774.976 bytes ERU EKKI 120GB! Það vantar meira en 8GB uppá.

Ég heyrði einhvern tímann að það það hefði verið farið í mál útaf þessu, en ég veit ekki hvernig það fór. Ég vona allavega að framleiðendurnir fara að hætta þessari lygi.

Sent: Fim 30. Okt 2003 03:25
af gnarr
í alvöru.. ég er ekkert að bulla. allavega var þetta alltaf í fokki hjá mér. held reyndar að það hafi verið í win2k, svo lagaðist það áreiðanlega með sp3 eða ef það var winxp, þá var það sp1.

Sent: Fim 30. Okt 2003 03:25
af halanegri
Allavega kann Windows alveg að reikna.

Sent: Fim 30. Okt 2003 12:14
af gumol
halanegri skrifaði:
gnarr skrifaði:Dótið sem að reiknar út stærðina á diskunum í windows er kolvitlaust. þetta er ekkert til að hafa áhyggjur af.


Rofl, það væri ANSI stór galli!

1 byte = 8 bits

1 KB = 1024 byte
1 MB = 1024 KB (1.048.576 bytes)
1 GB = 1024 MB (1.073.741.824 bytes)

Harðadisksframleiðendur svindla á manni og selja þér "120GB" disk til dæmis. Í einu GB eru 1.073.741.824 bytes, og það er ekkert sem breytir því. Þar af leiðandi eru 128.849.018.880 bytes í 120GB.

En, Western Digital 120GB diskurinn minn er aðeins 120.027.774.976 bytes, sem gerir 111,7GB. Sumir segja að þetta sé í lagi því að þeir séu að fara eftir tíundakerfinu sem mannfólkið notar en ekki eftir tvítölukerfinu(binary) sem tölvur nota, en það finnst mér ekki duga, því að 120.027.774.976 bytes ERU EKKI 120GB! Það vantar meira en 8GB uppá.

Ég heyrði einhvern tímann að það það hefði verið farið í mál útaf þessu, en ég veit ekki hvernig það fór. Ég vona allavega að framleiðendurnir fara að hætta þessari lygi.

Þetta er alveg rétt hjá þeim, þeir meiga þetta alveg því forskeitið gíga- þíðir 9 stafi að grunneiningunni, og mega- er 6 stafir, það er bara binary sem er með þetta rugl með 1024 á milli
Þetta er svona eins og 256 kílóBITA tenging, ekki kílóBÆTA
(Sammt eru sum netþjónustufyrirtæki svo vitlaus að skrifa KB/s og þarmeð að svindla á manni)

Sent: Fim 30. Okt 2003 13:58
af halanegri
gumol skrifaði:Þetta er alveg rétt hjá þeim, þeir meiga þetta alveg því forskeitið gíga- þíðir 9 stafi að grunneiningunni, og mega- er 6 stafir, það er bara binary sem er með þetta rugl með 1024 á milli
Þetta er svona eins og 256 kílóBITA tenging, ekki kílóBÆTA
(Sammt eru sum netþjónustufyrirtæki svo vitlaus að skrifa KB/s og þarmeð að svindla á manni)



Þó að BÆTI séu ekki talin eins og metrar og lítrar, þá þýðir það ekki að harðadisksframleiðendur geti talið þau þannig! Þeir selja þér 120gb disk sem ER EKKI 120gb! Svo einfalt er það.

Sent: Fös 31. Okt 2003 17:24
af arnarj
Það eru ekki bara harðdisksframleiðendur sem gera þetta. DVD-R diskar t.d. eru listaðir 4.7 gíg >en eru í raun bara c.a 4.35. Þetta er allt leikur að tölum, menn í DVD framleiðslu hafa þó þann sóma að vera allir með sömu vitleysuna í gangi :wink:

Sent: Fös 31. Okt 2003 17:31
af halanegri
700mb cdr diskar eru þó 700mb. :D

Sent: Mán 03. Nóv 2003 05:28
af DrÔpi
Ég á 120 Gbyte-a disk hann er 120.031.477.760 bytes eða 120 Gbyte en þegar talað er um t.d. skrifanlega diska þá er talað um 700 Mbit ekki byte þar liggur munurinn þannig 120 Gbyte-a diskur er í raun 111 Gbit þangi þið sjáið að þetta er ekkert svindl bara folk er húkkað á muninum á byte og bit

Sent: Mán 03. Nóv 2003 05:32
af halanegri
Jú, það er svindl, því að þeir selja þér disk sem 111gb en þeir segja að hann sé 120gb, og hann er ekki, undir neinum kringum stæðum 120gb.

120.026.300.416 ERU EKKI 120gb!


Ef þeir ætla að selja svona disk, þá eiga þeir að segja að hann sé 111gb eða 120 milljarðar bæta.

Sent: Mán 03. Nóv 2003 10:48
af gnarr
DrÔpi skrifaði:Ég á 120 Gbyte-a disk hann er 120.031.477.760 bytes eða 120 Gbyte en þegar talað er um t.d. skrifanlega diska þá er talað um 700 Mbit ekki byte þar liggur munurinn þannig 120 Gbyte-a diskur er í raun 111 Gbit þangi þið sjáið að þetta er ekkert svindl bara folk er húkkað á muninum á byte og bit



HAHAHAHA.. þá veist að 700Mbit eru bara 87.5MB.. þetta er ekki alveg rétt hjá þér. 120GByte er líka 960Gbit.

með geisladiskadæmið þá sagðiru að bit væri minna en byte en í harðdisksdæminu sagðiru að bit væri stærra en byte.
þetta er actually sona:
1 byte = 8 bits
1 Kbyte = 1024bytes
1 Mbyte = 1024Kbytes
1 Gbyte = 1024Mbytes

en hjá HD framleiðendum nota þeir 1kbyte = 1000bytes, 1Mbyte = 1000Kbytes og Gbyte = 1000Mbytes.

Sent: Mán 03. Nóv 2003 13:06
af MezzUp
DrÔpi skrifaði:Ég á 120 Gbyte-a disk hann er 120.031.477.760 bytes eða 120 Gbyte en þegar talað er um t.d. skrifanlega diska þá er talað um 700 Mbit ekki byte þar liggur munurinn þannig 120 Gbyte-a diskur er í raun 111 Gbit þangi þið sjáið að þetta er ekkert svindl bara folk er húkkað á muninum á byte og bit

rangt, skrifanlegir diskar eru ekki seldir sem 700Mbit. Bit er "alltannað" og kemur þessum ruglingi ekkert við.

Munurinn á öllu þessi drasli er að framleiðendur nota sér löglegt forskeytakerfi, þ.e. 10^3 en byte ættu að vera reiknuð út í 2^10. Þegar menn voru í denn að setja nöfn á þetta þá notuðu þeir Kíló yfir 1024 byte þótt að kíló þýði 1000.
Hinsvegar er kominn "nýr" staðall, geti lesið um hann hérna: http://www.pcguide.com/intro/fun/bindec.htm

Sent: Mán 03. Nóv 2003 20:36
af RadoN
alveg rétt.. í rauninni er rangt að segja að 100GigaByte séu 100GigaByte þar sem skekkjan er orðinn svoltið mikil þegar tölurnar eru orðnar svona stórar.. skipti kanski ekki miklum mun hérna í gamladaga þegar tölurnar voru ekki það háar eins og þær eru í dag :wink:

Sent: Mán 03. Nóv 2003 20:40
af RadoN
hehe, ég var að lesa þennan "nýja" staðal.. þar kalla þeir þetta Kibibyte (kiB), Mebibyte (MiB), Gibibyte (GiB) og Tebibyte (TiB)..

Sent: Mán 03. Nóv 2003 22:46
af MezzUp
RadoN skrifaði:alveg rétt.. í rauninni er rangt að segja að 100GigaByte séu 100GigaByte þar sem skekkjan er orðinn svoltið mikil þegar tölurnar eru orðnar svona stórar.. skipti kanski ekki miklum mun hérna í gamladaga þegar tölurnar voru ekki það háar eins og þær eru í dag :wink:

hmm, ekki beint.
þeir notuðu kílóbæti afþví að þeir nenntu ekki að segja 1024 bæti, kílóbæti þýddi í denn 1024bæti en síðan komu framleiðendur og ákváðu að nýta sér það að kíló þýðir í raun og veru 1000 en ekki 1024

Sent: Mið 05. Nóv 2003 03:41
af RadoN
það var það sem ég var að segja, GB er 1024^3 eða 1073741824 Byte..
en þeir telja þetta bara sem 1000^3 (1000000000)
og þar í einu GBi er skekkjan orðin 73741824 Byte, sem er ca. 70 MB..
og þegar við erum kominn með 120 GB HDD, þá fer þetta að telja svoltið mikið.. ca 8.3 GB..

Sent: Mið 05. Nóv 2003 12:02
af Daz
MezzUp skrifaði:hmm, ekki beint.
þeir notuðu kílóbæti afþví að þeir nenntu ekki að segja 1024 bæti, kílóbæti þýddi í denn 1024bæti en síðan komu framleiðendur og ákváðu að nýta sér það að kíló þýðir í raun og veru 1000 en ekki 1024

Jújú kíló þýðir almennt 1000 af einhverju, en kílóbæt er engu að síður 1024 bæt, ekki 1000 bæt.
Mér persónulega finnst þetta mjög kjánalegt af mörgum í tölvubransanum að reyna að færa þetta úr 1024 í 1000. Það flækir held ég meira en það leysir.